Ættum að líta til Noregs við úthlutun makrílkvóta

Norðmenn eyrna­merkja strand­veiði­bátum allt að tutt­ugu pró­sent mak­ríl­kvót­ans. Tryggja atvinnu á lands­byggð­inni og verð­mæt­ari afurðir. Lands­sam­band smá­báta­eig­enda mót­mælir frum­varpi ráð­herra.

Mak­ríl­frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur meðal ann­ars verið gagn­rýnt fyrir það hversu lítið hlut­fall mak­ríls­ins komi í hlut strand­veiði­báta, eða ein­ungis fimm pró­sent, nái frum­varpið fram að ganga. Hins vegar muni 82 pró­sent mak­ríl­kvót­ans koma í hlut tíu stór­út­gerð­ar­manna. Bent hefur verið á að í Noregi sem dæmi sé allt að tutt­ugu pró­sent mak­ríl­kvót­ans eyrna­merkt strand­veiði­flot­anum, bæði til þess að tryggja atvinnu í dreifðum byggðum lands­ins og til þess að auka verð­mæti afl­ans. Örn Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, segir að Íslend­ingar hefðu átt að líta til Norð­manna við mótun frum­varps­ins og þá gagn­rýnir hann harð­lega að ekki hafi verið haft sam­ráð við félagið í ferl­inu. 

Verðmætari afli og augljós byggðasjónarmið

Örn Pálsson
Örn Pálsson Segir byggða­sjón­ar­miðin aug­ljós því strand­veiðar á mak­ríl geti verið lyfti­stöng.

„Norðmenn hefja til dæmis ekki veið­arnar fyrr en mak­ríll­inn hefur náð ákveð­inni stærð og fitu­pró­sentu, svo þeir veiða nán­ast ein­göngu verð­mætasta mak­ríl­inn,“ segir Örn. Hann bendir á að mak­ríll veiddur á króka sé mun verð­mæt­ari og vand­aðri afurð en sú sem veidd er á önnur veið­ar­færi. Fisk­ur­inn sé snögg­kældur og komi til vinnslu sam­dæg­urs. Þá séu veið­arnar að auki mun vist­vænni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Makrílmálið

ÚttektMakrílmálið

Íslenska ríkið gefur stór­útgerðum og lax­eldis­fyr­ir­tækjum kvóta fyrir 250 millj­arða

Íslenskir útgerð­ar­menn eins og Þor­steinn Már Bald­vins­son, Guð­mundur Krist­jáns­son og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir hafa fengið mak­ríl­kvóta upp á millj­arða króna frá íslenska rík­inu. Eigendum íslenskra lax­ed­is­fyr­ir­tækja er sömu­leiðis úthlutað lax­eld­isk­vótum sem greiða þarf tugi millj­arða fyrir í Noregi.

16 mín. lestur

FréttirMakrílmálið

Stjórn­ar­flokk­arnir fengu millj­ónir frá útgerð­ar­fé­lögum sem þeir ætl­uðu að gefa mak­ríl­kvóta

HB Grandi, Samherji, Ísfélag Vest­manna­eyja, Vinnslu­stöðin og Síld­ar­vinnslan styrktu Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn um 3,4 millj­ónir sama ár og Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði fram hið umdeilda mak­ríl­frum­varp sem gerði ráð fyrir að umrædd fyr­ir­tæki fengju helm­ing kvót­ans úthlut­aðan til 6 ára.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár