Ríkissjóður fær engar leigutekjur af arðbærri notkun á Langjökli

Ekki liggur fyrir hver er eig­andi svæð­is­ins þar sem ísgöngin í Langjökli eru. Milljóna tekjur á dag af ísgöng­unum en óvíst er hver leigan fyrir landið verður. Deilt er um það fyrir dóm­stólum að sögn stjórn­ar­for­manns Into the glacier ehf. Á meðan greiðir fyr­ir­tækið enga leigu fyrir afnot af land­inu. Um 150 gestir fóru í göngin á dag í lok árs í fyrra og hlupu tekjur dag hvern á nokkrum millj­ónum króna.

Kapellan í jöklinum
Kapellan í jökl­inum Hluti af ísgöng­unum í Langjökli er kapella þar sem hægt er að gifta sig og hafa slíkar vígslur farið þar fram. Göngin hafa notið mik­illa vin­sælda frá því þau opn­uðu um mitt ár í fyrra en ekki er ljóst hver á landið undir göngin.

Uppselt var á hverjum degi í ísgöng Into the glacier ehf. í Langjökli yfir hátíð­arnar í lok síð­asta árs. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á hverjum degi námu tæpum þremur millj­ónum króna hið minnsta ​ef miðað er við 150 gesti sem greiða lág­marks­gjald, 17.900 krónur, fyrir að skoða íshell­inn. Tækja­kostur fyr­ir­tæk­is­ins getur ekki þjón­u­stað svo marga gesti á dag og því þurfti að leigja auka trukka til að ferja fólk frá Húsa­felli og upp á Lang­jökul að sögn Önnu G. Sverr­is­dóttur, stjórn­ar­for­manns fyr­ir­tæk­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár