Ivanka Trump kallaði múginn „föðurlandsvini“

Ivanka Trump, dóttir Donalds Trump, kallaði múginn sem gerði aðsúg að þing­húsinu í Washington í dag, „föður­landsvini“ á Twitter.

Stuðningsmenn Trumps ruddust inn í þinghúsið.
Stuðn­ings­menn Trumps rudd­ust inn í þing­húsið. Mynd: EPA

„Bandarískir föður­landsvinir,“ skrifaði Ivanka Trump, dóttir Donalds Trump fráfar­andi forseta Banda­ríkjanna, á Twitter í kvöld, um stuðnings­menn föður hennar sem brutust inn í þinghúsið í Washington í dag. Ivanka Trump sagði „föður­lands­vinunum“ að lögbrot væru ekki æskileg. „Ofbeldið verður að hætta strax. Gerið það, verið frið­samleg.“

Hún eyddi tístinu örfáum mínútum síðar eftir að hafa verið gagnrýnd harðlega fyrir að kalla múginn sem braust inn í þinghúsið „föður­landsvini“.

Þúsundir stuðnings­manna Trumps eru saman­komnir í Washington. Trump sagði á fjölda­fundi í borginni í dag að hann væri réttmætur sigurvegari kosninganna en í dag átti að staðfesta úrslit þeirra í báðum deildum þingsins og þar með kjör Joes Bidens.

Eftir að ólætin í og við þinghúsið hófust skrifaði Trump á Twitter: „Verið friðsöm“.

Vegna óeirðanna hefur þjóð­varðliðið verið kallað út. Borgar­stjórinn hefur sett á útgöngu­bann. Hótanir ýmsar, m.a. um sprengjur í borginni, hafa verið gerðar.

Frétt CNN um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár