Milljónir Napólíbúa í hættu: Tvö risaeldgos á leiðinni?

Illugi Jök­uls­son gerði sér ekki grein fyrir því að við hlið­ina á Vesúvíusi væri önnur enn stærri eld­stöð.

Gosið í Vesúvíusi.
Gosið í Vesúvíusi. Málverk eftir Pierre Jacques Volaire.

Mér skilst það sé fal­legt við Napólí-flóa.

Þar hafa líka margir kosið að setj­ast að. Í Napólí-borg býr um ein milljón manna en í allra næsta nágrenni um tvær og hálf til við­bótar. Þá má alltaf gera ráð fyrir að í borg­inni og bæj­unum við fló­ann sé á hverjum tíma staddur ótölu­legur grúi af ferða­mönnum.

Sann­leik­ur­inn mun vera sá að allt þetta fólk er í lífs­hættu.

Og ógnin kemur ekki frá mafí­unni sem þó leikur þarna lausum hala, heldur úr iðrum jarðar.

Við fló­ann er ekki bara eitt, heldur tvö ógn­ar­leg eld­fjöll, sem geta víst gosið nán­ast á hverri stundu.

Og þá verður um sinn ekki fal­legt við Napólí-flóa.

Ég sá um dag­inn fyr­ir­sögn á erlendri vef­síðu þar sem stóð að ofur-eld­stöð í námunda við Napólí gæti farið að bæra á sér. Og hugs­aði, nú, er Vesúvíus eitt­hvað að ókyrr­ast?

En það var reyndar ekki átt við hinn fræga Vesúvíus, heldur annað fyr­ir­bæri sem líka stendur við Napólí-flóa og er í aðeins 20 kíló­metra fjar­lægð (loft­línu) frá Vesúvíusi.

Það var sem sé átt við Campi Flegrei.

Og Campi Flegrei er víst miklu, miklu hættu­legri eld­stöð en Vesúvíus.

Sem er nú ekki nein mein­leys­is­þúfa. Hann gróf borg­irnar Pompeii, Herculaneum og fleiri í ösku árið 79.

Campi Flegrei er reyndar ekki hægt að kalla „eld­fjall“ þótt eld­stöðin hafi hlaðið upp nokkrum smá­fjöllum gegnum tíð­ina. Þetta er „caldera“, askja eða kannski öllu heldur sig­ket­ill sem geymir svo­kall­aða „ofur-eld­stöð“.

Þær munu vera þeirrar nátt­úru flestar að í stað þess að gjósi endi­lega gjósi á afmörk­uðum stað eða sprungu, þá getur jarð­skorpan nán­ast flest af á stóru svæði og gos­efni vella þar upp víða eða hvar­vetna.

Yellowstone-þjóð­garð­ur­inn í Banda­ríkj­unum mun vera slíkt svæði og mun ein­hvern gjósa gríð­ar­legu gosi, sem fyr­ir­sjá­an­legt er að valdi stór­kost­legu tjóni.

Calderan Campi Flegrei er að stórum hluta neð­an­sjávar en telja má 24 gíga, fell og gos­s­töðvar af ýmsu tagi.

Síðast gaus þarna 1538. Þá hlóðst upp á átta dögum fjall sem nú er 458 metra hátt og fékk það frum­lega nafn Monte Nuovo.

Nýja fjall.

Þar gæti komið stórt gos. Miklu stærra en 1538.

Það getur gosið á einum stað, það gæti líka gosið á svæð­inu öllu.

Nánast eins og eld­stöðin rífi ofan af sér þunna húð jarð­skorpunnar.

Vissu­lega eru þekkt eld­gos í Campi Flegrei ekki talin í hópi allra, allra stærstu eld­gosa í jarð­sög­unni.

Þau stærstu telj­ast vera í átt­unda flokki en stærsta gos sem vitað er um í Campi Flegrei er reyndar í þeim sjö­unda.

Það átti sér stað fyrir 39.000 árum og ruddi frá sér 200 rúm­kíló­metrum gos­efna. 

Gosmagnið sem kom upp í Laga­gígum var 14 rúm­kíló­metrar.

Þar var að vísu fyrst og fremst um hraun að ræða, en gosið í Campi Flegrei var eflaust að stærstum ösku­gos, svo magnið er vissu­lega ekki að öllu leyti sam­bæri­legt, en töl­urnar tala samt sínu máli.

Campi 200 - Laka­gígar 14.

Aska frá þessu gosi hefur fund­ist í Græn­lands­jökli.

Margir telja að þetta gos í Campi hafi valdið útrým­ingu Neand­er­dals­manns­ins í Evrópu.

Enda ljóst að veður hefur snar­kólnað við að fá allt þetta ösku­magn út í and­rúms­loftið.

Og einmitt um það leyti dóu Neand­er­dals­menn út.

Síðasta stóra gosið í Campi Flegrei varð fyrir 12.000 árum.

Það var ekki eins stórt og það sem varð fyrir 39.000 árum en ef það yrði nú á dögum, þegar allur þessi mann­fjöldi býr og sleikir sól­ina við Napólí-flóa, þá gæti það valdið ógn­ar­legu mann­tjóni.

Og nú telja vís­inda­menn sig sem­sagt sjá merki þess að Campi Flegrei gæti kosið hvenær sem er.

Eftir að fyrstu frétt­irnir af þessum spá­dómum bár­ust út, og fólk fór að hafa áhyggjur, þá drógu vís­inda­menn reyndar svo­lítið í land.

Gosið væri kannski ekki alveg yfir­vof­andi.

Og „hvenær sem er“ í munni jarð­fræð­inga hefur líka dálítið aðra merk­ingu en í munni okkar hinna.

Tíu ár? Fimmtíu? Þúsund ár? Fimm þús­und?

Hver veit? En ein­hvern tíma gýs Campi Flegrei að nýju, svo mikið mun vera víst.

Á vef­síðu jarð­vís­inda­manns á snærum tíma­rits­ins WIRED telur hann Campi Flegrei hættu­leg­ustu eld­stöð í heimi.

Hvorki meira né minna.

Og Vesúvíus er í fimmta sæti.

Menn vita nefni­lega heldur ekki nema hann gæti látið á sér kræla hvenær sem er.

Ég mundi ekki endi­lega kaupa mér sum­ar­bú­stað við Napólí-flóa.

Þótt þar sé víst fal­legt.

Campi Flegrei og Vesúvíus.Rauða táknið er yfir Monte Nuovo. Aðeins eru 20 kíló­metrar á milli eld­stöðv­anna. Það er því lík­ast sem höf­uð­borg­ar­búar á Íslandi væru með eitt risa­eld­fjall í Mos­fellsbæ og annað í Hafn­ar­firði.

 

 

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár