Tveir fjölmiðlar taka til sín nær allar tekjur á vefmiðlamarkaði

Sam­keppn­is­eft­ir­litið kall­aði eftir upp­lýs­ingum um tekjur fjöl­miðla á tveimur mörk­uðum og birti nið­ur­stöð­una í nýlegu áliti vegna sam­runa sem átti sér stað á mark­aðnum.

Neysla fjölmiðla hefur breyst mikið á nokkrum árum. Mun fleiri sækja sér fréttir og afþreyingu stafrænt en mun færri gera það til prentmiðla.
Neysla fjöl­miðla hefur breyst mikið á nokkrum árum. Mun fleiri sækja sér fréttir og afþr­ey­ingu staf­rænt en mun færri gera það til prent­miðla. Mynd: Jessica Lewis/Pexels

Tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, Árvakur og Sýn sem reka vef­miðl­anna Mbl.is og Vísi.is, voru sam­an­lagt með 75 til 85 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í sölu aug­lýs­inga í íslenskum vef­miðlum á síð­asta ári. Þetta kemur fram í tölum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti í áliti sínu vegna kaupa Torgs ehf., útgef­anda Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, á Frjálsri fjöl­miðlun, útgef­anda DV og tengdra miðla.

Tölunum var safnað saman með því að senda gagna­beiðni til þeirra fjöl­miðla sem sam­an­tektin nær á meðan að Sam­keppn­is­eft­ir­litið var með sam­runa fyr­ir­tækj­anna tveggja til vinnslu.

Í sam­an­tekt­inni kemur fram að með­al­tal dag­legrar dekk­unar hjá Mbl.is sé 60,7 pró­sent en 59,5 pró­sent hjá Vísi.is.

Í álit­inu segir að þegar litið er til aug­lýs­inga­sölu í vef­miðlum sé Árvakur stærsti aðili á mark­aði með tæp­lega helm­ings­hlut­deild og Sýn sé með tæpa þriðj­ungs­hlut­deild.

Það þýðir að allir aðrir vef­miðlar sem starfa á Íslandi skipta með sér 15 til 25 pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

[adspot]Vænt mark­aðs­hlut­deild þeirra tveggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem voru að sam­ein­ast, Torgs og Frjálsrar fjöl­miðl­unar, er sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu 15 til 20 pró­sent. Þrjú fjöl­miðla­hús taka því til sín nær allar aug­lýs­inga­tekjur sem renna til íslenskra vef­miðla.

RÚV, stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki á Íslandi, má ekki sam­kvæmt lögum selja aug­lýs­inga á net­inu. RÚV fær hins vegar 4,7 millj­­arðar króna úr rík­­is­­sjóði í formi þjón­ustu­tekna af útvarps­­gjaldi á ári auk þess sem fyr­ir­tækið hafði 2,2 millj­­arða króna í tekjur úr sam­keppn­is­­rekstri í fyrra. Þar er aðal­lega um að ræða sölu aug­lýs­inga í ljós­vaka og kostun á efni.

Tveir prentmiðlar með allt að 85 prósent tekna

Sam­keppn­is­eft­ir­litið tók líka saman tölur um hlut­deild prent­miðla út frá tekjum. Nið­ur­staðan þar var að Árvakur, sem gefur út Morg­un­blaðið, væri með 40 til 45 pró­sent allra tekna sem renni til dag­blaða á Íslandi vegna útgáfu þeirra og Torg, sem gefur út Frétta­blaðið, væri með 35 til 40 pró­sent þeirra. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild þeirra miðað við tekjur af útgáfu dag­blaða er því 75 til 85 pró­sent.

Í áliti Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins segir að meiri­hluti tekna Árvakurs sé vegna áskriftar- og lausa­sölu Morg­un­blaðs­ins. Nær allar tekjur Torgs vegna Frétta­blaðs­ins eru hins vegar af aug­lýs­inga­sölu. Þar segir einnig að sam­þjöppun á prent­miðla­mark­aði vegna sam­runa Torgs og Frjálsrar fjöl­miðl­unar sé lítil „þar sem tekjur prent­mið­ils DV eru litlar.“

Lestur bæði Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins, og raunar allra íslenskra prent­miðla, hefur kúvenst á örfáum árum. Fyrir ára­tug mæld­ist lestur Frétta­blaðs­ins 64 pró­sent og lestur Morg­un­blaðs­ins 34,8 pró­sent. Í síð­ustu mæl­ingu Gallup sögð­ust 37,2 pró­sent aðspurðra lesa Frétta­blaðið og 23,6 pró­sent Morg­un­blaðið. Lestur Frétta­blaðs­ins hefur því dalað um 42 pró­sent á tíma og lestur Morg­un­blaðs­ins um 32 pró­sent. Þegar lestur ald­urs­hóps­ins 18 til 49 ára er skoð­aður kemur í ljós að lestur Frétta­blaðs­ins hefur farið úr 63,8 pró­sentum í 27 pró­sent á tíu árum, og því dalað um 58 pró­sent. Lestur Morg­un­blaðs­ins hefur á sama tíma­bili farð úr 25,1 pró­sent í 13,4 pró­sent, og því dreg­ist saman um 47 pró­sent. Útgáfu­dögum Frétta­blaðs­ins var nýverið fækkað úr sex í fimm þegar það hætti að koma út á mánu­dögum. Morg­un­blaðið hefur und­an­farin ár verið reglu­lega í frídreif­ingu á fimmtu­dögum og er því í raun frí­blað einu sinni í viku.

Eitt annað blað er gefið út í stóru upp­lagi á Íslandi, Mannlíf. Það er frí­blað sem kemur út einu sinni í viku. Lestur þess mælist 16,1 pró­sent.

Lestur ann­arra prent­miðla með minni útbreiðslu hefur einnig dalað mikið. Fyrir um níu árum síðan, skömmu eftir að mæl­ingar hófust að nýja á lestri DV, lásu 14,2 pró­sent lands­manna blaðið. Í dag segj­ast 5,5 pró­sent lesa það, eða 62 pró­sent færri en í maí 2011. Vert er að taka fram að útgáfu­dögum DV hefur verið fækkað í milli­tíð­inni. Við­skipta­blaðið hefur líka dalað mikið í lestri frá því að lestur á því blaði náði hámarki í þeirri útgáfu sem blaðið hefur verið í eftir banka­hrun. Mestur mæld­ist lestur þess í maí 2015, eða 12,4 pró­sent. Nú mælist hann 5,5 pró­sent og hefur því dreg­ist saman um 56 pró­sent á fimm árum. Lestur bæði DV og Við­skipta­blaðs­ins hefur aldrei mælst minni en í apríl 2020 en bæði blöðin koma út einu sinni í viku og eru seld í áskrift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár