Smálánafyrirtæki hvetja fólk til að taka kostnaðarsöm lán í smáskilaboðum

Fyrir­tækin Hrað­peningar og Múla senda einstak­lingum, sem aldrei hafa nýtt sér þjónustu fyrir­tækisins áður, smáskilaboð þar sem þeir eru hvattir til að taka 20 þúsund króna smálán sem þeir fá greidd inn á reikning sinn með því að senda smáskilaboð. Smálánin bera 3.333 prósent vexti.

Hraðpeningar
Hrað­pen­ingar Segjast veita lán með því að kaupa raf­bók.

Smálána­fyrirtækin Múla og Hrað­peningar sendu út smásmáskilaboð til fjölda einstaklinga þar sem þau hvetja þá til þess að taka 20 þúsund króna lán til 30 daga, án þess að tilgreina hver lántöku­kostnaður sé.

Fyrir­tækin eru hluti af fimm smálána­fyrirtækjum í eigu E-content sem Neytenda­stofa hefur ítrekað gert athuga­semdir við og sektaði á seinasta ári um samtals 3,9 milljónir fyrir að krefja viðskipta­vini sína um margfalt hærri lántöku­kostnað en heimilt var samkvæmt lögum um neytendalán. 

Smáskilaboð frá Hraðpeningum
Smáskilaboð frá Hrað­peningum Þar er Ágústi boðið að taka smálán og að eiga góðan dag.

„lan í bankanum er of flókið?“

Hinn 21 árs gamli Ágúst Örn Ingason var einn þeirra sem fékk skilaboð send frá Hrað­peningum en hann stað­festir að hafa aldrei átt í viðskipti við fyrir­tækið áður. „Agust, vantar thig pening og lan í bankanum er of flókið? Hafðu tha samband við okkur. Svaradu thessu sms med textanum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár