Stjórnendur Íslandsbanka segjast hlusta á gagnrýni og að verið sé að rýna reglur

Fjármála­eftirlitið rannsakar nú mögulega hagsmuna­árekstra vegna þátttöku starfs­manna sölu­ráðgjafa í lokuðu útboði á hlutum í Íslands­banka. Alls átta starfs­menn bankans, eða aðilar þeim tengdir, tóku þátt.

Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Íslandsbanki

Stjórn­endur Íslands­banka segjast hlusta á þá gagnrýni sem fram hefur komið um þátttöku starfs­fólks hans í lokuðu útboði á hlutum íslenska ríkisins í bankanum sem fór fram fyrir rúmum mánuði. Reglur um þátttöku starfs­manna séu nú rýndar í kjölfar þessa.

Þetta kemur fram í svari Íslands­banka við fyrir­spurn Kjarnans um málið.

Þar segir að alls átta starfs­menn, eða aðilar tengdir starfs­mönnum, hafi tekið þátt í útboðinu, en fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og verðbréfa­miðlun Íslands­banka voru á meðal umsjón­ar­að­ila þess.

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands er að rannsaka hátt­semi ein­hverra þeirra fimm inn­lendu sölu­að­ila sem Banka­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þar sé verið að skoða mögu­lega hags­muna­á­rekstra, meðal ann­ars vegna þess að starfs­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­in­u. Þar sé að minnsta kosti verið að horfa á þátttöku áður­nefndra átta starfs­manna eða tengdra aðila innan Íslands­banka og kaup stærsta eiganda Íslenskra Verð­bréfa, sem er einnig eig­in­kona for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, keypti auk þess hlut.

Aldrei tíðkast erlendis

Í minn­is­blaði Banka­sýsl­u ríkisins til fjár­laga­nefnd­ar, sem birt var í fyrradag, kom fram að það væri stofn­un­inni „mikil von­brigði að strax í kjöl­far útboðs­ins hefðu vaknað spurn­ingar um mögu­lega bresti í fram­kvæmd þess, m.a. hugs­an­lega hags­muna­á­rekstra hjá aðilum sem stóðu að fram­kvæmd söl­unnar og mögu­lega ófull­nægj­andi athugun á hæfi fjár­festa sem tóku þátt í útboð­in­u.“

Á fundi fjár­laga­nefndar í gær sagði Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Banka­sýslunnar, að allir fimm inn­lendu sölu­ráð­gjaf­arnir hefðu fengið fyr­ir­spurnir frá Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands vegna rann­sóknar þess, en að það lægi ekki fyrir að grunur væri um mögu­leg brot á reglum eða lögum gagn­vart þeim öll­u­m.

Hann hafi rekið augun í nafn starfs­manns Íslands­banka á væntum kaupenda­lista þegar verið var að safna áskriftum og spurt bankann út í það, en fengið þau svör að reglu­vörður hefði samþykkt þetta. Jón Gunnar sagði að erlendis hefði það aldrei tíðkast að starfs­menn sölu­ráðgjafa tækju þátt í útboði og að það hefði verið litið hornauga.

Stjórnendur bankans meðvitaðir um reglurnar

Tveir starfs­menn verð­bréfa­miðl­unar Íslandsbank­a, sem var á meðal sölu­ráðgjafa, keyptu hlut í útboðinu. Ómar Özcan, sem keypti fyrir 27 millj­ónir króna, og Geir Oddur Ólafs­son, sem keypti minnst allra þeirra sem voru sam­þykkt­ir, eða fyrir rúm­lega 1,1 milljón króna.

Þá keypti Brynjólfur Stef­áns­son, sjóðs­stjóri hjá Íslands­sjóð­um, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis í eigu Íslands­banka, fyrir 4,5 millj­ónir króna, Guð­mundur Magnús Daða­son, sem starfar í gjaldeyris­miðlun bank­ans, keypti fyrir 5,5 millj­ónir króna og Ásmundur Tryggva­son, sem er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­inga­sviðs, keypti fyrir 11 millj­ónir króna.

Ari Dan­í­els­­­son, stjórn­­­­­ar­­­maður í Íslands­­­­­banka, keypti fyrir 55 millj­­­ónir króna, og Rík­­­harður Daða­­­son, sam­býl­is­­­maður Eddu Her­­­manns­dóttur mark­aðs- og sam­­­skipta­­­stjóra bank­ans, keypti fyrir tæpar 27 millj­­­ónir króna.

Kjarninn hefur ekki upplýsingar um hver áttundi aðilinn er.

Í svörum Íslands­banka við fyrir­spurn Kjarnans kemur fram að allir ofan­greindir séu flokkaðir sem fagfjárfestar og hafi fengið leyfi reglu­varðar til að kaupa í samræmi við reglur bankans þar að lútandi. „Starfs­fólk þurfti að sækja um heimild til reglu­varðar og höfðu þrengri tímaramma en aðrir til þátttöku, kveðið var á um lágmarks­eignarhalds­tíma og hámarks­fjárhæð kaupa í samræmi við reglur. Allir ofan­greindir starfs­menn sóttu um heimild í samræmi við reglur bankans og var á þeim grund­velli veitt heimild.“

Aðspurð um hvort aðrir stjórn­endur bankans hafi komið að ákvörðun um hvort starfs­menn mættu kaupa svaraði upplýsinga­teymi Íslands­banka: „Stjórn­endur bankans eru meðvitaðir um þær reglur sem bankinn fylgir.“

Búið að greiða út stóran hluta af grunn­þóknun

Allir sölu­ráð­gjaf­arnir sem Banka­sýslan valdi áttu sam­tals að fá 703 millj­ónir króna fyrir starf sitt við útboð­ið. Þar af áttu inn­lendir sölu­ráð­gjafar að fá 322,5 millj­ónir króna. Sú upp­hæð skipt­ist þannig að 193,5 millj­ónir króna áttu að greið­ast í svo­kall­aða grunn­þóknun en 129 millj­ónir króna í svo­kall­aða val­kvæða þókn­un.

Banka­sýslan hefur þegar greitt 79 millj­ónir króna í grunn­þóknun en lög­menn hennar skoða nú hvort mögu­leiki sé að halda þeim 114,5 millj­ónum króna sem eftir standa af henni eft­ir. Aðspurður um greiðslu val­kvæðu þókn­un­ar­innar sagði Jón Gunn­ar á fundinum í gær: „Val­kvæða þókn­un­in, við þurfum ekki að greiða hana.“

Staðan er öðru­vísi hvað varðar erlendu sölu­ráð­gjaf­anna í útboð­inu Þeir eru þegar búnir að fá 158 af 201,4 milljón króna grunn­þóknun sinni greidda og ógreidd val­kvæð þóknun til þeirra er 134,4 millj­ónir króna.

Í áður­nefndu minn­is­blaði Banka­sýslu rík­is­ins, sem birt var á þriðjudag, segir að engin ákvörðun verði tekin um greiðslu á val­kvæðri þóknun „fyrr en að nið­ur­staða athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka („FME“) liggur fyrir og hefur stofn­unin sagt opin­ber­lega að ef ein­hverjir sölu­ráð­gjafar hafi brugð­ist stofn­un­inni þá muni val­kvæð þóknun vera skert eða ekki greidd út.“

Fjár­mála­ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar er búinn að fá allar þær 39,5 millj­ónir króna sem hann átti að fá greiddar og lög­menn sem unnu fyrir hana í ferl­inu 3,6 af 5,1 milljón króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár