Högnuðust um 5,2 milljarða og eru að breyta reglum um verðbréfaviðskipti starfsmanna

Arðsemi eigin fjár Íslands­banka á fyrsta ársfjórðungi var 10,2 prósent, sem er yfir markmiðum bankans. Birna Einars­dóttir banka­stjóri segir bankann taka gagnrýni á þátttöku starfs­manna í nýlegu útboði á hlutum í bankanum alvarlega.

Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Íslandsbanki

Íslands­banki hagnaðist um 5,2 milljarða á fyrsta ársfjórðungi, saman­borið við 3,6 milljarða í fyrra. Arðsemi eigin fjár bankans var 10,2 prósent á fjórðungnum, en arðsemin var 7,7 prósent á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.

Arðsemin er yfir fjárhags­legum markmiðum bankans, sem segir helstu ástæður góðrar afkomu vera sterka tekju­myndun, aðhald í rekstri og jákvæða virðis­breytingu útlána, í tilkynningu um uppgjörið sem birt var eftir lokun markaða í dag.

Hreinar vaxta­tekjur bankans voru 9,2 milljarðar á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er vöxtur um 12,4 prósent frá fyrra ári. Hækkunin skýrist af stækkun lánasafnins og hærra vaxta­umhverfis, segir bankinn.

Hreinar þóknana­tekjur bankans jukust um 7,1 prósent á milli ára og námu 3,1 milljarði, en auknar tekjur í greiðslu­miðlun, eigna­stýringu, fjár­festingar­banka og verðbréfa- og gjaldeyris­miðlun leiddu þessa hækkun.

Eigið fé bankans nam 197,2 milljörðum króna í lok mars­mánaðar og var eiginfjár­hlutfall bankans 22,5 prósent að hagnaði fyrsta ársfjórðungs meðtöldum.

Kostnaðar­hlutfall bankans lækkaði á milli ára í 47,6 prósent úr 51,3 prósenti á sama tímabili. Þetta segir bankinn aðallega „vegna sterkrar tekju­myndunar og hagkvæmari reksturs“.

Eru að breyta reglum um þátttöku starfsmanna í útboðum

Í tilkynningu bankans er haft eftir Birnu Einars­dóttur banka­stjóra að bankinn sé ánægður með með afkomuna á fyrsta ársfjórðungi og bendir hún sérstak­lega á að kostnaður bankans hafi staðið í stað saman­borið við sama fjórðung í fyrra, þrátt fyrir 6,1 prósent verðbólgu.

Hún nefnir einnig þá miklu umræðu sem verið hefur í samfélaginu um sölu­ferlið í síðara útboðið á hlut ríkisins í bankanum og það fyrir­komulag sem notast var við.

„Meðal annars hefur komið fram gagnrýni á þátttöku starfs­manna bankans í útboðinu. Því tökum við alvarlega og stendur vinna yfir við breytingar á reglum bankans varðandi verð­bréfa­viðskipti starfs­manna,“ er haft eftir Birnu, en áður hafði Íslands­banki veitt Kjarnanum þau svör að verið væri að „rýna“ reglurnar.

Alls átta starfs­menn, eða aðilar tengdir starfs­mönn­um, tóku þátt í útboð­inu sem fram fór í mars, en fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf og verð­bréfa­miðlun Íslands­­­banka voru á meðal umsjón­­ar­að­ila þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár