Zuckerberg sest að samningaborðinu

Mála­miðlun hefur náðst á milli samfé­lags­miðl­arisans Facebook og ástralskra stjórn­valda. Báðir aðilar segjast ánægðir með niður­stöðuna, sem felur í sér að Facebook mun greiða fjöl­miðlum fyrir efni, reyndar að því er virðist á sínum eigin forsendum.

Mark Zuckerberg stofnandi Facebook hafði beina aðkomu að samningaviðræðunum við áströlsk stjórnvöld um helgina.
Mark Zuckerberg stofn­andi Facebook hafði beina aðkomu að samn­inga­við­ræð­unum við áströlsk stjórn­völd um helg­ina. Mynd: EPA

Ástralskar fréttir munu á ný flæða um síður Facebook á næstu dögum, en ástralska ríkis­stjórnin hefur komist að samkomu­lagi við tækni­risann sem felur í sér að Facebook muni semja við þarlenda fjölmiðla um greiðslu fyrir birtingu frétta.

Stífar samninga­viðræður fyrir­tækisins við áströlsk stjórn­völd stóðu yfir um helgina, meðal annars með aðkomu Mark Zuckerberg, forstjóra Facebook. Virðast báðir aðilar stíga nokkuð sáttir upp frá samninga­borðinu, ef marka má yfir­lýsingar.

Facebook greip til þess að ráðs að fjarlægja allar fréttir ástralskra miðla af samfélags­miðlinum í síðustu viku og kom sömuleiðis í veg fyrir að þeir 17 milljón Ástralir sem eru á Facebook gætu deilt fréttum erlendra miðla. Þetta vakti heims­athygli.

Mála­miðlun hefur nú verið kynnt til sögunnar, sem felur í sér að Facebook semji við áströlsk fjölmiðla­fyrirtæki hvert í sínu lagi um greiðslu fyrir fréttir. Á móti mun nýja ástralska löggjöfin í reynd ekki gilda um fyrir­tækið að óbreyttu, en áströlsk stjórn­völd munu horfa til þess hvort Facebook sé að veita fé til þarlendra fjölmiðla er þau ákveða hvort ákvæði fyrir­hugaðra laga gildi um fyrir­tækið.

Ástralska stjórnin hefur lagt fram breytingar­tillögur sem virðast að nokkru leyti draga bitið úr laga­frumvarpinu sem búist er við að efri deild ástralska þingsins samþykki í vikunni.

Í tilkynningu frá stjórn­völdum kemur fram gerðar­dómi verði einungis beitt til að ákvarða greiðslur netfyrirtækja til fjölmiðla verði ef allar aðrar leiðir skili ekki árangri. Facebook eða önnur netfyrirtæki eftir atvikum fái rúman frest til þess að komast að samkomu­lagi við miðla áður en stjórn­völd fari að beita þeim þvingunar­úrræðum sem felast í löggjöfinni.

Gæti mögulega orðið smærri fjölmiðlum til tekna, segja stjórnvöld

Ekki verður gerð krafa um að algjör­lega sambærilegir samningar verði gerðir við öll fjölmiðla­fyrirtæki og ástralska stjórnin telur að það muni komi minni fjölmiðla­fyrirtækjum og stað­bundnum fjöl­miðlum betur en öðrum. Stærri útgáfu­fyrirtæki geta þannig ekki fett fingur út í að minni fjöl­miðlar fái hlutfalls­lega meira greitt fyrir hvert birt efni sem fer í deilingu á Facebook, að því er segir í frétt breska blaðsins Guardian.

Will Easton, æðsti yfirmaður Facebook í Ástralíu, segist ánægður með að samkomulag hafi náðst við áströlsk stjórn­völd. Á honum er að heyra að áströlsk stjórn­völd séu að bregðast við helstu áhyggjum Facebook af fyrir­hugaðri laga­setningu, en eins og Kjarninn fjallaði um í síðustu viku sagði Facebook að áströlsk stjórn­völd væru að misskilja, í öllum grundvallar­atriðum, samspil Facebook og hefð­bundinna fjölmiðla.

Í frétt ABC í Ástralíu kemur þó fram að Facebook áskilji sér rétt til þess að grípa aftur til þess ráðs að fjarlægja fréttir ástralskra miðla af samfélags­miðlinum ef skref verði tekin af hálfu stjórn­valda sem Facebook geti ekki fellt sig við.

Fjármála­ráðherra Ástralíu, Josh Frydenberg, segir að áströlsk stjórn­völd hafi verið að taka slaginn fyrir önnur ríki heims með aðgerðum sínum að undan­förnu, en mörg ríki eru að velta því fyrir sér hvernig best sé að koma böndum utan um starfsemi alþjóðlegra netrisa á borð við Google og Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár