Facebook í sögulegri störukeppni við áströlsk stjórnvöld og fjölmiðla

Ef einhver velktist í vafa um það ægivald sem Facebook hefur yfir miðlun upplýsinga í heiminum í dag þá ætti vafinn að vera algjör­lega úr sögunni eftir nýjustu vendingar í deilu fyrir­tækisins við áströlsk stjórn­völd.

Ástralir eru þessa dagana að setja lög sem skylda stór­fyrirtæki í tækni­heiminum, Facebook og Google, til þess að greiða hefð­bundnum fjöl­miðlum fyrir efnið sem þeir framleiða. Facebook hefur svarað með því að loka fyrir að hægt sé að deila efni frá fjöl­miðlum á Facebook í Ástralíu og efni ástralskra fjölmiðla er hvergi hægt að deila. Ekki heldur á Íslandi.

Facebook-síður ástralskra fjölmiðla á borð við Sydney Morning Herald og The Australian eru tómar skeljar. „No posts yet,“ segir Facebook við notendur sem þangað laumast inn.

Laga­frumvarpið sem þessu fjaðra­foki veldur fór í gegnum neðri deild ástralska þingsins í gær og á miðvikudags­kvöld, þegar nýr dagur var að renna upp í Ástralíu, kynnti Facebook viðbrögð sín. Ástralir geta ekki deilt fréttum og heimurinn allur getur ekki deilt fréttum frá áströlskum miðlum.

Þessi mynd hér að neðan kemur upp þegar reynt er að deila ástralskri frétt á Íslandi.

Framkoma Facebook sögð tuddaleg

Þessu hafa margir lýst sem gerræðis­legum tilburðum af hálfu Facebook. Samtök breskra fjölmiðla­fyrirtækja (News Media Association) sendu frá sér yfir­lýsingu í dag þar sem stór­fyrirtækið er sakað um að haga sér eins og „tuddi á skólalóð“ og fara of geyst fram.

„Aðgerðir Facebook í Ástralíu sýna nákvæmlega þörfina fyrir að löggjafar um allan heim, líka í Bretlandi, setji upp þétt regluverk til þess að jafna leikinn á milli tækni­risanna og útgefenda,“ er haft eftir formanni samtak­anna í frétt Reuters.

Fyrr­verandi æðsti yfirmaður hjá Facebook í Ástralíu og Nýja-Sjálandi tekur í sama streng. Í skoðana­pistli sínum í Sydney Morning Herald segir hann að aðgerðir Facebook í Ástralíu séu ekkert annað en blygðunar­laus sýning á ægivaldi fyrir­tækisins.

Áströlsku lögin ógn við grundvallarfyrirkomulag netsins?

Á hinum pólnum eru síðan þeir sem telja aðgerðir Ástralíu vegi að grunn­hugmyndinni um netfrelsi og breyti þannig hreinlega eðli netsins. Ekki sé hægt að gera tækni­fyrirtækjum skylt að greiða fyrir efni fjölmiðla án þess að það bitni á endanum á frelsi notenda netsins til þess að finna allar þær upplýsingar sem séu í boði.

Þessari skoðun hefur meðal annars Tim Berners-Lee, maðurinn sem fann upp tæknina á bak við veraldar­vefinn (World Wide Web), lýst. Á svipuðu eða sama máli er Vint Cerf, sem oft er kallaður „faðir netsins“. Vert er að taka fram að sá síðari starfar í dag fyrir Google, sem hefur barist gegn aðgerðum ástralskra stjórn­valda.

Önnur skoðun sem heyrst hefur frá þeim sem líst illa á áströlsku löggjöfina er sú að ef ástralska ríkið telji að fjöl­miðlar þurfi aukinn fjárstyrk til að geta sinnt lýðræðis­legu hlutverki sínu og veitt þau almanna­gæði sem upplýst umræða er, eigi ástralska ríkið að gera nákvæmlega það og veita fjöl­miðlum ríkis­styrki í stað þess að þvinga netrisana til að borga fyrir efnið þeirra.

Hvað er Ástralía að reyna að gera?

Á þessu máli eru ótal hliðar. Staðan sem blasir við í dag er þó nokkuð sem fáir hefðu getað ímyndað sér fyrir skömmu síðan. Facebook greip til þess að láta verða af hótun sem stór­fyrirtækið setti fram í fyrra, en áströlsk stjórn­völd virðast ekki hafa búist við því að Facebook myndi stíga þetta skref.

„[Tækni­fyr­ir­tækin] eru ef til vill að breyta heim­inum, en það þýðir ekki að þau ættu að stjórna honum“

Ráðherrar í ríkis­stjórninni standa þó keikir og segja að þetta komi ekki í veg fyrir að löggjöfin verði staðfest í efri deildinni á næstu dögum og taki gildi. Scott Morrison forsætis­ráðherra sagði í færslu á Facebook í dag að Ástralir myndu ekki láta kúga sig og að hann væri í virku samtali við aðra þjóðar­leiðtoga vegna málsins. Hann ræddi við Narendra Modi forsætis­ráðherra Indlands um málið fyrr í dag.

„[Tækni­fyrirtækin] eru ef til vill að breyta heiminum, en það þýðir ekki að þau ættu að stjórna honum,“ sagði Morrison í Facebook-færslu sinni.

Löggjöfin í Ástralíu er nýjung á heimsvísu, en henni er ætlað að jafna leikinn á milli stóru netrisanna sem hagnast á því að selja auglýsingar innan um efnið sem fólk er komið á Facebook eða Google til þess að skoða. Sem oft og tíðum eru fréttir hefð­bundinna fjölmiðla.

Scott Morrison forsætisráðherra Ástralíu.
Scott Morrison for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu.

Samkeppnis­stofnun Ástralíu hefur verið ríkis­stjórninni til halds og traust við smíði laga­bálksins, sem felur í sér að tækni­fyrirtækin greiði fjöl­miðlum einhverja sann­gjarna upphæð fyrir birtingu frétta. Hálf­gerður gerðar­dómur myndi ákvarða þá upphæð ef ekki væri hægt að komast að samkomu­lagi við fyrir­tækin.

Einnig felur hún í sér kröfur á tækni­fyrirtækin um að láta fjöl­miðlana vita fyrirfram ef þau ætla að ráðast í einhverjar breytingar á algríminu sem stýrir dreifingu efnisins. Ekki er loku skotið fyrir að fleiri samfélags­miðlar og leitar­vélar bætist inn í löggjöfina á síðari stigum.

Málið hefur verið til umræðu á vettvangi ástralskra stjórn­mála undan­farin misseri og Facebook og Google hafa komið ýmsum athuga­semdum á framfæri við áströlsk stjórn­völd.

Þáttur Roberts Murdoch

Google hefur látið undan og þegar samið við þó nokkur áströlsk fjölmiðla­fyrirtæku um greiðslu fyrir dreifingu frétta í leitarvél sinni.

Fyrir­tækið samdi sérstak­lega við News Corp, alþjóð­lega fjölmiðla­samstæðu ástralska auðkýfingins Roberts Murdoch, um greiðslu fyrir dreifingu frétta frá fjöl­miðlum samstæðunnar sem stað­settir eru í Bretlandi og Banda­ríkjunum auk Ástralíu. Samningar News Corp og annarra fyrir­tækja er um dreifingu inni í hinu svokallaða Showcase-appi Google, sem þegar hefur verið tekið í notkun í Bretlandi með þátttöku nokkurra stærstu fjölmiðla landsins.

Robert Murdoch er talinn hafa haft nokkur áhrif á hversu ákaft áströlsk stjórn­völd hafa beitt sér gegn tækni­risunum tveimur, fyrir hönd fjölmiðla hans og annarra.

Microsoft hreykir sér af mildari afstöðu Google

Microsoft, sem margir gleyma eflaust stundum að starf­rækir leitar­vélina Bing í (erfiðri) samkeppni við Google, hreykir sér þó einnig af því að hafa haft áhrif á að Google gekk til samninga við fjölmiðla í Ástralíu.

Í frétt breska blaðsins Guardian er haft eftir Brad Smith forstjóra Microsoft að innan við sólar­hring eftir að Microsoft sagðist styðja við áætlanir Ástrala og lagði til að önnur ríki fylgdu í fótspor þeirra hefði Google verið búið að draga úr fyrri hótunum sínum um að loka leitarvél sinni í Ástralíu.

Netrisarnir telja sig gera fjölmiðlum greiða

Málið spratt inn í samfélags­mála­umræðuna í Ástralíu af nokkrum krafti fyrir rúmum mánuði, en þá viðurkenndi Google að fyrir­tækið hefði framkvæmt tilraun þar sem um 1 prósent notenda var útilokað frá því að fá fréttir ástralskra fjölmiðla í leitar­niðurstöðum sínum. Fyrir­tækið sagðist vera að reyna að mæla áhrifin sem fjöl­miðlarnir og Google hefðu á hvort annað.

Í frétt Sydney Morning Herald um þetta síðan í janúar kemur fram að Google hafi árið 2018 metið stöðuna svo að með því einu að vera með opna og ókeypis leitarvél væri fyrir­tækið að færa áströlskum fjöl­miðlum 218 milljóna dollara virði af umferð, með því að beina notendum inn á síðurnar.

Í færslu Facebook frá því í gærkvöldi kemur fram að fyrir­tækið telji sig hafa fært áströlskum fjöl­miðlum umferð (5,1 milljarð síðu­flettinga) sem hægt sé að verðmeta á 407 milljónir ástralskra dala. Facebook segist enn fremur ekki græða neitt sérlega mikið á fréttum. Fréttir séu innan við 4 prósent af því efni sem fólk sjái alla jafna í frétta­veitu Facebook.

„Blaða­mennska er mikilvæg lýðræðis­legu samfélagi, það er ástæðan fyrir því að við höfum byggt sérhæfð, ókeypis tól til að styðja frétta­miðla um allan heim við að koma efni sínu á framfæri við fólk á netinu,“ segir meðal annars í yfir­lýsingu Facebook um aðgerðirnar í Ástralíu.

Fyrir­tækið segir að áströlsk stjórn­völd séu að misskilja í grundvallar­atriðum sambandið á milli Facebook og fjölmiðla­fyrirtækja.

Fram kemur í frétt BBC að raunin sé sú að Facebook og Google taki til sín um 8 af hverjum tíu áströlskum dollurum sem varið er í auglýsingar á netinu. 36 prósent Ástrala sæki sér fréttir á Facebook, en einungis 14 prósent borgi fyrir fréttir á netinu.

Verður fylgst vel með

En hvers virði væru Facebook og Google fyrir notendur sína ef þar væri ekki hægt að nálgast fréttir hefð­bundinna fjölmiðla? Hvernig munu umferðar­tölur ástralskra fjölmiðla þróast næstu daga ef Facebook heldur banni sínu til streitu? Munu fals­fréttir um mikilvæg málefni eins og bólu­setningar fá byr undir báða vængi þegar efni hefð­bundinna miðla fær ekki að komast að? Gæti verið að umhverfi fjölmiðla hefð­bundinna fjölmiðla myndi hreinlega batna ef þeir yrðu ekki lengur háðir því að keppast um athygli almennings í gegnum Facebook? Ýmsar spurningar vakna.

Fylgst verður vel með afleiðingunum sem hörð afstaða Facebook í málinu mun hafa. Ýmsar ríkis­stjórnir og framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hafa nefnilega verið að velta svipuðum hugmyndum fyrir sér. Ástralía virðist ætla að ríða á vaðið með sögulega tilraun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár