„Augljóst mannréttindamál“ að leyfa kynhlutlaus nöfn

Eiríkur Rögn­valds­son pró­fessor segir frá­leitt að lög­gjaf­inn krefj­ist þess að allir heiti nafni sem opin­beri kyn þeirra. Hann fagnar fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á manna­nafna­lög­gjöf­inni og telur að frum­varps­drögin sem kynnt hafa verið feli í sér mikla rétt­ar­bót.

„Augljóst mannréttindamál“ að leyfa kynhlutlaus nöfn

Engin ástæða er til að ætla að íslenskri tungu stafi ógn af þeim breyt­ingum sem fel­ast í frum­varps­drögum inn­an­rík­is­ráð­herra vegna til­von­andi breyt­inga á íslenskri manna­nafna­lög­gjöf. Þetta er álit Eiríks Rögn­valds­sonar, pró­fess­ors í íslenskri mál­fræði við Háskóla Íslands. 

Eiríkur hefur skilað inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu ítar­legri umsögn um frum­varps­drögin sem birt­ust á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þann 15. júní síð­ast­lið­inn. Drögin fela í sér að gild­andi lög um manna­nöfn falla brott en til­teknum ákvæðum um nöfn og skrán­ingu þeirra í þjóð­skrá er bætt inn í lög um þjóð­skrá og almanna­skrán­ingu. Eiríkur telur að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar séu af hinu góða og að sam­þykkt lag­anna yrði veru­leg rétt­ar­bót. Hins vegar sé ástæða til að end­ur­skoða nokkur ákvæði frum­varps­drag­anna og skýra önnur betur. 

Eiríkur bendir meðal ann­ars á að þrátt fyrir ákvæði í gild­andi manna­nafna­lögum sem sett eru til verndar íslenskri tungu sé ljóst af úrskurðum manna­nafna­nefndar að erlend manna­nöfn eigi til­tölu­lega greiða leið inn í málið. „Það skiptir vart sköpum fyrir fram­tíð tung­unnar hvort haldið er í þær hömlur sem eru á upp­töku nýrra erlendra (og inn­lendra) nafna. Manna­nöfn eru svo sér­stakur og afmark­aður hluti tungu­máls­ins að ekki er lík­legt að þau hafi veru­leg áhrif á aðra þætti þess, enda eru nýleg nöfn sem reyna á ákvæði manna­nafna­laga flest eða öll mjög sjald­gæf,“ skrifar hann.

Sturla, Auður, Blær

Ef drögin að nýrri manna­nafna­lög­gjöf verða að veru­leika mun ákvæði um að stúlku skuli gefa kven­manns­nafn og dreng karl­manns­nafn falla brott. Eiríkur telur þetta skyn­sam­legt, enda sjái hann engin rök fyrir því að hafa skörp skil milli karl­manns- og kven­manns­nafna. 

„Útilokað er að fella það undir vernd íslenskrar tungu – nöfnin eru að sjálf­sögðu jafnís­lensk (eða óís­lensk) hvort sem karlar eða konur bera þau. Ekki er heldur ein­hlítt að sam­ræmi sé milli kyns nafn­bera og mál­fræði­legs kyns nafns, sbr. Sturla sem er karl­manns­nafn en hefur beyg­ingu kven­kyns­orða. Fáein nöfn eru eða hafa verið notuð bæði sem karl­manns- og kven­mannsnöfn, t.d. Auður og Blær, og dæmi eru um nöfn sem eru karl­mannsnöfn í erlendum tungu­málum en kven­manns­nöfn á Íslandi, og öfugt,“ skrifar Eiríkur auk þess sem hann bendir á að kyn og kyn­vit­und ætti að vera einka­mál fólks og ekki koma nafni þess við.

„Það þætti vita­skuld frá­leit og ósið­leg hug­mynd að gá milli fóta fólks til að athuga kyn þess – en við þurfum þess ekki heldur, nafnið er alveg jafn afhjúp­andi“

„Sumt fólk er hvorki full­kom­lega karl­kyns né kven­kyns, skil­greinir sig hvorki sem karl­kyns né kven­kyns, eða vill ekki opin­bera kyn sitt eða kyn­vit­und. Engin ástæða er fyrir lög­gjafann að krefj­ast þess að allir heiti nafni sem opin­berar kyn þeirra, kyn sem fólkið er kannski ekki sátt við. Það þætti vita­skuld frá­leit og ósið­leg hug­mynd að gá milli fóta fólks til að athuga kyn þess – en við þurfum þess ekki heldur, nafnið er alveg jafn afhjúp­andi. Trú er einka­mál fólks, stjórn­mála­skoð­anir og kyn­hneigð líka, og aldur getur verið við­kvæmt mál. Kyn og kyn­vit­und ætti vita­skuld að falla í sama flokk – vera einka­mál fólks, sem það ætti ekki að vera skyldugt til að opin­bera með nafni sínu. Þetta er aug­ljóst mann­rétt­inda­mál og mjög nauð­syn­legt að afnema þessi skil og leyfa kyn­hlut­laus nöfn.“

„Bur“ kæmi til greina í stað „sonar“ og „dóttur“

Eiríkur telur einnig mik­il­vægt að ekki séu settar reglur um hvernig kenn­ing til föður og móður skuli vera líkt og er í gild­andi lögum þar sem segir að karlar skuli nota „son“ en konur „dóttir“. Hann fagnar því að sú krafa falli brott sam­kvæmt frum­varps­drögum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. „Frum­varps­drögin gefa mögu­leika á því að þeir sem vilja noti kyn­laust form, t.d. „bur“ sem dóm­nefnd í nýyrða­sam­keppni Sam­tak­anna 78 mælti með,“ skrifar Eiríkur.

Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þann 15. júní 2016 er bent á að í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá 31. jan­úar 2013 var byggt á því að réttur manns til nafns félli undir vernd 71. gr. stjórn­ar­skrár­innar á frið­helgi einka­lífs. Því til stuðn­ings var vísað til dóma­fram­kvæmdar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem fellt hefur rétt­inn til nafns undir 8. gr. Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem er sam­hljóða íslenska stjórn­ar­skrár­á­kvæð­inu. Þannig virð­ist sem dóm­stólar telji að réttur til nafns verði aðeins tak­mark­aður með sér­stakri laga­heim­ild ef brýna nauð­syn ber til vegna rétt­inda ann­arra, sbr. 3. mgr. 71. gr. stjórn­ar­skrár­innar og 2. mgr. 8. gr. Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Eiríkur tekur undir þessi sjón­ar­mið. „Nöfn eru til­finn­inga­mál og nafn­réttur manna ríkur, eins og stað­fest er með ýmsum dómum, bæði frá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, Héraðs­dómi Reykja­víkur o.fl., og með vísun til t.d. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og stjórn­ar­skrár Íslands. Ríkar ástæður verða að vera til þess að sá réttur sé skertur,“ skrifar hann. 

Gildandi lög feli í sér mannréttindabrot

„Nið­ur­staða mín er þessi: Engin ástæða er til að ætla að íslenskri tungu stafi hætta af þeim breyt­ingum sem fel­ast í hinum nýju frum­varps­drögum. Erlend manna­nöfn eiga nú þegar greiða leið inn í málið og ekki hefur verið sýnt fram á að þau hafi valdið mál­spjöllum. Kenning til föður og móður er vissu­lega hluti íslensks menn­ing­ar­arfs en ætt­ar­nöfn eru samt ekk­ert síður hluti íslenskrar tungu en föður- og móð­ur­nöfn. Ekkert liggur fyrir um það að kenn­ing til föður og móður hverfi á stuttum tíma þótt ætt­ar­nöfn verði almennt leyfð.

Hin nýju frum­varps­drög eru veru­leg rétt­ar­bót og afnema þá mis­munun sem felst í gild­andi lögum og er í raun mann­rétt­inda­brot. Þó þarf að end­ur­skoða nokkur ákvæði drag­anna og skýra önnur betur.“ Hér má lesa umsögn Eiríks Rögn­valds­sonar í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Íslensk tunga

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár