Íslenska ríkið gefur stór­útgerðum og lax­eldis­fyrirtækjum kvóta fyrir 250 milljarða

Íslenskir útgerð­ar­menn eins og Þor­steinn Már Bald­vins­son, Guð­mundur Krist­jáns­son og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir hafa fengið mak­ríl­kvóta upp á millj­arða króna frá íslenska rík­inu. Eigendum íslenskra lax­ed­is­fyr­ir­tækja er sömu­leiðis úthlutað lax­eld­isk­vótum sem greiða þarf tugi millj­arða fyrir í Noregi.

Íslenska ríkið gefur stór­útgerðum og lax­eldis­fyrirtækjum kvóta fyrir 250 milljarða

Sam­an­lagt áætlað verð­mæti þess mak­ríl­kvóta sem íslenska ríkið hefur gefið 13 stór­út­gerðum á Íslandi með kvóta­setn­ingu á mak­ríl og þess fram­leiðslu­kvóta í lax­eldi sem fjögur íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki hafa fengið aðgang að án end­ur­gjalds til rík­is­ins er um rúm­lega 250 millj­arðar króna. Áætlað verð­mæti mak­ríl­kvót­ans sem þessar 13 útgerðir hafa fengið afhentan er tæp­lega 84 millj­arðar króna miðað við lík­legt sölu­verð á mak­ríl­kvóta á mark­aði og þau 65 þús­und tonna fram­leiðslu­leyfi sem íslensku lax­eld­is­fyr­ir­tækin hafa yfir að ráða hefðu verið seld fyrir um 169 millj­arð króna í Noregi ef miðað er við með­al­verð á lax­eld­isk­vóta í síð­asta upp­boði sem norska ríkið stóð fyrir.

Verð­matið á kvót­anum byggir á ætl­uðu verð­mæti mak­ríl­kvót­ans á mark­aði á Íslandi, út frá upp­lausn­ar­verð­mæti þorsk­kvóta, og því með­al­verði sem norsk eld­is­fyr­ir­tæki greiddu fyrir ný fram­leiðslu­leyfi á laxi í sjó­kvíum við Nor­egs­strendur sum­arið 2018.

Þetta gjald sem …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Makrílmálið

Fréttir

Stjórn­ar­flokk­arnir fengu millj­ónir frá útgerð­ar­fé­lögum sem þeir ætl­uðu að gefa mak­ríl­kvóta

HB Grandi, Samherji, Ísfélag Vest­manna­eyja, Vinnslu­stöðin og Síld­ar­vinnslan styrktu Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn um 3,4 millj­ónir sama ár og Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði fram hið umdeilda mak­ríl­frum­varp sem gerði ráð fyrir að umrædd fyr­ir­tæki fengju helm­ing kvót­ans úthlut­aðan til 6 ára.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu