Þið verðið bara að venjast þessu, segja Kínverjar

Kínverjar hnykla enn vöðvana undan ströndum nágranna sinna.

Þetta er það sem koma skal, segir Kína sem flaug herflugvélum nærri lofthelgi Japans við heræfingar í gær.

Varnarmála­ráðuneyti Japans lýsti því í gær hvernig það leit á flug kínverska hersins sem „óeðlilegt“. Þar er einnig undir­strikað að herflugvél­arnar, allar af gerð Xian H-6, hafi ekki brotið lofthelgi Japana.

Kínverski sjó- og flug­herinn hefur verið við stífar æfingar á vestan­verðu Kyrrahafi undan­farna mánuði. Herinn skerpir nú á getu sinni til þess að standa í stórræðum langt frá ströndum Kína.

Frá þessu er greint á vef frétta­stofu Reuters.

„Það land sem er hér til umræðu ætti ekki að gera of mikið úr neinu eða oftúlka, þetta verður allt í lagi um leið og þau verða orðin vön þessu,“ sagði í yfir­lýsingu kínverska varnarmála­ráðuneytisins.

Kínverjar segja tilburði hersins löglega og til siðs. Þeir muni halda áfram að skipuleggja æfingar sínar eftir því sem krafist er hverju sinni.

Æfingarnar nærri lofthelgi Japans fóru fram á Miyako-sundi milli japönsku eyjanna Miyako og Okinawa, norðaustan af Taívan. Þjóðar­varnar­ráðuneyti Taívan segist hafa fylgst náið með æfingunum, sem komu einnig nærri loft­varnar­svæðis eyjarinnar.

Kínverjar hafa staðið í hernaðar­legum stórræðum undan ströndum Kína á undan­förnum misserum. Í Suður-Kínahafi hefur Kína til dæmis byggt eyjar á skerjum í þeim tilgangi að tryggja sér yfirráð yfir þessu umdeilda hafsvæði.

Þá hafa Kínverjar lengi staðið með Norður-Kóreu í alþjóða­samfélaginu. Gífurleg ógn stafar nú af Norður-Kóreu vegna kjarnorku­afls þeirra. Japan er eitt þeirra ríkja sem hefur lengi verið innan seilingar Kim-fjöl­skyldunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár