Kona skotin í húsakynnum Bandaríkjaþings

Bandarískir fjöl­miðlar greinar frá því að kona, líklega úr röðum mótmælenda, hafi verið skotin inni í húsa­kynnum Banda­ríkjaþings í kjölfar þess að hundruð stuðnings­manna Trump brutu sér leið þangað inn. Þjóð­varðliðið í Washington DC hefur verið kallað út.

Hundruð mótmælenda brutu sér leið inn í húsakynni Bandaríkjaþings á Kapitóluhæð í Washington DC.
Hundruð mót­mæl­enda brutu sér leið inn í húsa­kynni Banda­ríkja­þings á Kapitólu­hæð í Washington DC. Mynd: EPA

Bandarískir fjöl­miðlar segja frá því að manneskja hafi verið skotin inni í húsa­kynnum Banda­ríkjaþings í Washington DC eftir að mótmælendur brutu sér leið framhjá öryggis­vörðum og lögreglu og inn í þingið.

Samkvæmt frétt Washington Post sáu vitni konu borna út úr þing­húsinu af sjúkra­flutninga­mönnum, þakta blóði á búk og höfði. „Hvít kona, skotin í öxlina,“ er haft eftir öryggis­verði sem hleypti sjúkra­flutninga­mönnum inn í húsið.

Þegar konan var færð inn í sjúkrabíl umkringdu mótmælendur sjúkra­bílinn og hrópuðu „Morðingjar!“ áður en lögregla stuggaði þeim í burtu svo sjúkra­bíllinn kæmist leiðar sinnar.

Þjóðvarðliðið í Washington DC kallað út

CNN segir frá því að nokkur fjöldi lögreglu­manna hafi særst í átökum við mótmælendur og að minnsta kosti einn hafi þurft að leita á sjúkrahús.

Búið er að kalla út þjóð­varðliðið í höfuðborg Banda­ríkjanna til þess að reyna að koma böndum á óeirðirnar sem nú standa yfir, innan og utan þing­hússins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár