Guðmundur Árni óskar eftir viðræðum um myndun nýs meirihluta með Framsókn

Samfylkingin bætti við sig um níu prósentu­stigum af fylgi í Hafnar­firði og er nú með jafn marga bæjar­fulltrúa og Sjálfstæðis­flokkur, sem tapaði einum. Framsókn er samt með öll tromp á hendi og getur valið með hvorum flokknum myndaður verður meirihluti.

Guðmundur Árni Stef­ánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnar­firði, hefur haft samband við Valdimar Víðisson, oddvita Framsóknar­flokksins í sveitar­félaginu, og óskað eftir viðræðum um myndun nýs meirihluta flokkanna tveggja þar.

Frá þessu greinir Guðmundur Árni í stöðu­uppfærslu sem hann setti á Facebook í gær, en Samfylkingin jók fylgi sitt í Hafnar­firði verulega í kosningunum á laugardag, fékk 29 prósent atkvæða í stað 20,1 prósent árið 2018 og fjóra bæjar­fulltrúa í stað þeirra tveggja sem flokkurinn hafði áður. Framsókn bætti líka við sig fylgi og manni, fékk 13,7 prósent atkvæða í stað átta prósenta árið 2018 og tvo menn í ellefu manna bæjar­stjórn. Sjálfstæðis­flokkurinn, sem myndar núverandi meirihluta með Framsókn, tapaði hins vegar þremur prósentu­stigum af fylgi og fékk 30,7 prósent atkvæða. Hann er enn stærsti flokkurinn í Hafnar­firði en nú með jafnmarga fulltrúa og Samfylkingin í stað þeirra fimm sem hann hafði áður. Rósa Guðbjarts­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins, er núverandi bæjar­stjóri í Hafnar­firði.

Fyrir liggur að Framsókn er í lykil­stöðu Í Hafnar­firði eins og víða annarsstaðar. Flokkurinn er í þeirri gamal­kunnu stöðu að geta valið að vinna til hægri með Sjálfstæðis­flokki eða á miðju eða til vinstri með öðrum. Í flestum tilvikum er hreinlega ekki möguleiki á stjórnar­mynstrum nema með aðkomu Fram­sóknar. Þannig er málum háttað í Hafnar­firði. Oddviti Fram­sóknar sagði á kosninga­nótt of snemmt að segja til um það hvort núverandi meirihluti flokksins með Sjálfstæðis­flokki myndi halda áfram.

Í stöðu­uppfærslu sinni í gærkvöldi segir Guðmundur Árni að fólkið hafi talað í kosningunum. „Í Hafnar­firði stimpluðum við jafnaðar­menn okkur rækilega inn og fengum fjóra bæjar­fulltrúa kjörna - tvöfölduðum tölu þeirra eins og markmiðið var. [...] Ég hef haft samband við oddvita Framsóknar­flokksins og óskað eftir viðræðum um myndun nýs meirihluta XS og XB í Hafnar­firði. En það eru flokkarnir sem sigruðu og voru kallaðir til verka, á meðan Sjálfstæðis­flokkurinn tapaði umtals­verðu fylgi. Við sjáum hvað setur. Það væri gott fyrir Hafnfirðinga að fá félags­hyggju­meirihluta í Fjörðinn. Við jafnaðar­menn erum nú sem fyrr tilbúnir í verkin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár