Velkomnir til Everton Íslendingar!

Stuðnings­menn Everton þurfa nú að búa sig undir það að öll íslenska þjóðin fari að fylgjast með liðinu þegar Gylfi Sigurðsson skrifar undir hjá félaginu. En við hverju geta óvanir búist? Og hvað er eiginlega svona sérstakt við endurkomu Wayne Rooney?

Það er viðbúið að Gylfi Sigurðsson mun ganga til liðs við Everton í nánustu framtíð fyrir nánast súrrealíska fjárhæð. Allir aðilar máls virðast vera á því að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær salan klárist. Samhliða mun áhugi Íslendinga á Everton aukast til muna. Fleiri leikir með liðinu verða sýndir í íslensku sjónvarpi. Meira verður fjallað um það í íslenskum fjöl­miðlum. Og Everton verður andlag fleiri samræðna um fótbolta á vinnu­stöðum landsins. Everton verður „Íslendingalið“ og Guðjón Guðmundsson, Gaupi, fær enn fleiri tækifæri en ella til að notast við orðskrípið „Gutta­garður“ yfir hina sögufrægu alþýðu­kirkju Goodison Park.

Fyrir Everton-stuðnings­menn verður erfitt að aðlagast þessum aukna áhuga úr nærumhverfinu. Við erum vanir því að fylgjast með okkar liði í einrúmi og án áreitis. Að búast við hinu versta en vonast eftir því besta. Og fagna mjög ólíkum sigrum en þeir sem halda með liðum sem raun­verulega vinna titla.

En hverju geta íslenskir knattspyrnu­áhugamenn átt von á þegar þeir fara raun­verulega að fylgjast með Everton?

Félagið er sjötta sigur­sælasta knattspyrnu­félag Englands. Það hefur unnið deildina níu sinnum, FA-bikarinn fimm sinnum og á einn Evrópu­titil. Síðasti deildar­titillinn kom hins vegar fyrir 30 árum, eini Evrópu­titillinn fyrir 32 árum og síðasti FA-bikar liðsins fór á loft fyrir 22 árum. Saman­dregið hefur liðið verið í nánast stans­lausri eyðimerkur­göngu í áratugi. Það hefur einungis einu sinni komist í úrslita­leik á þessari öld, árið 2009, sem tapaðist á andlausan hátt.

Það komst í meistara­deildina tímabilið 2004-2005 þrátt fyrir að vera með mennska traktorinn Marcus Bent sem sinn helsta sóknar­mann. Raunar var sá árangur tvöfaldur sigur þar sem Liverpool náði fyrir vikið ekki meistara­deildar­sæti, en allir ósigrar Liverpool jafnast á við Everton-sigra. Svo vann Liverpool bara meistara­deildina og reglunum var breytt til að þeir fengu að verja þann titil. Og sigurinn snérist í ósigur.

Everton fékk auðvitað besta mögulega lið í pottinum sem mótherja sem hægt var að fá í umspili um sæti í riðla­keppni meistara­deildarinnar tímabilið eftir, Villareal frá Spáni. Sú barátta endaði með því að Pierluigi Collina, ein frægasti dómari sögunnar, dæmdi sinn síðasta leik á ferlinum í síðari leik liðanna. Hann ákvað að gera hann eftir­minnilegan með því að dæma fullkomlega löglegt mark af Duncan Ferguson og koma þar með í veg fyrir að Everton kæmist í riðla­keppnina. Ég grét þennan dag seint í ágúst 2005, í nýkeypta Phil Neville-búningnum mínum.

Þeir hafa því verið fáir eiginlegu sigrarnir sem aðdáendur á borð við mig, sem hef haldið með Everton frá 1986, hafa getað fagnað. Sjálfur hef ég séð Everton með berum augum spila ellefu sinnum. Þeir hafa unnið einn af þeim leikjum, gegn KR á Laugadardalsvelli á Íslandi árið 1995.

Þess vegna leitum við að annars konar sigrum til að ylja okkur um hjarta­rætur. Versti tíminn til að vera Everton-aðdáandi var á hinum myrka tíunda áratug síðustu aldar. Þá fengu iðnaðar­þjálfarar eins og Mike Walker og Walter Smith að leika lausum hala og búa til leiðinlegustu lið sem hafa líkast til spilað í efstu deild. Eina ljós­glætan á þessum árum var þegar Joe Royle tók við og vann FA-bikarinn. En hann hætti auðvitað skömmu síðar þegar hann fékk ekki að kaupa Tore Andre Flo frá Brann.

Stærstu litlu sigrarnir, svokallaðir andsigrar, voru björgunarafrekin árin 1994 og 1998. Ég horfi enn reglulega á Youtube-mynd­bandið af Everton snúa við 0-2 stöðu, sem þýddi að Everton hefði fallið, í 3-2 sigur með tveimur mörkum frá Graham Stuart og einu frá stríðs­hundinum Barry Horne, sem jafnaði með því að skjóta boltanum í skeytin inn af rúmlega 20 metra færi. Ég horfði á leikinn í litla 14 tommu fermingar­sjónvarpinu mínu. Einn með teppi yfir höfðinu. Tilfinningin þegar Stuart skoraði seinna markið sitt, níu mínútum fyrir leikslok, er ein sú sérkennilegasta gleði­tilfinning sem ég hef fundið á ævinni.

Eftir að David Moyes tók við fylgdu ellefu ár af því að vera lítil­magni. Moyes talaði alltaf niður möguleika liðsins og lét sem að það væri að fara með hnífa í byssu­bardaga. Þetta var þægilegt skjól. Og það var hægt að njóta litlu sigranna í öruggri vissu um að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að vinna titla.

Sá stærsti kom 19. október 2002. Þá spilaði mjög óspennandi Everton-liðið við Arsenal, sem hafði ekki tapað í 30 leikjum. Undir lok leiksins var 16 ára dreng skipt inn á. Sá hafði þegar leikið nokkra aðalliðs­leiki og meira að segja skorað tvívegis í deildar­bikarleik gegn Wrexham nokkrum vikum áður. En þetta var leikurinn sem allir muna eftir. Drengurinn var með 80 pund á viku í laun á þessum tíma og leit út eins og einhverskonar dverg­tröll með sprengi­kraft. En á síðustu mínútu leiksins tók hann niður háa sendingu á vallar­helmingi Arsenal, snéri sér með boltann og skaut honum í slánna og inn af um 20 metra færi framhjá David Seaman. „Munið eftir þessu nafni,“ emjaði enski þulurinn. Og nafnið var auðvitað Wayne Rooney.

Í fyrsta sinn í áratugi var kominn einhver von. Einhver neisti á heims­mælikvarða sem gæti lyft Everton upp úr meðal­mennskunni og svart­nættinu og upp í hæstu hæðir. En tæpum tveimur árum síðar var hann farinn til að gerast marka­hæsti leikmaður Manchester United og Englands frá upphafi. Í hans stað keypti Everton áður­nefndan Marcus Bent frá Ipswich á 450 þúsund pund.

Allt varð eðlilegt, þungt og erfitt aftur. Til að setja þetta tímabil í sögu Everton í samhengi þá má benda á að á meðan að peningar tóku yfir ensku deildina, og lið fóru að kaupa leikmenn á tugi milljóna punda reglulega, þá eyddi David Moyes 5,6 milljónum punda nettó á ellefu árum. Fyrir það fæst ekki margt. Nema nokkur stykki af Marcus Bent. Enda var hápunktur næstu ára líklega atburður sem átti sér stað í æfingar­leik. Eða réttara sagt svokölluðum ágóðaleik, sem leikmenn sem spila lengi fyrir sama félagið fá gjarnan sem heiðurs­vott.

Það eru líklega flestir búnir að átta sig á því að ég er að tala um leik Everton gegn AEK frá Aþenu á Goodison Park 8. ágúst 2012. Ágóða­leikurinn var fyrir andhetjuna Tony Hibbert, hægri bakvörð sem hafði leikið 309 leiki án þess að skora. Árum saman höfðu stuðnings­menn Everton öskrað á Hibbert að skjóta hvar sem var á vellinum. Og sagt í gríni að það yrðu uppþot ef hann myndi skora (e. If Hibbo scores we riot). Það gerðist auðvitað á 53. mínútu leiksins og stuðnings­mennirnir stóðu við stóru orðin. Hund­ruð Everton-á­han­genda þustu inn á völl­inn til að fagna and­hetj­unni sinni. Stöðva þurfti leik­inn í nokkrar mín­útur á meðan að völl­ur­inn var rýmd­ur. Það hlýtur að vera eins­dæmi að það eigi sér stað inn­rás á völl hjá svona stóru liði í leik á und­ir­bún­ings­tíma­bil­inu.

Hinn hápunkturinn var annar ágóða­leikur sem fram fór 2015. Í þetta sinn var hann fyrir Duncan Ferguson og auðvitað var hann gegn Villareal. Ástæðan fyrir því að þetta var stórkost­legur viðburður var ekki bara sá að Duncan, fallegasti knattspyrnu­maður allra tíma, var heiðraður. Heldur líka sá að týndi sonurinn, Wayne Rooney, spilaði með og klæddist Everton-treyjunni í fyrsta sinn í 11 ár.

Þann 9. júlí, 13 árum eftir að hann fór, snéri Rooney svo alfarið aftur. Hann er orðinn 31 árs og keyrður meira en 1985 árgerð af Volvo 240, en hann er samt Wayne Rooney að snúa heim til Everton. Hann tók á sig umtals­verða launa­lækkun og kom því skýrt á framfæri að það kæmi ekkert annað lið til greina hjá honum en Everton. Og heimkoma hans er líklega ein síðasta rómantíska sagan sem sögð verður í alþjóða­knattspyrnu­heiminum, þar sem peningar og einstaklings­hyggja hafa drepið niður barna­legan sjarmann sem fylgir liðs­hollustu (sjá Ross Barkley).

Volvo 240, sirka 1985 árgerðin.
Volvo 240, sirka 1985 árgerðin.

Auðvitað er Everton-félagið sem Rooney snéri aftur til allt annað dæmi en það sem hann yfirgaf. Farhad Moshiri keypti tæplega 49,9 pró­sent hlut í Everton í janúar 2016 auk þess sem hann á kaup­rétt á meiru hluta­fé. Frá þeim tíma hefur félagið gengið í gegnum miklar breyt­ingar og er m.a. í þeim fasa að reisa sér nýjan heima­völl við Bramley Moore höfn­ina í Liver­pool-­borg. Gangi áformin að óskum mun liðið hefja leik á vell­inum haustið 2020.

í sumar hefur Everton keypt leikmenn fyrir meira en 100 milljónir punda, en þrátt fyrir það hefur það enn sem komið er einungis eytt um sjö milljónum punda nettó. Þess vegna ætlar það sér að styrkja liðið enn frekar með kaupunum á Gylfa, sóknar­manni og örfættum varnar­manni. Á móti á enn eftir að selja Ross Barkley fyrir einhverja kjánalega upphæð.

Knatt­spyrnu­stjóri Everton í dag er hol­lenska goð­sögnin Ron­ald Koeman og yfir­maður knatt­spyrnu­mála er ­Steve Walsh, sem var áður hjá ­Leicester þegar lið­inu tókst að vinna ensku deild­ina í fyrra. Báðir voru ráðnir til starfa eftir að Moshiri keypti sig inn í félag­ið. Það er því stuð hjá Everton.

Og framhjá því verður ekki litið að Rooney hefur ýmsa aðra kosti en knattspyrnu­hæfileika sem eru eftirsóknar­verðir fyrir nútíma­knattspyrnu­félag. Hann er risastórt og heims­þekkt vörumerki sem mun auka áhuga á Everton á mörkuðum í til dæmis Asíu og Afríku, þar sem hlutdeild félagsins hefur hingað til verið lítil. Rooney er líka samfélags­miðla­fyrirbæri. Hann er með 15,5 milljónir fylgjendur á Twitter og 25,5 milljónir á Facebook. Til saman­burðar er Everton með 1,25 milljónir fylgjenda á Twitter og þrjár milljónir á Facebook. Það þarf því ekki nokkur að undrast yfir því að Everton bætti öll samfélags­miðla­umferðarmet þegar tilkynnt var um kaupin á Rooney.

Þá er annar hver aðeins of þungi ársmiða­hafi Everton búinn að troða sér í nýja treyju með Rooney aftan á. Fjár­festingin í Rooney mun því borga sig mjög fljótt til baka, ef hún er ekki þegar búin að gera það.

Nær öruggt þykir að Gylfi Sigurðsson gangi til liðs við Everton á næstu dögum fyrir 45-50 milljónir punda.
Nær öruggt þykir að Gylfi Sig­urðs­son gangi til liðs við Everton á næstu dögum fyrir 45-50 millj­ónir punda.

Svo er bara að vona að Rooney muni geta eitthvað líka. Að rómantíkin kveiki neista í honum. Everton liðið hefur nefnilega allt til þess að koma á óvart. Magn fyrirliða í liðinu er nánast skrýtið. Phil Jagielka er fyrirliði Everton og Leighton Baines vara­fyrirliði. Rooney var fyrirliði Manchester United og Englands um árabil. Ashley Williams er fyrirliði Wales og Seamus Coleman er fyrirliði írska lands­liðsins. Þá var Davy Klaassen, betur þekktur sem „osta­stráið“ (e. cheese straw) einnig fyrirliði Ajax áður en hann var keyptur í sumar, og leiddi liðið sem slíkur í úrslita­leik í Evrópu­keppni.

Í fyrsta sinn í þrjá áratugi er von í brjósti stuðnings­manna Everton. Von um að þeir geti unnið eitthvað raun­verulegt, en þurfi ekki að búa til hversdags­lega sigra úr sérkenni­legum ástæðum. Og í ljósi þess að Gylfi er á leiðinni til Everton, með allri þeirri viðbótar­athygli sem mun fylgja því frá íslensku þjóðinni, er ekki seinna vænna. Við stuðnings­mennirnir erum ekki lengur einir að horfa á Everton undir teppunum okkar að vona það besta en búast við hinu versta. Heldur fylgist öll þjóðin með.

Eða þangað til að hann ákveður á síðustu stundu að fara til Liverpool í staðinn. Breytir sigri í ömurlegan ósigur. Og Íslendingar halda áfram að sniðganga Everton líkt og þeir hafa gert hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár