Þórdís Lóa útilokar ekki meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokk og Framsókn

Þótt þrír af flokkunum sem standa að fráfar­andi meirihluta ætli að fylgjast að í komandi viðræðum útilokar oddviti Viðreisnar og eini borgar­fulltrúi þess flokks ekki að mynda annars konar meirihluta. Það opnar glufu fyrir Sjálfstæðis­flokkinn að völdum.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er oddviti Viðreisnar.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er odd­viti Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, eini borgar­fulltrúi Viðreisnar, útilokar ekki mögulegt meirihluta­samstarf með Sjálfstæðis­flokki og Framsóknar­flokki í samtali við mbl.is. Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri og oddviti Samfylkingar, sagði á Rás 2 í morgun að flokkur sinn, Píratar og Viðreisn hafa ákveðið að fylgjast að í viðræðum um myndun nýs meirihluta í Reykjavík næstu daga.

Flokkarnir þrír mynduðu meirihluta ásamt Vinstri grænum á síðasta kjör­tímabili en sá meirihluti féll í kosningunum á laugardag.

Í frétt mbl.is er haft eftir Þórdísi Lóu að hún hafi „lært í póli­tík að úti­loka aldrei neitt og ég held að það sé bara mjög mik­il lexía.“ Viðreisn geti unnið með öllum sem vilji vinna með þeim. Mestu átaka­línurnar séu við Sósíalista­flokkinn. „En aðrir flokk­ar, eins og Fram­sókn, höf­um við al­veg mæt­ur á og get­um unnið með, eða Sjálf­stæðis­flokkn­um.“

Hún stað­festir að hafa hitt oddvita Pírata, Dóru Björt Guðjóns­dóttur, og Dag í gær og þau hafi rætt það að verða samferða í komandi meirihluta­viðræðum. „En aðrir flokk­ar, eins og Fram­sókn, höf­um við al­veg mæt­ur á og get­um unnið með, eða Sjálf­stæðis­flokkn­um.“

Sjálfstæðisflokkur á einungis eina leið í meirihluta

Samfylkingin, Píratar og Viðreisn mynduðu meirihluta ásamt Vinstri grænum á síðasta kjör­tímabili en sá meirihluti féll í kosningunum á laugardag.

Vinstri græn fengu einungis fjögur prósent atkvæða í kosningunum og Líf Magneu­dóttir, oddviti flokksins, tilkynnti í gær að þau myndu ekki sækjast eftir því að vera í meirihluta á komandi kjör­tímabili í ljósi þeirrar niður­stöðu.

Samfylkingin, Píratar og Viðreisn hafa samtals níu borgar­fulltrúa og geta því myndað góðan 13 manna meirihluta með Framsóknar­flokknum, sem vann mikinn kosninga­sigur og fékk fjóra borgar­fulltrúa, eða tólf manna meirihluta með Sósíalista­flokki Íslands og Flokki fólksins. Ekki kemur til greina að mynda meirihluta með Sjálfstæðis­flokki, stærsta flokknum í borginni, þar sem Samfylking, Píratar og Sósíalista­flokkurinn hafa útilokað slíkt samstarf.

Ofan­greint gerir það að verkum að eini raunhæfi möguleiki Sjálfstæðis­flokksins til að mynda meirihluta með Framsókn, Viðreisn og Flokki fólksins. Sá möguleiki er ekki til staðar haldi samflot Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.

Litlar breytingar ef Framsókn verður „varahjól“

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins, ætlar að hitta Dag á fundi í dag til að fara yfir mögulegan meirihluta. Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins, segir í samtali við Vísi að lítið verði um breytingar í Reykjavík ef Framsókn ákveði að vera „varahjól“ undir föllnum meirihluta. Hún sagðist enn vera vongóð um að geta komist í meirihluta.

Framsóknar­flokkurinn var ótvíræður sigurvegari borgar­stjórnar­kosninganna í Reykjavík á Laugardag. Undir forystu Einars Þorsteins­sonar, fyrr­verandi frétta­manns og nýliða í pólitík, náði flokkurinn í 18,7 prósent atkvæða sem skilaði honum fjórum borgar­fulltrúum í stærsta sveitar­félagi landsins þar sem Framsókn hafði engan áður. Auk Fram­sóknar bættu Píratar og Sósíalista­flokkur Íslands við sig manni og fylgi en aðrir flokkar stóðu annað hvort í stað í fjölda borgar­fulltrúa eða töpuðu slíkum.

Mest tapaði Sjálfstæðis­flokkurinn, 6,3 prósentu­stigum og tveimur mönnum, og Samfylkingin kom þar skammt á eftir með litlu minna tap og missti sama fjölda borgar­fulltrúa. Viðreisn tapaði öðrum borgar­fulltrúa sínum og Miðflokkurinn sínum eina.

Samanlagt fylgi fráfar­andi meirihluta dróst saman og varð einungis 41,1 prósent. Það skilaði þeim ellefu borgar­fulltrúum, eða einum minna en þarf til að mynda meirihluta. Þetta er orðið nokkuð þekkt þróun í Reykjavík en allir meirihlutar sem setið hafa frá árinu 2006 hafa fallið í næstu kosningum á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár