Jakob Frímann: „Það hefur ósjaldan gustað um Jón Baldvin Hannibalsson“

Jakob Frímann Magn­ús­son Stuð­maður óskar Jóni Baldvini Hanni­bals­syni til ham­ingju með afmælið og segir hann í eðli sínu „frið­ar­ins mann“.

Mærir vin sinn
Mærir vin sinn Jakob Frímann Magn­ús­son lofar vin sinn Jón Baldvin Hanni­bals­son með slíkum hætti í grein í Morg­un­blað­inu að stappar nærri oflofi.

„Það hefur ósjaldan gustað um Jón Baldvin Hanni­bals­son og senni­lega aldrei sem nú. Í eðli sínu er Jón þó frið­ar­ins maður. Enginn þó FriðJón.“

Þetta skrifar Jakob Frímann Magn­ús­son tón­list­ar­maður í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Tilefnið er átt­ræð­is­af­mæli Jóns Baldvins. Í grein­inni eys Jakob Jón Baldvin lofi fyrir stjórn­mála­feril hans, orð­færi og mann­kosti.

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­lega áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook.

„Með ein­stöku íslensku orð­færi mælir hann jafnan óhræddur og tæpitungu­laust. Eftir hann liggja ótal snjallar rit­gerðir, greinar og bækur. Að minnsta kosti tveggja nýrra rit­verka eftir hann er að vænta á þessu ári,“ skrifar Jakob Frímann og vísar þar meðal ann­ars til vænt­an­legrar bókar Jóns Baldvins „Vörn fyrir æru – hvernig fámennur hópur öfga­fem­inista hefur sagt rétt­ar­rík­inu stríð á hendur“. Fjallar sú bók um ásak­anir kvenn­anna.

„Þótt ekki sé vitað með vissu hvar okkar maður kýs að halda til á stóraf­mæl­inu, mætti vel ímynda sér hann ganga íhug­ulan á vit Íslands­strætis í Litháen eða orna sér að kveldi við Íslands­torg í Tallinn þar sem þegn­arnir kunna vel að meta dýr­mætt fram­lag hans til sjálf­stæð­is­bar­áttu Eist­lands, Lett­lands og Litháen,“ skrifar Jakob Frímann í lok grein­ar­innar. „Ég óska afmæl­is­barn­inu – og fjöl­skyldu þess allri – friðar og vel­farn­aðar á merkum tíma­mótum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár