Arion banki hagnaðist um 5,8 milljarða og greiddi næstum 27 milljarða til hluthafa

Vaxta­tekjur Arion banka hafa aukist verulega samhliða útlána­aukningu. Kostnaðar­hlutfall bankans heldur áfram að lækka, arðsemi eigin fjár er áfram há og hreinn vaxta­munur bankans hefur ekki verið meiri í mörg ár.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Arion banki hagnaðist um 5,8 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi yfir­standandi árs, sem er mjög svipuð upphæð og hann hagnaðist um á sama tímabili í fyrra, þegar hagnaðurinn var sex milljarðar króna. Hagnaður bankans á síðasta ári í heild var 28,6 milljarðar króna og því hefur hann hagnast um 34,4 milljarða króna á 15 mánuðum.

Arðsemi eigin fjár bankans var 12,7 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er aðeins meiri arðsemi en var á sama tímabili í fyrra, þegar hún var 12,5 prósent, en minna en hún var heilt yfir á síðasta ári þegar hún var 14,7 prósent.

Þetta kemur fram í uppgjöri Arion banka fyrir fyrsta ársfjórðung sem birt var í dag. Þar segir að bankinn hafi skilað alls 26,8 milljarða króna til hluthafa bankans í formi arðgreiðslna vegna frammistöðu síðasta árs og með endur­kaupum á hluta­bréfum þeirra. Í tilkynningunni til Kaup­hallar er greint frá því að samningur um sölu á Valitor til Rapyd hafi verið fram­lengdur til 1. júní 2022. „Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á lúkningu viðskiptanna hefur Rapyd greitt Arion banka 10 milljónir Bandaríkja­dala í viðbótar­greiðslu, sem færð verður til tekna við samningslok.“

Vaxta­munur – munurinn á þeim vöxtum sem bankinn greiðir fólki og fyrir­tækjum fyrir innlán sem þau geyma hjá honum og þeim vöxtum sem hann leggur á útlán – eykst og var 3,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi og hækkar úr 2,8 prósent á síðasta ársfjórðungi síðasta árs. Hann hefur ekki verið svo mikill síðan á árinu 2016. Til sam­an­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­sent árið 2020. Hjá stórum nor­rænum bönkum var hann undir einu pró­senti það ár, sam­kvæmt ársriti ­Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Eigið fé 173 milljarðar króna

Vaxta­tekjur Arion banka voru 17,5 milljarðar króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 sem er 48,3 prósent hærri vaxta­tekjur en bankinn var með á fyrsta ársfjórðungi 2021, þegar þær voru 11,8 milljarðar króna. Vaxta­kostnaður eykst þó einnig umtals­vert að hreinar vaxta­tekjur vaxa um 2,2 milljarða króna ef miðað er við sama tímabil í fyrra.

Í tilkynningu til Kaup­hallar Íslands er haft eftir Benedikt Gíslasyni, banka­stjóra Arion banka, að útlána­vöxtur hafi verið umtalsverður á fjórðungnum, sérstak­lega þegar kemur að lánum til fyrir­tækja. „Á síðustu tveimur árum hefur Arion banki veitt um 36 milljörðum króna í lán til fyrir­tækja sem síðar hafa verið seld til stofnana­fjárfesta eins og lífeyris­sjóða. Slíkt gefur okkur aukið svigrúm til frekari lánveitinga til fyrir­tækja og eykur fjöl­breytileika í eigna­safni lífeyris­sjóða.“

Eiginfjár­hlutfall bankans var 22,9 prósent í lok mars, eigið fé 173 milljarðar króna og eignir 1.341 milljarður króna.

Kostnaðar­hlutfall, sem mælir hvað kostnaður við rekstur bankans er stór hluti af tekjum hans, heldur áfram að lækka og er nú 42,7 prósent. Einfaldasta leiðin til að ná þessu hlutfalli niður er að fækka starfs­fólki, en 753 störfuðu hjá Arion banka í lok mars. Það eru 19 færri en gerðu það á sama tíma í fyrra.

Markaðs­virði bankans var 255 milljarðar króna við lok viðskipta í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár