„Óska Íslendingum til hamingju með hann“

Sigurður Ingi Jóhanns­son er for­sæt­is­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son óskar þjóð­inni til ham­ingju með hann. Mis­skiln­ingur varð í Alþing­is­hús­inu í sam­skiptum við fjöl­miðla.

„Óska Íslendingum til hamingju með hann“
Sigurður Ingi Jóhanns­son Nýr for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

„Næsti for­sæt­is­ráð­herra er traustur og góður maður og það er ástæða til að óska Íslend­ingum til ham­ingju með hann,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, í sam­tali við hóp frétta­manna í Alþing­is­hús­inu fyrir skemmstu. Hann sagði hins vegar ekki hver væri nýr for­sæt­is­ráð­herra. „Jæja, ég held að þið getið nú getið ykkur til um það. Mér finnst líka eðli­legt að á þessu kvöldi leyfi ég honum svo­lítið að eiga sviðið,“ sagði Sig­mundur, brosti og yfir­gaf svæðið.

Hösk­uldur Þór Þór­halls­son þing­maður kom næstur og sagði að Sigurður Ingi Jóhanns­son verði for­sæt­is­ráð­herra. Það var stað­fest síðar þegar Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi ræddu við fjöl­miðla.

Sigurður Ingi og Bjarni sögðu að ekki yrði gerður nýr mál­efna­samn­ingur heldur yrði haldið áfram með þau mál sem rík­is­stjórnin hafði á prjón­unum.

Viðtal fyrir mistök

Hösk­uldur hafði farið í við­tal hjá hópi fjöl­miðla­manna í Alþing­is­hús­inu fyrir mis­tök, en hann taldi að nýr for­sæt­is­ráð­herra hefði þegar stigið þar fram og sagð­ist ekki hafa ætlað sér í við­tal á undan honum.

„Mér skilst að það sé ekki búið að raða niður end­an­lega í ráð­herra­emb­ætti,“ sagði Hösk­uldur Þór og útskýrði svo að hann teldi að Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son hefðu þegar rætt við frétta­menn, en svo var ekki. „Ég bjóst reyndar við því að þeir væru búnir að taka við­tal. Ég bara var að rölta heim til mín, svo ég segi nú bara alveg hrein­skilið,“ sagði hann. „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur orðið fyrir skaða, eins og Sigurður Ingi nefndi í dag í fjöl­miðlum, en ég hélt og stóð í þeirri mein­ingu að sá sem mun taka við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu, von­andi, hefði nú þegar tekið við­tal og gekk þess vegna hérna reiðu­bú­inn að svara spurn­ingum.“

Hösk­uldur yfir­gaf því svæðið.

Mörgum spurn­ingum er því enn svarað varð­andi nýja rík­is­stjórn.

Samkvæmt svörum leið­toga stjórn­ar­and­stöð­unnar verður kosn­ingum flýtt. Stjórn­ar­and­staðan leggur engu að síður til þing­rof og kosn­ingar. „Þeir komu ekki með neinn lista yfir hvað þeir ætl­uðu að klára,“ sagði Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata.

Stundin fjall­aði um umdeildan feril Sigurðar Inga á ráð­herra­stóli í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár