Fjármálaráðherra og forsætisráðherra tókust á í þingsal: „Allt einhver eftiráspeki“

Benedikt Jóhannesson gagnrýndi fyrri ríkis­stjórn fyrir þrjósku gagnvart aflands­krónu­eigendum.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, gagnrýndi harðlega hvernig staðið var að aflands­krónu­uppboði í fyrra þegar rætt var um losun fjármagns­hafta á Alþingi í dag. Beindi hann þar spjótum sínum að fyrri ríkis­stjórn. Bjarni Benediktsson, forsætis­ráðherra og fyrr­verandi fjármála­ráðherra, svaraði gagn­rýninni og sagði um eftirá­speki að ræða.

Í munnlegri skýrslu sinni um afnám fjármagns­hafta sagðist Benedikt telja að mögulegt og skynsamlegt hefði verið að þurrka upp aflands­krónu­vand­ann í útboðinu sem Seðla­bank­inn hélt um mitt ár 2016. 

„Í ráðu­neyt­inu heyri ég að lík­legt sé að á þeim tíma hefði verið hægt að þurrka snjó­hengj­una svo­nefndu upp að mestu leyti ef gengið hefði verið á milli 165-170 krónur á evru. Nú sjáum við glöggt að skyn­sam­legt hefði verið að ljúka við­skipt­unum á því gengi. Þá­ver­andi stjórn­völd ákváðu að gera það ekki, kannski vegna þess sjón­ar­miðs að með því hefði verið gert allt of vel við aflands­krónu­eig­end­ur. Eftir á sjá allir að Íslend­ingar hefðu grætt mjög mikið á því að ljúka dæm­inu þá, en menn misstu af því tæki­færi,“ sagði Benedikt.

Skömmu síðar gekk Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra út úr þingsal og horfði Benedikt á eftir honum. Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, tók til máls á eftir Benedikt og tók undir gagnrýni hans. Sagði hún að í raun hefðði aflands­krónu­útboðið í fjármála­ráðherratíð Bjarna ekki tekist.

„Hæstvirtur núverandi fjármála­ráðherra kemur hér og segir að í raun og veru hefði verið betra að semja við aflands­krónu­eigendur á öðru gengi. Þannig að hann virðist telja líka að þarna hafi verið gerð mistök í framkvæmdinni við losun hafta,“ sagði Katrín. 

Bjarni tók til máls skömmu síðar og svaraði gagnrýni Benedikts og Katrínar. „Mér finnst það skjóta skökku við þegar menn koma hér upp og segja að útboðið sem haldið var um mitt ár í fyrra hafi ekki verið vel heppnað. Staðreyndin er sú að við fengum þátttöku í því útboði sem var langt umfram það sem tekist hafði að fá fram í fyrri útboðum. Langt langt langt umfram það. Veruleg fjárhæð sem þá losnaði, rétt um sjötíu milljarðar ef ég man rétt, sem við náðum að losa í útboðinu. Vissulega stóð eftir há fjárhæð en engu að síður vel heppnað útboð sem var undanfari þess að við gátum hafið afnáms­ferli á innlenda aðila,“ sagði Bjarni. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár