Amazon Go verslunin opnuð almenningi - Byltingarkennd ný tækni

Engir búðar­kassar. Fyllt er á hillurnar í búðunum sjálf­krafa með tölvu­stýrðum lagerum. Fólk fer inn, nær í vörurnar og gengur út. Viðskiptin fara fram sjálf­krafa í gegnum símann.

Eftir fjórtán mánaða prufutíma, þar sem aðeins starfs­menn Amazon máttu versla, hefur hin byltingar­kennda nýja Amazon Go verslun fyrir­tækisins verið opnuð almenningi í Seattle í Banda­ríkjunum, þar sem höfuð­stöðvar fyrir­tækisins eru.

Nú getur fólkið verslað í búðinni án þess að nokkur búðar­kassi sé sjáanlegur eða neitt slíkt. Fólk gengur inn, skannar símann og velur síðan vörurnar sem það vill, og gengur út.

Viðskiptin fara fram í gegnum Amazon svæði notenda í símanum.

Amazon tilkynnti um tæknina fyrir fjórtán mánuðum, og opnaði þá verslun innan starfs­svæðis Amazon í Seattle en einungis starfs­menn gátu þó verslað í búðinni.

Hefur prufun á búnaðinum í búðinni verið í gangi síðan, en flókinn hugbúnaður, sem meðal annars vinnur með mynda­vélum og skynjurum í lofti búðarinnar, gerir fólki það mögulegt að versla með þessum hætti.

Amazon er með einka­leyfi á notkun þessa búnaðar, og gera grein­endur ráð fyrir því að fyrir­tækið muni setja upp mikinn fjölda verslana, vítt og breitt um Banda­ríkin á næstunni, og síðan víðar um heim þar á eftir. Engin áform hafa þó verið kynnt um það, og mikil leynd sem hefur einkennt þróunina.

Verslunin mun ekki þurfa starfs­fólk á kassa, en Amazon hefur gefið það út að tæknin auki áreiðanleika í viðskiptum, geri verslanir öruggari og hagkvæmari.

Lager verslunarinnar í Seattle er tölvu­stýrður og að mestu sjálf­virkur, þegar kemur að því að skipta út vörum og fylla á hillur.

Í umfjöllun New York Times, þar sem blaða­maður blaðsins heimsótti verslunina, kemur fram að ekki sé ljóst enn hvað Amazon hyggist gera nákvæmlega, með þennan búnað. Orðrómur hafi verið um það, að Whole Foods verslanirnar, sem eru í eigu Amazon, muni taka upp búnaðinn en fyrir­tækið hefur ekki staðfest það.

Þá hefur þá einnig verið nefnt, að Amazon ætli sér að selja öðrum verslunar­rekendum búnaðinn til afnota, í sínum verslunum, og hafa þannig tekjur af hugbúnaðinum sérstak­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár