Villa í kynningarefninu: 1,5 milljarðar en ekki 15 milljarðar á ári

Fram kom í kynn­ing­ar­efni rík­is­stjórn­ar­innar að árlegt tekju­tap hins opin­bera af aðgerðum í þágu ungra fast­eigna­kaup­enda yrðu 15 millj­arðar króna. Hið rétta er að aðgerð­irnar kosta 1,5 millj­arða á ári. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gagn­rýnir Stundina vegna máls­ins.

Villa í kynningarefninu: 1,5 milljarðar en ekki 15 milljarðar á ári

Árlegt tekju­tap hins opin­bera vegna skatt­frelsis sér­eign­ar­sparn­aðar er metið á 1,5 millj­arða króna en ekki 15 millj­arða eins og fram kom í kynn­ing­ar­efni sem birt­ist á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og Stundin greindi frá í dag. 

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, bendir á að aðgerð­irnar kosti ekki 15 millj­arða á ári heldur 1,5 millj­arða. Gagn­rýnir hann Stundina vegna máls­ins.

Jóhannes skrifar: 

Verð­launa­blaða­menn geta greini­lega hlaupið á sig eins og aðrir. Í frétt Stund­ar­innar af ‪#‎FyrstaFast­eign‬ segir rétti­lega að kostn­aður rík­is­ins sé met­inn 15 millj­arðar á TÍU ára tíma­bili - þ.e. um 1,5 ma. á ári x tíu ár. Jóhann Páll virð­ist hins vegar hafa séð þetta ein­hverjum ofsjónum því fyr­ir­sögnin segir kostn­að­inn vera 15 millj­arða á hverju ári... og að með því megi borga allt heil­brigð­is­kerfið í heild sinni. Það sem er hins vegar rétt, er að með úrræð­inu getur fólk lækkað greiðslu­byrði sína og heild­ar­greislur á láns­tíma hús­næð­is­láns um rúm­lega fjórð­ung, meira en 25%. Og það er alveg þess virði að ríkið gefi eftir 1500 millj­ónir í skatta á ári til þess.

Stundin vitn­aði í kynn­ing­ar­efni rík­is­stjórn­ar­innar þegar full­yrt var að úrræðin kost­uðu 15 millj­arða á ári. Í kynn­ing­ar­efn­inu stóð: „Árlegt tekju­tap hins opin­bera vegna skatt­frelsis sér­eign­ar­sparn­aðar er metið 15 millj­arðar króna á tíu árum í grunn­dæmi.“ Að sögn Sigurðar Más Jóns­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, var um villu í kynn­ing­ar­efn­inu að ræða. Ummæli Jóhann­esar um að Stundin hafi greint frá því að með sams konar upp­hæð mætti „borga allt heil­brigð­is­kerfið í heild sinni“ eru ekki rétt. Í frétt var hins vegar minnst á áætl­aðan kostnað við að fella niður greiðslu­þátt­töku sjúk­linga í heil­brigð­is­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár