Fjármálaráðuneytið segist ekki hafa yfirlit yfir fjársópseignirnar sem seldar voru leynilega

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið segist ekki hafa komið að ákvörðunum um ráðstöfun eigna sem féllu íslenska ríkinu í skaut vegna stöðugleika­samninga við kröfuhafa föllnu bankanna.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið segir að sérstakt yfirlit yfir svokallaðar fjár­sópseignir sé ekki fyrir­liggjandi og því sé ekki hægt að afhenda það. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við beiðni Kjarnans um yfirlit yfir allar slíkar eignir, hvað fékkst fyrir hverja og eina þeirra, hvenær hver þeirra var seld eða virði hennar greitt til ríkis­sjóðs og hverjir fengu að kaupa þær fjár­sópseignir sem seldar voru.

Í kjölfar þess að gerðir voru stöðugleika­samningar við kröfuhafa föllnu bankanna árið 2015 bjó íslenska ríkið til félag sem kallaðist Lindar­hvol til að taka við þeim eignum sem féllu ríkinu í skaut vegna samninganna. Það félag starfaði frá 2016 til 2018 og eignirnar sem það sýslaði með voru mörg hundruð milljarða króna virði. Hluti þeirra voru svokallaðar framsals­eignir, sem Lindar­hvol tók yfir og ráðstafaði beint.

Þar var líka um að ræða umræddar fjár­sópseignir. Í ein­földu máli voru það eignir sem slitabú bank­anna héldu eftir og seldu, en afrakstur þeirrar sölu rann í rík­is­sjóð. Á meðal eigna sem töld­ust til fjár­sópseigna voru eign­ar­hlutir í félögum sem seldir voru til hópa án útboðs. Slitabú föllnu bankanna hafa ekki viljað veita neinar upplýsingar um þær sölur.

Í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun gerði um starf­semi Lind­ar­hvols var ekk­ert fjallað um hverjar fjár­sóps­eignirnar voru, hvernig þær voru seldar né hverjir fengu að kaupa þær.

Telur sig ekki hafa svigrúm til að leggja mat á erindi við almenning

Í ljósi þessa kallaði Kjarn­inn eftir því að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra legði sjálf­stætt mat á að láta fjöl­miðl­inum í té yfir­lit yfir allar eignir sem Lind­ar­hvol seldi á starfs­tíma sín­um, upp­lýs­ingar um hvenær sala þeirra fór fram og á hvaða verði. Enn fremur var óskað eftir upp­lýs­ingum um hverjir kaupendur að öllum eign­unum hefðu verið. Þá var óskað eftir upp­lýs­ingum um hvernig fyr­ir­komu­lag á sölu á fjár­sópseignum var, öllum fund­ar­gerðum stjórnar Lind­ar­hvols, afriti af stöð­ug­leika­samn­ing­unum sem gerðir voru við slitabú föllnu bank­anna og af öllum fylgi­skjölum þeirra.

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið telur sig ekki hafa svigrðun til að leggja sjálfstætt mat á hvort gögnin eigi erindi við almenning á grund­velli þagnar­skyldu­ákvæðis laga um Seðla­banka Íslands.

Það telur sig heldur ekki heimilt að afhenda stöðugleika­samningana og vísaði á Seðla­banka Íslands, sem var samnings­aðili fyrir hönd ríkisins. Hann hefur ekki viljað láta Kjarnanum samningana í té og Kjarninn hefur kært þá niður­stöðu til úrskurðar­nefndar um upplýsingamál. Í svari ráðuneytisins við þeirri fyrir­spurn, sem barst í síðustu viku, sagði að sérstakt „yfirlit yfir allar fjár­sópseignir er ekki fyrir­liggjandi og því er ekki mögulegt að verða við upplýsinga­beiðninni.“

Ráðuneytið afhenti Kjarnanum hins vegar allar fundar­gerðir Lindar­hvols en var búið að afmá allar upplýsingar úr þeim sem geta svarað spurningum Kjarnans um fjár­sóps­eignirnar.

Ráðuneytið kom ekki að ákvörðunum um sölu eigna

Kjarninn óskaði einnig eftir upplýsingum um hvernig fyrir­komulag á sölu á svokölluðum fjár­sópseignum var. Þ.e. þegar slitabú seldi slíkar eignir, voru ráðherra eða fulltrúar hans upplýstir um þá sölu fyrirfram? Þurfti ráðherra eða fulltrúi hans að samþykkja söluna áður en gengið var frá henni?

Í svörum fjármála- og efnahags­ráðuneytisins segir að fjár­sóps­eignirnar hafi ekki verið fram­seldar ríkis­sjóði heldur hafi þær verið „í eigu, vörslu og umsýslu slita­búanna sem skuld­bundu sig til að greiða endur­heimtur í íslenskum krónum vegna þeirra til ríkis­sjóðs eftir því sem þær féllu til inn á stöðugleika­reikning ríkis­sjóðs í Seðla­banka.“ Lindar­hvol hafi haft eftirlit og umsjón með eignunum. „Fjármála- og efnahags­ráðuneytið kom ekki að ákvörðunum um ráðstöfun einstakra eigna, hvorki framsals­eigna né fjár­sópseigna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár