Zuckerberg og Musk í „heimsins nördalegasta rifrildi“

Frum­kvöðl­arnir Elon Musk og Zuckerberg eru ekki sammála um framtíð gervi­greindar og skiptast nú á skotum á samfélags­miðlum.

Mark Zuckerberg, einn stofnanda Facebook.
Mark Zuckerberg, einn stofn­anda Facebook. Mynd: EPA.

Frumkvöðlarnir Mark Zuckerberg og Elon Musk eru ósammála um hættuna sem stafar af gervi­greind í fram­tíðinni. Norska frétta­síðan NRK kallar málið „heimsins nördalegasta rifrildi.“

Í frétt NRK er greint frá áhyggjur Musk af aukinni gervi­greind, en í síðustu viku sagði hann að meðhöndlun á þeim miklu tækni­framförum sem gervi­greindin myndi leysa úr læðingi fæli í sér „mestu áhættu sem við stæðum frammi fyrir,“ á ráðstefnu í Rhode Island.

Í því samhengi hvatti hann stjórn­málamenn til þess að setja upp betri og nákvæmari lög varðandi gervi­greind. „Eins og staða mála er núna þá hefur ríkis­valdið ekki einu sinni innsýn í stöðu mála[...] Um leið og fólk áttar sig þá verður það hrætt, eins og það ætti að vera,“ sagði Musk í ræðu sinni.

Ekki virðast allir sammála Musk í þeim efnum, en Mark Zuckerberg gerði athuga­semdir við aðvaranir hans og og kallaði þær „býsna óábyrgar“ á Facebook-síðu sinni í gær. Stuttu seinna hafði Musk samband við hann til að ræða ágreining þeirra, en í kjölfar samtalsins skrifaði hann eftir­farandi Twitter-færslu þar sem vitneskja Zuckerberg var dregin í efa:

Óvíst er hvort færslan muni lægja öldurnar milli frumkvöðlanna, en þeir virðast á öndverðum meiði þegar kemur að framtíðar­spár um gervi­greindar­tækni. Samkvæmt NRK hræðist Musk uppreisn vélmenna gegn mann­kyninu í náinni framtíð, ekki ósvipað og í kvik­myndinni Terminator.

Á hinn bóginn telur Zuckerberg gervi­greindar­tækni eiga eftir að bjarga lífum í fram­tíðinni, meðal annars með útrýmingu umferðar­slysa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár