Sósíaldemókratar sækja í sig veðrið

Fliss á flóða­svæðum hefur að margra mati breytt kosninga­baráttunni í Þýska­landi mikið. Olaf Scholz leiðtogi Sósíal­demókrata er nú sá sem flestir vilja sjá sem næsta kanslara, samkvæmt skoðana­könnunum.

Olaf Scholz fjármálaráðherra Þýskalands og leiðtogi Sósíaldemókrata.
Olaf Scholz fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands og leið­togi Sós­í­alde­mókrata. Mynd: EPA

Mikil spenna er hlaupin í kosninga­baráttuna í Þýska­landi, en þar fara fram þing­kosningar 26. september, degi eftir að Íslendingar ganga að kjör­borðinu. Á síðustu vikum hefur flokkur Sósíal­demókrata sótt í sig veðrið og mælist leiðtogi flokksins, Olaf Scholz, nú trekk í trekk sá sem Þjóð­verjar vilja helst sjá sem eftirmann Angelu Merkel, sem kanslari Þýska­lands.

Bandalags­flokkur Kristilegra demókrata mælist þó enn með forskot á Sósíal­demókrata í skoðana­könnunum á landsvísu og þar á eftir koma Græningjar, sem voru á miklu flugi í fyrr í sumar og mældust um hríð með mest fylgi í skoðana­könnunum.

Lítið skilur flokkanna að, í síðustu könnunum. Kristilegir demó­kratar, flokkur Merkel, sem hefur haldið um stjórnar­taumana í Þýska­landi umliðin 16 ár, mælist þó stærstur og er að mælast með um 23-25 prósenta fylgi í nýlegum könnunum.

Sósíal­demókratar Scholz, sem er fjármála­ráðherra í ríkis­stjórn Merkel, hafa sótt verulega í sig veðrið og mælast nú með rúmlega tuttugu prósenta fylgi. Græningjar koma svo í kjölfarið og hafa verið að mælast með með um 18-20 prósenta fylgi á undan­förnum vikum. Þetta er því þriggja turna tal.

Stjórnmála­skýrendur í Þýska­landi og víðar telja margir að fylgistap Kristilegra demókrata undan­farnar vikur megi að mestu rekja til þess að æ færri sjá fyrir sér að kanslara­efni flokksins, Armin Laschet, sé verðugur eftir­maður Merkel á kanslara­stóli.

Flissandi á flóðasvæðum

Stjórnmála­umhverfið í Þýska­landi er kvikt um þessar mundir og miklar sveiflur hafa verið á fylgi stærstu flokkanna undan­farin misseri.

Kjósendur fylktu sér að baki Kristilegra demókrata í upphafi kórónu­veiru­faraldursins, er samstaða var um aðgerðir sem heftu mannlífið, en verulega hallaði undan fæti hjá flokknum þegar veiran fór á flug í Þýska­landi á vormánuðum og grípa þurfti til harðra aðgerða á ný til að bæla smit­bylgjuna niður.

Þá nutu Græningjar góðs af þessum sveiflum, en fylgis­aukning þeirra hefur gengið til baka að miklu leyti.

Á allra síðustu vikum hafa Kristilegir demó­kratar svo misst mikið fylgi og margir tengja það við viðbrögð Armins Laschet, leiðtoga flokksins, við flóðunum mannskæðu í vestur­hluta landsins fyrr í mánuðinum.

Hann þótti sýna léttúð við þær alvarlegu aðstæður sem þar voru uppi – og myndband sem sýndi hann hlæja á meðan forseti landsins, Frank-Walter Steinmeier, hélt ávarp á flóða­svæðunum, fór hreint ekki vel í þýskan almenning.

Reglulega eru framkvæmdar skoðana­kannanir um afstöðu þýskra kjósenda til þeirra þriggja sem hafa verið útnefnd sem kanslara­efni stærstu flokkanna. Þar hefur Olaf Scholz vinninginn sem stendur og mælist með gott forskot á bæði Laschet og Önnulenu Baerbock, kanslara­efni Græningja.

Það sem ef til vill stendur upp úr í nýlegum skoðana­könnunum um kanslara­efnin er það að valmöguleikinn „ekkert þeirra“ er nær alltaf sá vinsælasti – og slagar hlutfall þeirra sem segjast ekki vilja sjá Scholz, Laschet né Baerbock á kanslara­stóli gjarnan yfir 50 prósent í nýlegum könnunum.

Það sem ef til vill markar helst kosninga­baráttuna í Þýska­landi er því að mati margra það að enginn sér fyrir sér að skór Angelu Merkel verðir fylltir að fullu, en eftir 16 ár í kanslara­embætti og hlutverki hálf­gerðrar lands­móður lá reyndar fyrir að það yrði ávallt erfitt.

Merkel sjálf hefur stigið fram til stuðnings Laschet, á kosninga­fundi í höfuð­borginni Berlín. Hún sagðist algjör­lega sannfærð um að Kristilegi demó­kratinn væri með réttu viðhorfin til að geta orðið þýsku þjóðinni góður kanslari. Hvort yfir­lýsingar Merkel muni sannfæra þýska kjósendur á þó eftir að koma í ljós – enn er rúmur mánuður til kosninga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár