Allt á suðupunkti í Bretlandi

Miklar svipt­ingar eru í breskum stjórn­málum og er staðan heldur betur farin að flækj­ast varð­andi Brexit. For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur sagt að hann vildi heldur vera „dauður úti í skurði“ en að fresta Brexit frekar. Hann telur frestun algjör­lega til­gangs­lausa.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Boris Johnsson hefur verið for­sæt­is­ráð­herra frá því 23. júlí síð­ast­lið­inn en á þessum stutta tíma hefur hann gengið í gegnum margt. Hann missti meiri­hlut­ann á þing­inu á þriðju­dag­inn síð­ast­lið­inn og neðri mál­stofa þings­ins sam­þykkti í gær að hann þyrfti að sækja um frestun á útgöng­unni til 31. jan­úar næst­kom­andi, en það var ekki sam­kvæmt óskum hans.

Johnson sagði í dag að hann vildi heldur vera „dauður úti í skurði“ en að fresta Brexit frekar. Hann telur frestun algjör­lega til­gangs­lausa. Hann lagði til í gær­kvöld að boðað yrði til þing­kosn­inga þann 15. októ­ber næst­kom­andi áður en Bretar eiga að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þingið hafn­aði til­lög­unni.

Reynir aftur eftir helgi

For­sæt­is­ráð­herr­ann ætlar að reyna aftur á mánu­dag að fá þingið til að sam­þykkja til­lögu um þing­kosn­ingar í októ­ber. Neðri mál­stofa breska þings­ins sam­þykkti í gær að hafi samn­ingar um útgöng­una ekki náðst fyrir 18. októ­ber, beri for­sæt­is­ráð­herr­anum að fara til Brussel og semja um seinkun á útgöng­unni til 31. jan­úar næst­kom­andi. Þannig vildu þing­menn tryggja að ekki verði gengið úr ESB án samn­ings.

Verka­manna­flokk­ur­inn hefur ekki viljað sam­þykkja þing­kosn­ingar, þar sem þing­menn flokks­ins ótt­ast að þeim verði seinkað fram yfir útgöngu­dag­inn, sem áætl­aður er 31. októ­ber og að Bretland gangi þá úr ESB án samn­ings.

Afstaða Johnson hefur verið skýr. Hann hefur sagt að náist ekki samn­ingar fyrir 31. októ­ber sé best að ganga úr sam­band­inu án samn­ings. Hann gagn­rýndi Corbyn harð­lega í gær fyrir að styðja ekki til­lögu um þing­kosn­ingar og sagði að ef hann yrði for­sæt­is­ráð­herra myndi hann grát­biðja leið­toga ESB um frestun og að lík­lega yrði útgöng­unni frestað um mörg ár undir hans stjórn.

Fleiri póli­tískar ófarir hafa þó dunið yfir. Phillip Lee, þing­maður Íhalds­flokks­ins, gekk í fyrra­dag til liðs við Frjáls­lynda demókrata í stjórn­ar­and­stöð­unni. Það hafði þær afleið­ingar að Johnson hafði ekki lengur meiri­hluta á breska þing­inu. Lee sagði í yfir­lýs­ingu að hann teldi leið­ina sem rík­is­stjórn Johnson hefði valið í Brexit vera skað­lega.

Ekki allir á eitt sáttir í Verkamannaflokknum

John McDonnell, einn af for­ystu­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar, sagði að Verka­manna­flokk­ur­inn vildi kosn­ingar en að for­gangs­mál þeirra væri að koma í veg fyrir útgöngu úr ESB án samn­ings.

Hann gekkst jafn­framt við því að innan flokks­ins væru ekki allir á eitt sáttir um æski­lega tíma­setn­ingu þing­kosn­inga og bætti því við að for­ystan væri að ráð­færa sig við lög­fróða ein­stak­linga og stjórn­ar­and­stöðu­flokka varð­andi hvað væri best að gera. Í þætt­inum BBC Break­fast sagði McDonnell að honum þætti betra að halda kosn­ingar „fyrr en síðar.“

Corbyn tjáði sig á Twitter í gær og sagði að þegar Brexit án samn­ings væri út af borð­inu í eitt skipti fyrir öll þá ætti þingið að leita umboðs fólks­ins svo hægt væri að ákveða fram­tíð lands­ins. 

Bróðir Borisar hættir

Töluvert var fjallað um bróðir for­sæt­is­ráð­herr­ans í breskum fjöl­miðlum í dag en Jo Johnson til­kynnti í morgun að hann segði af sér sem ráð­herra og þing­maður Íhalds­flokks­ins.

Frá þessu greindi hann á Twitter-síðu sinni en þar sagði hann að þjóð­ar­hags­munir og per­sónu­legir hags­munir hefðu skar­ast.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Jo Johnson hættir í rík­is­stjórn vegna Brexit en hann sagði af sér sem sam­göngu­ráð­herra í rík­is­stjórn Theresu May í nóv­em­ber síð­ast­liðnum því hann studdi ekki útgöngu­samn­ing hennar.

Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um útgöngu árið 2016 greiddi Johnson atkvæði með áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB en hann er tölu­vert hall­ari undir Evr­ópu­sam­bandið en bróðir sinn.

Dóttursonur Churchills rekinn úr flokknum

Þingmenn breska Íhalds­flokks­ins greiddu síðan í fyrra­kvöld atkvæði gegn Johnson í þing­inu til að stöðva útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings en til­lagan sem breska þingið sam­þykkti með 27 atkvæða mun gaf þverpóli­tískum hópi þing­manna dag­skrár­vald í þing­inu. Alls greiddi 21 þing­maður Íhalds­flokks­ins atkvæði með til­lög­unni þrátt fyrir að Johnson hefði hótað þeim brott­rekstri úr þing­flokknum. Atkvæða­greiðslan var sú fyrsta í þing­inu eftir að Johnson tók við emb­ætti.

Einn af þeim sem var rek­inn úr Íhalds­flokknum í fyrra­dag var Nicholas Soames, afa­barn Winston Churchills sem var for­sæt­is­ráð­herra í seinni heims­styrj­öld og aftur nokkrum árum síðar.

Sitt sýnist hverjum

Þegar fjöl­miðlar eru skoð­aðir í Bret­landi þá má glögg­lega sjá mis­mun­andi áherslur í umfjöllun þeirra. Sumir miðlar kalla Corby kjúkling fyrir að „þora ekki“ í kosn­ingar og aðrir telja Johnson vera búinn að mála sig út í horn með fram­ferði sínu og aðgerðum.

En hvað sem því líður má búast við áfram­hald­andi svipt­ingum í breskum stjórn­málum á meðan stjórn­mála­fólk finnur út úr því hvernig það ætlar að leysa úr flækjum tengdum Brexit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár