Vinnumálastofnun birtir lista yfir hluta þeirra fyrirtækja sem nýttu hlutabótaleiðina

Búið er að birta lista yfir öll þau fyrirtæki sem settu sex eða fleiri starfs­menn á hluta­bótaleiðina svökölluðu. Hægt er að lesa listann í heild sinni hér.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Vinnumála­stofnun hefur birt lista yfir þau fyrir­tækið sem nýttu hluta­bótaleiðina, en listinn er takmarkaður við þau fyrirtæki sem settu sex starfs­menn eða fleiri á hana. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að með þeim hætti sé orðið við þeirri „kröfu með fullnægjandi hætti, að birta upplýsingar um og veita aðhald með ráðstöfun á opinberu fé, tryggja gagnsæja stjórn­sýslu, gæta almannahags­muna og tryggja um leið að persónu­vernduð réttindi einstaklinga.“

Alls staðfestu 2.950 fyrirtæki samkomulag um að setja einn starfs­mann á hluta­bótaleiðina, 1.138 settu tvo starfs­menn, 568 þrjá starfs­menn og 372 fyrirtæki settu fjóra starfs­menn á leiðina. Þá settu alls 245 fyrirtæki fimm starfs­menn á hluta­bætur.

Á vef Vinnumála­stofnunar segir það ákall sem verið hefur um birtingu listans, sem hefur komið bæði frá almenningi og stjórn­málamönnum, sé skiljanlegt þar sem miklir efnahags­legir hagsmunir séu í húfi. Viðbúið er að hluta­bótaleiðin muni kosta skatt­greiðendur nokkra tugi milljarða króna.

Vinnumála­stofnun bendir þó á að með því að birta upplýsingar yfir öll fyrirtæki sem hafa staðfest samkomulag um minnkað starfs­hlutfall hjá starfs­fólki sínu, kunni hún um leið að vera að upplýsa um þá einstaklinga sem hafa sótt um greiðslur atvinnu­leysis­trygginga. „Hér vegast því á mikil­vægir hagsmunir sem stofnuninni er skylt að vernda. Annars vegar réttur almennings til upplýsinga um ráðstöfun á opinberu fé og hins vegar réttur einstaklinga og vernd persónu­upplýsinga þeirra. Enginn einstaklingur sem sækir um greiðslur atvinnu­leysis­trygginga á að eiga það á hættu að birtar verði upplýsingar á opinberum vettvangi þar að lútandi. Vinnumála­stofnun getur ekki brugðist þeim trúnaði. Af því leiðir að taka verður til skoðunar hvort upplýsingar sem birtar eru skulu að einhverju leyti takmarkaðar. Á það einkum við um einstaklinga í eigin atvinnu­rekstri og nöfn fámennra fyrir­tækja þar sem birting á nafni fyrir­tækisins getur um leið gefið til kynna upplýsingar um þann starfs­mann eða þá starfs­menn sem fá greiddar atvinnu­leysis­tryggingar.“

Þess vegna hafi verið ákveðið að draga línuna við sex starfs­menn.

Kjarninn greindi frá því í vikunni að þrettán fyr­ir­tæki nýttu hluta­bóta­leið stjórn­valda fyrir 150 starfs­menn eða fleiri hvert í síð­asta mán­uði. Í heild­ina voru þessi þrettán fyr­ir­tæki með um 14 pró­sent allra þeirra starfs­manna sem nýttu sér hluta­bóta­úr­ræð­ið, eða vel á fimmta þús­und manns.

Átta af þessum fyr­ir­tækjum eru í ferða­þjón­ustu­tengdri starf­semi, fjögur í verslun og eitt í iðn­aði.

Lang­stærst þess­ara fyr­ir­tækja er Icelandair, sem setti 92 pró­sent allra starfs­manna sinna í minnkað starfs­hlut­fall í mars.

Hér er hægt að nálgast listann yfir þau fyrirtæki sem nýttu leiðina sem Vinnumála­stofnun ákvað að nafn­greina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár