Samfylkingin, Píratar og Viðreisn ætla að fylgjast að við meirihlutamyndun í Reykjavík

Þrír flokkar úr fráfar­andi meirihluta ætla að fylgjast að í komandi meirihluta­viðræðum í Reykjavík. Þeir eiga tvo möguleika á meirihluta­myndun en haldi samfylgd flokkanna þá eru engir aðrir mögulegir meirihlutar án þeirra í stöðunni.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Samfylkingin, Píratar og Viðreisn hafa ákveðið að fylgjast að í viðræðum um myndun nýs meirihluta í Reykjavík næstu daga. Frá þessu greindi Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og borgar­stjóri, í Morgun­útvarpi Rásar 2 í morgun. Flokkarnir þrír mynduðu meirihluta ásamt Vinstri grænum á síðasta kjör­tímabili en sá meirihluti féll í kosningunum á laugardag.

Vinstri græn fengu einungis fjögur prósent atkvæða í kosningunum og Líf Magneu­dóttir, oddviti flokksins, tilkynnti í gær að þau myndu ekki sækjast eftir því að vera í meirihluta á komandi kjör­tímabili í ljósi þeirrar niður­stöðu.

Samfylkingin, Píratar og Viðreisn hafa samtals níu borgar­fulltrúa og geta því myndað góðan 13 manna meirihluta með Framsóknar­flokknum, sem vann mikinn kosninga­sigur og fékk fjóra borgar­fulltrúa, eða tólf manna meirihluta með Sósíalista­flokki Íslands og Flokki fólksins. Ekki kemur til greina að mynda meirihluta með Sjálfstæðis­flokki, stærsta flokknum í borginni, þar sem Samfylking, Píratar og Sósíalista­flokkurinn hafa útilokað slíkt samstarf.

Ofan­greint gerir það að verkum að eini raunhæfi möguleiki Sjálfstæðis­flokksins til að mynda meirihluta með Framsókn, Viðreisn og Flokki fólksins er ekki lengur til staðar miðað við orð Dags í morgun.

Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins, sagðist þó ekki útiloka samstarf við neinn í Morgun­útvarpinu í morgun. Hún gæti alveg hugsað sér að mynda meirihluta með Viðreisn, Flokki fólksins og Framsóknar­flokki, sem þó er ekki á borðinu sem stendur. Einar Þorsteinsson, oddviti Fram­sóknar, sagðist reiðu­búinn að starfa með öllum og að hann væri tilbúinn í samtal við alla. Engar viðræður væru þó hafnar en hann og Dagur muni hittast síðar í dag á fundi. Einar sagði að hann vildi líka ræða við Hildi.

Framsóknar­flokkurinn var ótvíræður sigurvegari borgar­stjórnar­kosninganna í Reykjavík á Laugardag. Undir forystu Einars Þorsteins­sonar, fyrr­verandi frétta­manns og nýliða í pólitík, náði flokkurinn í 18,7 prósent atkvæða sem skilaði honum fjórum borgar­fulltrúum í stærsta sveitar­félagi landsins þar sem Framsókn hafði engan áður. Auk Fram­sóknar bættu Píratar og Sósíalista­flokkur Íslands við sig manni og fylgi en aðrir flokkar stóðu annað hvort í stað í fjölda borgar­fulltrúa eða töpuðu slíkum.

Mest tapaði Sjálfstæðis­flokkurinn, 6,3 prósentu­stigum og tveimur mönnum, og Samfylkingin kom þar skammt á eftir með litlu minna tap og missti sama fjölda borgar­fulltrúa. Viðreisn tapaði öðrum borgar­fulltrúa sínum og Miðflokkurinn sínum eina.

Samanlagt fylgi fráfar­andi meirihluta dróst saman og varð einungis 41,1 prósent. Það skilaði þeim ellefu borgar­fulltrúum, eða einum minna en þarf til að mynda meirihluta. Þetta er orðið nokkuð þekkt þróun í Reykjavík en allir meirihlutar sem setið hafa frá árinu 2006 hafa fallið í næstu kosningum á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár