Ráðherra tekur þátt í kynningu á þjónustu Hreyfingar með eiginkonu utanríkisráðherra

Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningar­mála­ráðherra, prófar líkams­mælingar­tækni Hreyfingar í umfjöllun Smart­lands þar sem Ágústa Johnson, framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins og eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar, kynnir þjónustuna.

Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningar­mála­ráðherra, tekur þátt í kynningu á tækninni Boditrax sem fjallað er um á vef Smart­lands. Ágústa Johnson, framkvæmda­stjóri Hreyfingar og eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar utan­ríkis­ráðherra, kynnir tæknina og Kristján Þór prófar hana í umfjölluninni sem er auglýsingu líkust. Um er að ræða tækni sem Hreyfingin tók nýlega í notkun.

Greinin hefst með stuttri kynningu Ágústu á Boditrax-tækninni. „Boditrax er háþróuð tækni sem mæl­ir sam­setn­ingu lík­am­ans og er notað af mörg­um virt­um heilsu­stofn­un­um víða um heim. Með 30 sek­úndna prófi færðu niður­stöður um marga mis­mun­andi þætti sem gefa mik­il­væg­ar upp­lýs­ing­ar um vöðva­massa, fitu, vatns­magn, grunn­brennslu og innri fitu. Tækið not­ar svo töl­fræði til að meta ástand þitt miðað við hæð, þyngd, ald­ur og gef­ur þér upp líf­fræðileg­an ald­ur,“ er haft eftir henni. 

Í annarri grein á vef Smart­lands er tekið viðtal við Brynjar Níelsson, formann stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, sem einnig prófaði Boditrax-tæknina og lýsir því hvernig hann ætlar að taka sig á, hreyfa sig og borða hollari á mat.

Á meðal þeirra sem vekja athygli á umfjölluninni á Facebook er Guðlaugur Þór Þórðarson, utan­ríkis­ráðherra og eigin­maður Ágústu Johnson. 

Stundin sendi Mörtu Maríu Jónasdóttur, ritstjóra Smart­lands, tölvupóst og spurði hvort grein­arnar væru kostað kynningar­efni. „Þetta er hefð­bundið lífs­stílsefni, ekki kostað,“ svaraði hún.

Í Banda­ríkjunum hafa Donald Trump og ráðgjafi hans, Kellyanne Conway, sætt harðri gagnrýni fyrir að notfæra sér fjölmiðla­athyglina sem þau fá vegna stöðu sinnar til að kynna vörur Ivönku Trump, dóttur Bandaríkja­forseta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár