Fjórar af hverjum tíu auglýsingakrónum virðast hafa runnið úr landi árið 2019

Tekjur íslenskra fjöl­miðla dróg­ust saman um sjö pró­sent á milli áranna 2018 og 2019. Um 7,8 millj­arðar af aug­lýs­ingafé inn­lendra aðila eru taldir hafa runnið úr landi, stór hluti til Facebook og Google. Hlut­deild RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði var 17 pró­sent.

Sjónvarpið var árið 2019 sem fyrr sá miðill sem tekur til sín stærstan hluta tekna á íslenskum fjölmiðlamarkaði, eða rúmlega 12,6 milljarða af alls 25 milljarða tekjum íslenskra fjölmiðla.
Sjón­varpið var árið 2019 sem fyrr sá mið­ill sem tekur til sín stærstan hluta tekna á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði, eða rúm­lega 12,6 millj­arða af alls 25 millj­arða tekjum íslenskra fjöl­miðla. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur íslenskra fjöl­miðla dróg­ust saman um 7 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019 og námu sam­an­lagðar tekjur þeirra tæp­lega 25 millj­örðum. Rúmur fjórð­ungur allra tekna fjöl­miðla á Íslandi árið 2019 rann til Rík­is­út­varps­ins og um 85 pró­sent af sam­an­lögðum tekjum fjöl­miðla runnu til fimm stærstu aðil­anna á fjöl­miðla­mark­aði.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands, sem birti sam­an­tekt um þróun á tekjum fjöl­miðla og þróun íslenska aug­lýs­inga­mark­að­ar­ins á vef sínum í morgun. Athygli vekur að Hag­stof­unni reikn­ast til að rúm­lega fjórar af hverjum tíu krónum sem varið var í aug­lýs­ingar runnu til erlendra aðila, eða 41 pró­sent. Þetta hlut­fall hefur auk­ist hratt á und­an­förnum árum og aldrei verið hærra í tölum Hag­stof­unnar.

Í umfjöllun Hag­stof­unnar segir að það sé marg­vís­legum erf­ið­leikum bundið að henda reiður á þetta, þar sem erlendir aug­lýs­inga­miðlar skuldi íslenskum yfir­völdum upp­lýs­ingar um greiðslur sem til þeirra renna vegna birt­ingar. Hag­stofan áætlar þó að um 7,8 millj­arðar króna vegna kaupa á aug­lýs­ingum hafi runnið úr landi á síð­asta ári, en 11,5 millj­arðar farið til inn­lendra fjöl­miðla og kvik­mynda­húsa.

Talsverður hluti til Facebook og Google

Hag­stofan segir að án efa megi rekja sam­drátt í aug­lýs­inga­tekjum íslenskra fjöl­miðla til aug­lýs­inga­birt­inga á erlendum vef­síðum og miðlum. Þó verði einnig að hafa hug­fast að tals­verður hluti þess fjár sem greiddur var til erlendra aðila sé vegna aug­lýs­inga sem beint var að erlendum neyt­endum, ekki síst í tengslum við ferða­mennsku.

[adspot]

Því geti þær krónur sem fari úr landi ekki reikn­ast alfarið sem tekju­tap inn­lendra fjöl­miðla. Hag­stofan segir þó einnig að engar upp­lýs­ingar séu til­tækar um slíka skipt­ingu.

Þó megi gera ráð fyrir að umtals­verður hluti af þeim aug­lýs­inga­krónum sem fari úr landi renni til banda­rísku stór­fyr­ir­tækj­anna Facebook og Google, en upp­lýs­ingar um rúm­lega fjög­urra millj­arða króna greiðslu­korta­við­skipti sýni að um 90 pró­sent hafi runnið til þess­ara tveggja aðila.

Hlutdeild RÚV í auglýsingatekjum 17 prósent

Fram kemur í tölum Hag­stof­unnar að hlut­deild Rík­is­út­varps­ins í aug­lýs­inga­tekjum hafi hækkað úr 16 pró­sentum og upp í 17 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019. Hlutur RÚV í sam­an­lögðum aug­lýs­inga­tekjum ljós­vaka­miðla hækk­aði úr 40 upp í 44 pró­sent, en árið 2019 tók RÚV til sín 38 pró­sent af aug­lýs­inga­tekjum í útvarpi og 49 pró­sent af aug­lýs­inga­tekjum í sjón­varpi. RÚV aug­lýsir ekki á vef­miðli sínum.

Hlutur Rík­is­út­varps­ins í aug­lýs­inga­tekjum hefur farið lít­il­lega lækk­andi frá árinu 1997, þegar hlut­deildin var 20 pró­sent, en á árunum fyrir efna­hags­hrunið 2008 var hlut­deild RÚV í heild­ar­aug­lýs­inga­kök­unni mun lægri.

Hlut­deild RÚV af öllum tekjum fjöl­miðla á Íslandi var sam­kvæmt Hag­stof­unni 26 pró­sent árið 2019, á meðan að einka­reknir fjöl­miðlar taka til sín 74 pró­sent af tekj­unum á fjöl­miðla­mark­aði.[links]

Vefmiðlar með um 7 prósent af tekjunum

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru íslenskir vef­miðlar með um sjö pró­sent af öllum tekjum íslenskra fjöl­miðla árið 2019. Tekjur sjón­varps­miðla eru sem fyrr stærsti hluti sam­an­lagðra tekna fjöl­miðla, eða rúmir 12,6 millj­arðar af þeim tæpu 25 millj­örðum sem féllu til íslenskra fjöl­miðla árið 2019.

Tæpur fjórð­ungur rann til dag­blaða og viku­blaða, um fjórtán pró­sent til útvarps og tæp sjö pró­sent til tíma­rita og ann­arra blaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár