Trump sagður ætla að biðja um 6 milljarða Bandaríkjadala neyðaraðstoð

Felli­bylurinn Harvey lagði stóran hluta af Houston í rúst.

Donald Trump, Bandaríkja­forseti, er sagður ætla að biðja Banda­ríkjaþing um að samþykkja tæplega sex milljarða Bandaríkja­dala neyðar­aðstoð til íbúa í Houston, vegna tjóns sem felli­bylurinn Harvey hefur valdið í borginni og nágrenni.

Stjórn­völd í Houston telja hins vegar að uppbygging í borginni kosti í það minnsta 125 milljarða Bandaríkja­dala, að því er fram kemur á vef BBC, og hafa þegar krafist þess að bandarísk stjórn­völd bregðist við hrika­legum afleiðingum felli­bylsins.

Mike Pence, vara­forseti Banda­ríkjanna, heimsótti hamfara­svæðin í gær og lofaði fólki þar að bandarísk yfirvöld ætluðu sér að endur­byggja það sem þyrfti að endur­byggja, og gera það „betur en nokkru sinni“.

Í það minnsta 39 hafa látið lífið vegna felli­bylsins en eignatjón er gífurlegt. Veður­fræðingar unnu náið með yfir­völdum í Texas áður en felli­bylurinn gekk á land, og er talið að vel skipulögð björgunar­vinna hafi bjargað því að ekki fór verra.

Trump hefur sjálfur líst því yfir, að hann ætli persónu­lega að styrkja hjálpar­starf og fórnar­lömb felli­bylsins með einni milljón Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 105 milljónum króna.

Yfirvöld í Texas reikna með að í það minnsta fjóra mánuði muni taka að ná glöggri mynd á það, hversu mikið tjónið er. Íbúar í Houston eru 2,3 milljónir og er borgin stærsta borg Texas ríkis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár