Fyrstu tölur í Reykjavík birtar um miðnætti

Beint streymi verður frá talningu atkvæða í borgar­stjórnar­kosningunum á laugardags­kvöld. Ráðgert er að fyrstu tölur verði opinberar um miðnætti og að lokatölur liggi fyrir kl. 4.30 um nóttina. Utan­kjörfundar­atkvæði verða talin síðust.

Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavíkurborg.
Kosið verður á 23 stöðum í Reykja­vík­ur­borg. Mynd: Bára Huld Beck

Áætlað er að fyrstu tölur í sveitar­stjórnar­kosningunum í Reykjavík á laugardag verði opinberar á miðnætti, aðrar tölur kl. 3 og þær þriðju og síðustu klukkan 4.30 um nóttina. Atkvæði þeirra sem mæta fyrri hluta dags á kjörstað verða talin fyrst og utan­kjörfundar­atkvæði síðust.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í minnis­blaði yfir­kjör­stjórnar Reykja­víkur um helstu tíma­setningar vegna talningar í kosningunum. Minnis­blaðið var lagt fyrir fund kjör­stjórnarinnar í gær.

Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavík og að venju lýkur kjörfundi klukkan 22. Þá þegar verður fjöldi kjörkassa kominn í Laugar­dalshöllina þar sem talning atkvæða fer fram. Talningin getur því hafist á sama tíma og kjör­stöðum lokar sem gerist með því að oddviti yfir­kjör­stjórnar rýfur innsiglin á talningar­staðnum í Höllinni. Streymt verður beint af talningunni á vef Reykja­víkurborgar.

Í minnis­blaðinu er gerð ítarleg grein fyrir fyrir­komulaginu. Þar segir að undir­búningur fyrir talningu atkvæða hefjist í Laugar­dalshöll kl. 17.00 á kjördag. Á milli 17.30-17.50 tekur yfir­kjörstjórn á móti 96 atkvæða­kössum sem fluttir verða frá kjör­stöðum. Klukkan 18.00 verður talningar­staður í Laugar­dalshöll innsiglaður og læstur en þar fer fram afstemming og flokkun atkvæða til að undirbúa talningu af hálfu yfir­kjör­stjórnar að viðstöddum umboðs­mönnum framboða. Klukkan 22.00 rýfur oddviti yfir­kjör­stjórnar innsiglin og opnar talningar­stað. Þá getur talning atkvæða hafist.

Fyrsta, önnur og þriðja umferð

Í fyrstu umferð verða talin öll kjörfunda­atkvæði fyrri hluta dags. Áætlað er að henni ljúki um 23.40 og að fyrstu tölur í Reykjavík liggi fyrir og verði gerðar opinberar á miðnætti. Önnur umferð talningar hefst um leið og seinni kjör­kassar berast í Laugar­dalshöll frá öllum 23 kjör­stöðunum í Reykjavík að kjörfundi loknum.

Áætlað er að lokið verði við að telja öll kjörfundar­atkvæði um 02.50 og að aðrar tölur í Reykjavík liggi fyrir og verði gerðar opinberar klukkan 3. Í þriðju umferð verða utan­kjörfundar­atkvæði talin. Áætlað er að lokið verði við að telja öll atkvæði um kl. 4 og er áætlað að lokatölur í Reykjavik liggi fyrir og verði gerðar opinberar kl. 4.30.

Ellefu framboðs­listar eru í kjöri í Reykjavík. Kjör­staðir opna kl. 9 á laugardags­morgun og loka líkt og fyrr segir kl. 22.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár