Landsbankinn hagnaðist um 3,2 milljarða en arðsemi dvínar

Arðsemi eigin fjár Lands­bankans var 4,7 prósent á fyrsta ársfjórðungi, sem er vel undir tíu prósenta arðsemis­markmiði bankans. Hagnaður bankans er meira en helmingi minni en á sama tímabili í fyrra.

Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Lands­bankinn hagnaðist um 3,2 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins, saman­borið við 7,6 milljarða hagnað á sama tímabili í fyrra, samkvæmt uppgjörs­tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag.

Arðsemi eigin fjár bankans var einungis 4,7 prósent saman­borið við 11,7 prósent í fyrra. Bankinn er með það markmið að arðsemi eigin fjár sé tíu prósent og er allnokkuð undir því á fyrsta ársfjórðungi, en arðsemin yfir allt síðasta ár var 10,8 prósent.

Eigið fé Lands­bankans var 265,3 milljarðar króna þann 31. mars og eiginfjár­hlutfallið var 24,3 prósent. Bankinn mun greiða alls 20,6 milljarða króna í arð á árinu, aðallega til ríkis­sjóðs, sem á 98,2 prósent hlut í Lands­bankanum.

Markaðs­hlutdeild bankans á einstaklings­markaði mældist 38,7 prósent í lok mars, sem er meira en á sama tíma í fyrra.

Hreinar vaxta­tekjur voru 10,3 milljarðar á fyrstu þremur mánuðum ársins og jukust um 19 prósent frá fyrra ári, að sögn bankans aðallega vegna þess að efnahags­reikningurinn er stærri og ávöxtun lausafjár betri.

Hreinar þjónustu­tekjur bankans jukust um 28,5 prósent á milli ára og er það einkum sagt vera vegna vaxandi umsvifa í eigna­stýringu og markaðs­viðskiptum, en þær fóru úr 2,1 milljarði upp í 2,6 milljarða.

Rekstrar­kostnaður bankans var 6,7 milljarðar króna á tíma­bilinu saman­borið við 6,6 milljarða króna á sama tímabili í fyrra og þar af voru laun og launa­tengd gjöld 3,8 milljarðar, sama upphæð og á fyrra ári. Kostnaður bankans sem hlutfall af tekjum hans (K/T) fyrstu þrjá mánuði ársins var 54,9 prósent, saman­borið við 45,8 prósent á sama tímabili í fyrra.

Eignir bankans námu 1.734 millljörðum króna við lok ársfjórðungsins og höfðu vaxið um 3,8 milljarða frá upphafi árs. Innlán viðskipta­vina voru 922,6 milljarðar króna undir lok ársfjórðungsins og jukust um 22,5 milljarða á ársfjórðungnum.

Útlán bankans jukust um 29 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022, en útlána­aukninguna segir bankinn að rekja megi til aukningar á lánum til bæði einstaklinga og fyrir­tækja. Bankinn segir um 90 prósent allra nýrra íbúðalána bankans hafi vera óverðtryggð á fyrstu mánuðum ársins og 58 prósent lána með fasta vexti, flest til þriggja ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár