Tónlistarhátíðin sem átti að vera brandari

Tónlistar­hátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin í fjórtánda skipti á Ísafirði um páskana. Vestfirski dúettinn Between Mountains er á meðal þeirra sem munu stíga á svið, en hljóm­sveitin fór með sigur úr býtum á Músík­tilraunum 2017.

Between Mountains
Between Mountains Hin fjórtán ára gamla Katla Vigdís Vern­harðs­dóttir frá Suð­ur­eyri og Ásrós Helga Guð­munds­dóttir, sextán ára, frá Núpi í Dýra­firði stofn­uðu hljóm­sveit­ina fyrir um mán­uði síðan.

Ár hvert er tónlistar­hátíðin Aldrei fór ég suður haldin hátíðlega á Ísafirði. Rokk­stjóri hátíðarinnar, Kristján Freyr Halldórsson, segir fjöl­breytt úrval í tónlistar­stefnu og straumum vera sérstöðu hátíðarinnar þar sem hátíðar­gestir geta upplifað rokk, rapp og pönk á sama kvöldinu. Mikið er af ungum lista­mönnum og á ári hverju er sigurvegurum Músík­tilrauna boðið að taka þátt. Í þetta sinn þurfa sigurveg­ararnir ekki að sækja langt því unglings­stúlkurnar í vestfirsku hljóm­sveitinni Between Mountains sigruðu keppnina í ár. Hljóm­sveitin er skipuð þeim Kötlu Vigdísi Vernharðs­dóttur frá Suðureyri og Ásrósu Helgu Guðmunds­dóttur frá Núpi í Dýrafirði.

Tónlistin rennur í blóðinu

Stúlkurnar í Between Montains æfa nú stíft fyrir Aldrei fór ég suður heima hjá hinni fjórtán ára gömlu Kötlu Vigdísi á Suðureyri. Stúlkurnar syngja báðar en Katla spilar á hljómborð og Ásrós, sem er sextán ára, spilar á xylófón. „Við erum mjög spenntar fyrir Aldrei fór ég suður,“ segir Ásrós í samtali …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár