„Top-topskat“, stytting háskólanáms og venjulegur vinnudagur á kóngsbænadegi

Ný dönsk rík­is­stjórn ætlar að fjölga tekju­skatts­þrep­unum úr tveimur í fjögur, stytta þann tíma sem stúd­entar geta notið náms­styrkja og hækka laun ótil­greindra starfs­stétta hjá hinu opin­bera. 15 karlar og 8 konur eru í nýrri rík­is­stjórn Mette Frederik­sen.

Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja ganga til fundar við fjölmiðla í Kaupmannahöfn í gær.
Leið­togar stjórn­ar­flokk­anna þriggja ganga til fundar við fjöl­miðla í Kaup­manna­höfn í gær. Mynd: EPA

Eftir langar og strangar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður, á danskan mæli­kvarða, hefur ný rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, Venstre og Modera­terna verið kynnt til leiks. Um er að ræða meiri­hluta­stjórn, og er þetta í fyrsta sinn sem dönsk rík­is­stjórn hefur meiri­hluta þing­liðs­ins á bak við sig frá því að slík stjórn tók við völdum árið 1993.

Ráð­herra­list­inn var kynntur í morgun og kom hann ef til vill sumum á óvart. Mette Frederik­sen leið­togi jafn­að­ar­manna verður for­sæt­is­ráð­herra eins og vitað var, Lars Løkke Rasmus­sen for­maður Modera­terne verður utan­rík­is­ráð­herra en Jakob Ellemann-Jensen for­maður Venstre verður varn­ar­mála­ráð­herra auk þess að vera „vara-for­sæt­is­ráð­herra“.

Hið síð­ast­nefnda þótti óvænt, en fyr­ir­fram höfðu margir búist við því að Ellemann-Jensen fengi fjár­mála­ráðu­neytið í sinn hlut. Svo verður hins vegar ekki, og seg­ist Ellemann-Jensen ánægður með að taka að sér varn­ar­mála­ráðu­neytið. „Það er stríð í álf­unni, og her­inn í Danmörku er mik­il­væg­ari en hann hefur verið í mörg ár,“ sagði Ellemann-Jensen við DR, en miklar fjár­fest­ingar eru fyr­ir­hug­aðar í danska her­afl­anum.

Sós­í­alde­mókratar fá hins vegar fjár­mála­ráðu­neytið, og verður Nicolai Wammen því áfram fjár­mála­ráð­herra Dan­merkur en hann hefur verið í því emb­ætti frá 2019. Alls eru ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar 23 tals­ins og eru karlar 15 tals­ins en kon­urnar átta.

Sós­í­alde­mókratar eru í 11 emb­ættum, ráð­herrar Venstre eru 7 og Modera­terne eru með 5 ráð­herra í sínum röðum, þar af tvo sem eru utan­þings­ráð­herrar, þau Christina Egelund sem verður mennta- og rann­sókna­ráð­herra og Lars Aagaard, fyrr­ver­andi for­stjóri Dansk Energi, sem verður ráð­herra lofts­lags-, orku- og veitu­mála­ráð­herra.

Helgidagur hverfur og styttri námsstyrkir

Þrátt fyrir að ráð­herrakap­all­inn hafi ekki orðið ljós fyrr en í morgun var stjórn­ar­sátt­mál­inn kynntur í gær. Þar kennir ýmissa grasa, meðal ann­ars á að afnema einn almennan frí­dag, kóngs­bæna­dag, sem er fjórða föstu­dag­inn eftir páska. Hann verður almennur frí­dagur 5. maí á næsta ári, en síðan aldrei aftur. Þess má til gam­ans geta að Alþingi afnam þennan dag sem helgi­dag á Íslandi árið 1893.

Nýja rík­is­stjórnin ætlar líka í nokkrar breyt­ingar á mennta­kerf­inu. Í háskólum lands­ins á að stytta helm­ings alls meist­ara­náms niður í eitt ár í stað þess að slíkt nám taki tvö ár. Samhliða verður skorið niður í náms­styrkja­kerf­inu, SU, og verður ein­ungis mögu­legt fyrir stúd­enta að hljóta SU í fimm ár, í stað þeirra sex ára sem nú eru í boði.

Á móti á að leggja meira fé í iðn­menntun en nú er gert og auka vægi hennar innan danska mennta­kerf­is­ins.

Danska stjórnin ætlar að upp­færa lofts­lags­mark­mið sín, og stefnir nú á að Danmörk verði kolefn­is­hlut­laus árið 2045, en ekki 2050 eins og áður var stefnt að.

Nýtt millitekjuþrep og topp-toppskattur

Einnig verður farið í all­nokkrar breyt­ingar á skatt­kerf­inu, sem lykta mjög af mála­miðl­unum yfir miðj­una.

Skattar eru lækk­aðir á lág­tekju­fólk og upp launa­stig­ann, með almennri hækkun per­sónu­af­sláttar, en að sama skapi verða mörk núver­andi hátekju­skatts (d. topskat) hækkuð og nýju milli­skatt­þrepi, sem kalla mætti lág-hátekju­þrep, skotið inn. Það skilar sér í nokkrum skatta­lækk­unum fyrir fólk sem er í efri þrepum launa­stig­ans.

Nú munu ein­ungis þeir sem eru með yfir 750.000 danskar í árs­laun, jafn­virði 15,2 millj­óna króna íslenskra, þurfa að greiða eitt­hvað í „toppskatt­inn“, en í dag nær þetta skatt­þrep til þeirra sem eru með yfir 618 þús­und danskar krónur í árs­laun.

Á móti kemur hins vegar nýr há-hátekju­skattur (d. top-topskat) sem ein­ungis leggst á þá sem hafa yfir 2,5 millj­ónir danskra króna, jafn­virði um 50 millj­óna íslenskra króna, í árs­laun.

Þessar breyt­ingar, allt í allt, hljóða upp á alls um 5 millj­arða danskra króna árlegar skatta­lækk­anir á danska borg­ara, jafn­virði um 100 millj­arða króna íslenskra.

Hærri laun fyrir einhverja opinbera starfsmenn

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum kemur fram að til standi að verja fé til þess að bæta kjör opin­berra starfs­stétta. Ekki kemur hins vegar fram hvaða stéttir eiga að fá sér­stakar launa­hækk­anir, en danskir fjöl­miðlar hafa flestir skreytt tíð­indi af þessum breyt­ingum með myndum af starfs­fólki í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Að hækka laun opin­berra starfs­stétta var eitt af kjarna­málum Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins í kosn­inga­bar­átt­unni, en fjár­magna á þessar breyt­ingar með því að draga saman seglin í stjórn­sýslu sveit­ar­fé­laga og hér­aða um landið.

Heilbrigðiskerfið í nefnd

Töluverð áhersla var á umræður um heil­brigð­is­kerfið í kosn­inga­bar­átt­unni í Danmörku. Lítil nið­ur­staða virð­ist þó hafa feng­ist í mála­flokk­inn í við­ræðum flokk­anna.

Ákveðið hefur verið að skipa heil­brigð­is­kerfi­ráð, sér­fræð­inga­nefnd sem á að skoða heil­brigð­is­kerfi Dan­merkur frá toppi til táar og skila inn til­lögum að breyt­ingum að betra og skil­virkara kerfi.

Áfram stefnt að því að útvista hælisleitendum

Minni­hluta­stjórn Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins var á síð­asta kjör­tíma­bili með fyr­ir­ætl­anir um að koma á fót „mót­töku­mið­stöð“ fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd í Afr­íku­rík­inu Rúanda, við litla kátínu sumra þeirra flokka á vinstri vængnum sem studdu minni­hluta­stjórn­ina falli.

Í nýja rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu er ekki hvikað frá áformum í þessa átt, en rík­is­stjórnin seg­ist nú vilja beita sér fyrir því að mið­stöð af þessu tagi, utan Evrópu, verði sett á fót í sam­starfi við önnur lönd eða af sjálfu Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár