Ráðherra svarar engu um Samherjamálið þar sem það eigi ekki að lúta „pólitískum afskiptum“

Dómsmála­ráðherra segir að embætti sem rannsaki sakamál fái ekki auknar fjár­veitingar til að sinna rannsókn tiltekins sakamáls. Á ríkis­stjórnar­fundi í nóvember 2019 var hugað sérstak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar héraðs­saksóknara á Samherja­málinu.

Jón Gunnarsson er dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra segir að embætti sem fara með rannsókn og saksókn sakamála fái ekki auknar fjár­veitingar til að sinna rannsókn tiltekins sakamáls. Það grundvallist á því að íslenskt sakamála­réttarfar byggi á „því grundvallar­sjónarmiði að meðferð sakamála eigi ekki að lúta pólitískum afskiptum valdhafa á hverjum tíma. Af þessu leiðir að dómsmála­ráðuneyti og dómsmála­ráðherra hafa engin afskipti af sakamála­rannsóknum á Íslandi að undan­skildu þröngu hlutverki ráðuneytisins í alþjóðlegri sakamála­samvinnu.“ Fjár­veitingar til stofnana séu unnar í gegnum fjármála­áætlun og fjárlög hverju sinni í samræmi við lög um opinber fjármál.

Þetta kemur fram í svari hans við fyrir­spurn Eyjólfs Ármanns­sonar, þingmanns Flokks fólksins og fyrr­verandi aðstoðar­saksóknara við efnahags­brota­deild ríkis­lögreglu­stjóra, um rannsókn héraðs­saksóknara á meintu peninga­þvætti og mútu­brotum Samherja.

Þrátt fyrir þessi svör liggur fyrir að ríkis­stjórn Íslands tók sértækt fyrir mál Samherja á ríkis­stjórnar­fundi sem haldinn var 19. nóvember 2019 og ákvað þar huga sérstak­lega að fjár­mögnun á rannsókn héraðs­saksóknara á Samherja­málinu.

Hugað sérstaklega að rannsókn „á Samherjamálinu“

Á þeim fundi voru samþykktar sjö tölu­settar aðgerðir ríkis­stjórnarinnar í heild til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi í kjölfar þess að Samherja­málið var opinberað í Kveik og Stundinni viku áður, 12. nóvember.

Sjötta aðgerðir snerist um varnir gegn hagsmuna­árekstrum og mútu­brotum. Í tilkynningu sem birtist á heimasíðu stjórnar­ráðsins 19. nóvember 2019 sagði að á ríkis­stjórnar­fundinum hefði þáverandi dómsmála­ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, farið yfir löggjöf, alþjóða­samninga og þau atriði sem unnið hefur verið að og varða mútubrot og peninga­þvætti. „Þá verður hugað sérstak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar héraðs­saksóknara í tengslum við rannsókn embættisins á Samherja­málinu.“

Sjöunda aðgerðin sneri svo að því að ríkis­stjórnin hefði fjallað um Samherja­málið með tilliti til alþjóða­samskipta og sagt að utan­ríkis­ráðuneytið væri að fylgjast „með umfjöllun erlendis og hefur undirbúið viðbrögð vegna hugsanlegs orðspors­hnekkis.“

Fengu viðbótarfé í kjölfar ríkisstjórnarfundarins

Í fyrir­spurn sinni óskaði Eyjólfur eftir því að fá upplýsingar um hversu lengi Samherja­málið hefði verið til rann­sóknar hjá embætti héraðs­saksóknara og hvort héraðs­saksóknari hefði óskað eftir auknum fjármunum eða mannafla til að sinna rann­sókninni.

Tveimur dögum eftir ofan­greindan ríkis­stjórnar­fund, 21. nóvember 2019, sendi Ólafur Þór Hauksson héraðs­saksóknari minnis­blað til dómsmála­ráðherra þar sem hann lagði til að starfs­mönnum embættisins yrði fjölgað. Þótt Samherja­málið sé ekki sérstak­lega nefnt í minnis­blaðinu kemur þar fram að þáverandi starfsmanna­fjöldi dugi ekki til að sinna öllum þeim rannsóknar­verkefnum sem embættið hafi á hendi.

Embætti héraðs­saksóknar, Skatturinn og skatt­rannsóknar­stjóri fengu svo 200 milljóna króna auka­fjár­veitingu á árinu 2020.

Taldi sér ekki fært að svara neinum spurningum efnislega

Eyjólfur fór einnig fram á að fá upplýsingar um hvort skýrslu­tökum og gagna­öflun í tengslum við rannsókn málsins væri lokið, hversu margir hefðu verið kallaðir til skýrslu­töku, hvort málið væri komið í ákæru­meðferð og hvenær mætti vænta þess að rannsókn héraðs­saksóknara myndi ljúka?

Dómsmála­ráðherra taldi sér ekki fært að svara neinum þessarra spurninga.

Kjarninn hefur greint frá því að á Íslandi eru átta manns hið minnsta með rétt­ar­stöðu sak­born­ing við rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á meintu pen­inga­þvætti, mútu­greiðslum og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, en allir hinir annað hvort starfa fyrir sam­stæð­una eða hafa gert það. Kjarn­inn greindi frá því í októ­ber að rann­­sókn á meintum skatta­laga­brotum Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar hefði færst yfir til emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara skömmu áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár