Búið að samþykkja tilboð Everton í Gylfa – Kynntur á morgun

Gylfi Sigurðsson mun kosta um 45 milljónir punda þegar hann fer til Everton frá Swansea.

Tilboð knattspyrnu­liðsins Everton í íslenska lands­liðsmanninn Gylfa Sigurðsson hefur verið samþykkt. Tilboðið er talið vera um 45 millj­ónir punda, tæp­lega sjö millj­arðar króna. Ef af verður mun Gylfi verða dýr­asti leik­maður í sögu Everton. Hann verður raunar á meðal 30 dýr­ustu knatt­spyrnu­manna sög­unn­ar. Frá þessu er greint á vef Sky Sports.

Búist er við því að Gylfi fari í læknis­skoðun á morgun og verði í kjölfarið kynntur sem leikmaður Everton.

Kaup­verðið er talið vera um 45 millj­ónir punda, tæp­lega sjö millj­arðar króna. Ef af verður mun Gylfi verða dýr­asti leik­maður í sögu Everton. Hann verður raunar á meðal 30 dýr­ustu knatt­spyrnu­manna sög­unn­ar.

Everton hefur verið áhuga­samt um að kaupa Gylfa, sem er lyk­il­leik­maður í íslenska lands­lið­inu og hefur leikið þorra síns fer­ils í Englandi, um langt skeið. Félagið spurð­ist fyrir um hann í jan­úar síð­ast­liðnum og gerði til­boð í lands­liðs­mann­inn fyrr í sum­ar, sem var hafn­að. Gylfi lýsti hins vegar yfir áhuga á því að fara til­ Everton og fór ekki með­ Swan­sea í æf­ing­ar­ferð til Banda­ríkj­anna í síð­asta mán­uði þar sem hann var ekki í réttu hug­ar­á­standi til þess. Gylfi hefur æft með aðal­lið­i Swan­sea frá því að það snéri aftur til baka en ekki tekið þátt í æfing­ar­leikjum liðs­ins. Ronald Koeman, knattspyrnu­stjóri Everton, sagði á blaðamanna­fundi fyrir helgi að það væri stutt í að það næðist saman um kaup á Gylfa.

Everton er eitt sögu­fræg­asta knatt­spyrnu­fé­lag Bret­landseyja. Það er frá Liver­pool-­borg og helsti keppi­nautur þess er nágranna­lið­ið Li­ver­pool. Félagið er 139 ára gam­alt og er sjötta sig­ur­sælasta félags enskrar knatt­spyrn­u. Everton hefur unnið deild­ina níu sinnum (síð­ast árið 1987), FA-bik­ar­inn fimm sinnum (síð­ast árið 1995) og einn ­Evr­ópu­tit­il, sem kom í hús árið 1985.

Liðið hefur keypt fjölda leik­manna í sum­ar. Þar ber helst að nefna Wa­y­ne Roo­ney, sem ólst upp hjá Everton en fór til­ Manchester United ­fyrir 13 árum síðan og er marka­hæsti leik­maður þess félags frá upp­hafi. Roo­ney er einnig marka­hæsti leik­maður enska lands­liðs­ins frá upp­hafi. Hann markaði endurkomu sína um liðna helgi með því að skora sigurmark Everton gegn Stoke í fyrstu umferð ensku úrvalds­deildarinnar.

Aðrir sem komið hafa til­ Everton í sumar eru Da­vy Kla­assen, Jor­dan Pick­ford, Michael Kea­ne, Sandro Ramirez og Cuco Mart­ina. Þá keypti félagið fram­herj­ann Hen­ry Onyek­ur­u og lán­aði hann strax til belgíska liðs­ins And­er­lecht. Á móti hefur félagið selt nokkra leik­menn, og munar þar mest um Romelu Lukaku ­sem knatt­spyrnu­stjóri Everton ­segir að geti endað með að kosta 95 millj­ónir punda. Félagið seg­ist raunar hafa ein­ungis eytt sjö millj­ónum punda nettó enn sem komið er, þrátt fyrir að hafa keypt leik­menn fyrir meira en 100 millj­ónir punda.

Snemma árs 2016 keypt­i Far­had Mos­hiri 49,9 pró­sent hlut í Everton auk þess sem hann á kaup­rétt á meiru hluta­fé. Frá þeim tíma hefur félagið gengið í gegnum miklar breyt­ingar og er m.a. í þeim fasa að reisa sér nýjan heima­völl við Bram­ley Moor­e höfn­ina í Liver­pool-­borg. Gangi áformin að óskum mun liðið hefja leik á vell­inum haustið 2020. Knatt­spyrnu­stjóri Everton er hol­lenska goð­sögnin Ron­ald Koem­an og yfir­maður knatt­spyrnu­mála er ­Steve Walsh, sem var áður hjá ­Leicester þegar lið­inu tókst að vinna ensku deild­ina í fyrra. Báðir voru ráðnir til starfa eftir að Mos­hiri keypti sig inn í félag­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár