Koeman segir Everton nálægt því að kaupa Gylfa Sigurðsson

Íslenski lands­liðs­maðurinn Gylfi Sigurðsson er stutt frá því að verða dýrasti leikmaður Everton frá upphafi og á meðal dýrustu leikmanna sögunnar. Knattspyrnu­stjóri Everton segir að kaupin séu nálægt því að klárast.

Ronald Koeman, knattspyrnu­stjóri Everton, segir að líðið sé mjög nálægt því að ganga frá kaupum á Gylfa Sigurðs­syni. Á blaðamanna­fundi í dag sagðist hann ekki geta sagt til hvort að gengið verði frá kaupunum fyrir fyrsta leik liðsins i ensku deildinni, sem fer fram næsta laugardag.

Koeman sagði að orðrómur um að viðræður um kaupin á Gylfa hefðu siglt í strand væru ekki réttar. Everton væri enn í viðræðum. „Þetta er alltaf leikur milli þess félags sem er að selja og þess sem er að kaupa. En við við erum nálægt þessu og við vonumst til þess að samkomulag náist sem fyrst.“

Kaup­verðið er talið vera á fimmta tug milljóna punda, tæplega sjö milljarðar króna. Ef að yrði verður Gylfi dýrasti leikmaður í sögu Everton. Hann verður raunar á meðal 30 dýrustu knattspyrnu­manna sögunnar.

Everton hefur verið áhugasamt um að kaupa Gylfa, sem er lykil­leikmaður í íslenska lands­liðinu og hefur leikið þorra síns ferils í Englandi, um langt skeið. Félagið spurðist fyrir um hann í janúar síðastliðnum og gerði tilboð í lands­liðsmanninn fyrr í sumar, sem var hafnað. Gylfi lýsti hins vegar yfir áhuga á því að fara til Everton og fór ekki með Swansea í æfingar­ferð til Banda­ríkjanna í síðasta mánuði þar sem hann var ekki í réttu hugar­ástandi til þess. Gylfi hefur æft með aðalliði Swansea frá því að það snéri aftur til baka en ekki tekið þátt í æfingar­leikjum liðsins. Ekki er búist við því að hann spili með liðinu um helgina jafnvel þótt að kaupin klárist ekki.

Everton er eitt sögu­frægasta knattspyrnu­félag Bretlands­eyja. Það er frá Liverpool-borg og helsti keppinautur þess er nágranna­liðið Liverpool. Félagið er 139 ára gamalt og er sjötta sigur­sælasta félags enskrar knatt­spyrnu. Everton hefur unnið deildina níu sinnum (síðast árið 1987), FA-bikarinn fimm sinnum (síðast árið 1995) og einn Evrópu­titil, sem kom í hús árið 1985.

Liðið hefur keypt fjölda leikmanna í sumar. Þar ber helst að nefna Wayne Rooney, sem ólst upp hjá Everton en fór til Manchester United fyrir 13 árum síðan og er marka­hæsti leikmaður þess félags frá upphafi. Rooney er einnig marka­hæsti leikmaður enska lands­liðsins frá upphafi. Aðrir sem komið hafa til Everton í sumar eru Davy Klaassen, Jordan Pickford, Michael Keane, Sandro Ramirez og Cuco Martina. Þá keypti félagið framherjann Henry Onyekuru og lánaði hann strax til belgíska liðsins Anderlecht. Á móti hefur félagið selt nokkra leikmenn, og munar þar mest um Romelu Lukaku sem knattspyrnu­stjóri Everton segir að geti endað með að kosta 95 milljónir punda. Félagið segist raunar hafa einungis eytt sjö milljónum punda nettó enn sem komið er, þrátt fyrir að hafa keypt leikmenn fyrir meira en 100 milljónir punda.

Snemma árs 2016 keypti Farhad Moshiri 49,9 prósent hlut í Everton auk þess sem hann á kauprétt á meiru hlutafé. Frá þeim tíma hefur félagið gengið í gegnum miklar breytingar og er m.a. í þeim fasa að reisa sér nýjan heimavöll við Bramley Moore höfnina í Liverpool-borg. Gangi áformin að óskum mun liðið hefja leik á vellinum haustið 2020. Knattspyrnu­stjóri Everton er hollenska goðsögnin Ronald Koeman og yfirmaður knattspyrnu­mála er Steve Walsh, sem var áður hjá Leicester þegar liðinu tókst að vinna ensku deildina í fyrra. Báðir voru ráðnir til starfa eftir að Moshiri keypti sig inn í félagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár