Mynd: Bára Huld Beck

Seðlabankinn tekur beiðni Kjarnans um „ruslaskistu Seðlabankans“ til efnislegrar meðferðar

Nýlegur úrskurður úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál skikkar Seðla­banka Íslands til að kanna hvort hann hafi gögn um Eigna­safn Seðla­banka Íslands undir höndum og leggja í kjöl­farið mat á hvort þau gögn séu háð þagn­ar­skyldu.

Seðla­banki Íslands mun taka beiðni Kjarnans um aðgang að gögnum og upp­lýs­ingum um starf­semi Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) til efn­is­legrar með­ferðar. Það er gert með vísan til nýfall­ins úrskurðar úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem féll 1. júní síð­ast­lið­inn, í máli sem lög­fræð­ing­ur­inn og sagn­fræð­ing­ur­inn Björn Jón Bragason kærði til nefnd­ar­innar.

Áður hafði bank­inn sagt í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans seint í síð­asta mán­uði að hann telji sig ekki þurfa að svara beiðnum um gögn sem teng­ist ESÍ þar sem félagið sjálft hafi svarað slíkum beiðnum á starfs­tíma sín­um. Nú þegar búið sé að slíta ESÍ – því var slitið 2019 – sé það ekki hlut­verk Seðla­bank­ans að taka við því hlut­verki að svara fyr­ir­spurnum til þess.

Þessu hafn­aði úrskurð­ar­nefndin í áður­nefndum úrskurði, en Björn Jón hafði farið fram á upp­lýs­ingar um allan lög­fræði­kostnað og kostnað við aðra sér­fræði­ráð­gjöf sem ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess greiddu á starfs­tíma sínum.

Mat úrskurð­ar­nefnd­ar­innar var að afgreiðsla Seðla­banka Íslands á beiðni kær­anda hafi ekki sam­rýmst ákvæðum upp­lýs­inga­laga og rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga. „Þá hefur og komið fram í skýr­ingum bank­ans að gagna­beiðnir kær­anda hafi ekki verið teknar fyrir efn­is­lega af hálfu bank­ans, þ.e. kannað hvort bank­inn hafi gögn undir höndum sem falli að beiðnum kær­anda og í fram­hald­inu hvort þau gögn séu háð þagn­ar­skyldu. Beiðni kær­anda hefur sam­kvæmt fram­an­greindu ekki fengið þá efn­is­legu með­ferð á lægra stjórn­sýslu­stigi sem úrskurð­ar­nefnd­inni er fært að end­ur­skoða. Hin kærða ákvörðun er þannig haldin efn­is­legum ann­mörkum sem eru að mati nefnd­ar­innar svo veru­legir að ekki verður hjá því kom­ist að fella hana úr gildi og leggja fyrir Seðla­banka Íslands að taka málið til nýrrar og lög­mætrar með­ferðar sem felur m.a. í sér að afmarka beiðni kær­anda við gögn hjá bank­anum sem liggja fyrir og heyra undir beiðni kær­anda, og taka afstöðu til þess hvort kær­andi eigi rétt til að fá aðgang að þeim gögnum, í heild eða að hluta.“

Átti að skila skýrslu 2018

Seðla­banki Íslands átti að vinna skýrslu um ESÍ og skila henni til banka­ráðs hans fyrir árs­lok 2018. Skýrslan átti að varpa heild­ar­mynd á starf­semi ESÍ og dótt­ur­fé­laga þess og taka átti saman hvert end­an­legt tjón bank­ans verður af veð­lána­starf­semi hans. Hún er enn ekki komin út, meira en fjórum árum eftir að slita­ferli ESÍ hófst.

Már Guðmundsson var seðlabankastjóri á meðan að ESÍ starfaði.
Már Guð­munds­son var seðla­banka­stjóri á meðan að ESÍ starf­aði.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um afdrif skýrsl­unn­ar, sem barst í apríl síð­ast­liðnum, sagði upp­lýs­inga­full­trúi Seðla­bank­ans ástæð­una fyrir því að skýrslan væri ekki komin út vera „miklar annir við önnur verk­efn­i“. Hann gat á þeirri stundu ekki gefið svar um vænt­an­legan útgáfu­dag.

Við með­ferð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál í áður­nefndu kæru­máli Björns Jóns óskaði nefndin eftir nán­ari skýr­ingum frá Seðla­bank­anum um hver hefðu orðið afdrif gagna ESÍ og dótt­ur­fé­laga þess eftir að félög­unum var slitið. Í svari Seðla­bank­ans sagði að við slit og afskrán­ingu ESÍ, og félaga í eigu ESÍ, hefði Seðla­bank­inn ekki fengið afhent gögn félag­anna. „Þá hefði Seðla­bank­inn ekki vit­neskju um stöðu ein­stakra afskráðra félaga eða hvort skipta­stjórar eða skila­nefndir hefðu afhent Þjóð­skjala­safni við­eig­andi skjöl í sam­ræmi við lög um opin­ber skjala­söfn.“

Úrskurð­ar­nefndin óskaði eftir upp­lýs­ingum um það hjá Þjóð­skjala­safni Íslands hvort ESÍ og dótt­ur­fé­lög þess hefðu afhent skjala­safn­inu gögn sín í sam­ræmi við lög um opin­ber skjala­söfn. „Þjóð­skjala­safnið stað­festi með pósti, dags. 8. apríl sama ár, að engar gögn hefðu borist frá þessum lög­að­ilum.“

Vandséð er hvernig Seðla­bank­inn geti unnið skýrslu sem varpa á heild­ar­mynd á starf­semi ESÍ ef engin gögn eru til um félagið innan bank­ans.

Mörg hundruð milljarðar króna í „ruslakistunni“

ESÍ, sem oft var kallað „rusla­kista Seðla­bank­ans“ starf­aði frá 2009 og út árið 2017. Inn í félagið var safnað eignum sem féllu Seðla­bank­anum í skaut vegna falls fjár­mála­kerf­is­ins. Um allskyns eignir var að ræða, verð­bréf, mörg hund­ruð fast­eignir og ýmis­legt ann­að. Á starfs­tíma sínum starf­rækti ESÍ svo tvö dótt­ur­fé­lög, ann­ars vega Sölv­hól sem hafði það hlut­verk að selja eign­irn­ar, og hins vegar Hildu, sem ESÍ fékk í fangið árið 2011.

Umfang eigna og krafna sem ESÍ hélt á eftir hrunið var 490 millj­arðar króna sam­kvæmt svari þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son­ar, við fyr­ir­spurn á þingi í sept­em­ber 2017.

Slita­ferli félags­ins, og dótt­ur­fé­laga þess, hófst árið 2017 og lauk end­an­lega 2019.

Margir höfðu enda varað við því að ríkið setti upp eigna­sölu­fé­lög. Það gerðu meðal ann­ars hag­fræð­ing­arnir Gauti B. Egg­erts­son og Jón Steins­son í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í mars 2009. Þar sagði meðal ann­ars: „Það eru ýmsir ókostir á eigna­sölu­fé­lögum í eigu rík­is­ins. Stærsti ókost­ur­inn er hætta á spill­ingu. Reynslan hefur kennt Íslend­ingum – og raunar öðrum þjóðum – að þegar ríkið selur eignir er mikil hætta á því að umsjón­ar­menn sölu­ferl­is­ins selji vin­um, ætt­ingjum eða jafn­vel sjálfum sér verð­mætar eignir á und­ir­verð­i.“

Sigurður Ingi spurði Bjarna út í ESÍ

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­lýs­ingar um hvaða eignir voru settar inn í ESÍ, hvernig þær voru seldar og hverjir fengu að kaupa þær. Þeim hefur öllum verið hafnað á grund­velli þagn­ar­skyldu­á­kvæðis laga um Seðla­banka Íslands og þeirrar und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum sem ESÍ naut. Sú und­an­þága rann út í des­em­ber 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson hafa, ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, leitt ríkisstjórn Íslands frá árinu 2017.
Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son hafa, ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, leitt rík­is­stjórn Íslands frá árinu 2017.

Skrif­lega fyr­ir­spurnin á Alþingi frá 2017, sem minnst var á hér að ofan, og beint var til Bjarna Bene­dikts­son­ar, þá for­sæt­is­ráð­herra, í tíð rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar, var lögð fram af manni sem Bjarni þekkir ágæt­lega og hefur starfað meira og minna með síð­ast­lið­inn tæpa ára­tug, Sig­urði Inga Jóhanns­syni. Hann hafði verið ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem sat 2013 til 2016 og end­aði það kjör­tíma­bil sem for­sæt­is­ráð­herra, eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þurfti að segja af sér.

Hann hefur svo starfað í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Bjarna síðan 2017 og verið for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fyr­ir­spurn­in, sem var ítar­leg og bar öll þess merki að fyr­ir­spyrj­and­inn þekkti vel til mála, var lögð fram á þeim nokkrum mán­uðum á árinu 2017 sem Sig­urður Ingi sat í stjórn­ar­and­stöð­u.

Hún var eft­ir­far­andi:

  1. Hversu margar eign­ir/­­kröfur hefur Seðla­­banki Íslands selt, beint eða í gegnum dótt­­ur­­fé­lög, svo sem ESÍ, frá því að honum var falin umsjón þeirra eftir banka­hrunið árið 2008, hvert var sölu­and­virðið í heild og sund­­ur­liðað eftir árum, hverjir keyptu og á hvaða kjörum, sund­­ur­liðað ár fyrir ár?
  2. Í hvaða til­­vikum var lánað fyrir kaup­un­um, við hversu hátt láns­hlut­­fall var mið­að, hvaða skil­yrði voru sett um trygg­ingar fyrir greiðslu kaup­verðs, hver var stefnan um vaxta­­kjör, var í ein­hverjum til­­vikum vikið frá henni og ef svo er, hvers vegna?
  3. Hefur Seðla­­bank­inn, beint eða í gegnum dótt­­ur­­fé­lög, keypt eign­ir/­­kröfur eða fengið fram­­seldar með öðrum hætti, svo sem í skiptum fyrir aðrar eign­ir/­­kröf­­ur, frá banka­hruni, hvaða eign­ir/­­kröfur voru það, sund­­ur­liðað ár fyrir ár, voru þær skráðar á mark­aði, hvaða ástæður voru fyrir kaup­unum og á hvaða laga­heim­ild byggði Seðla­­bank­inn eða dótt­­ur­­fé­lög kaup­in?
  4. Hafa eign­ir/­­kröfur verið seldar aftur og ef svo er, hver er mun­­ur­inn á kaup- og sölu­verði, hverjir voru kaup­endur og selj­endur í þeim við­­skiptum og hefur Seðla­­bank­inn eða dótt­­ur­­fé­lög fengið fram­­seldar til sín eignir sem rýrnað hafa í verði eða jafn­­vel tap­­ast frá því að þeirra var aflað?
  5. Fyrir hvaða sér­­fræð­i­­þjón­ustu, hverjum og hve mik­ið, hefur Seðla­­banki Íslands, beint eða í gegnum dótt­­ur­­fé­lög, greitt vegna sölu á eign­um/­­kröfum frá og með árinu 2013 til dags­ins í dag, var þjón­ustan aug­lýst og/eða boðin út, hvernig var staðið að ráðn­­ingu á þjón­ust­u­að­il­um, hver voru sjón­­­ar­mið til grund­vallar ráðn­­ingum og hvernig skipt­ust greiðslur milli aðila?
  6. Var sala á eign­­ar­hlut­u­m/­­kröfum Seðla­­banka Íslands eða dótt­­ur­­fé­laga bank­ans ávallt aug­lýst, hvernig var staðið að útboð­i/­­sölu í þeim til­­vik­um, við hvaða reglur var mið­að, voru við­miðin sam­­bæri­­leg í öllum til­­vikum og ef ekki, hvers vegna?

Bjarni svar­aði fyr­ir­­spurn Sig­­urðar Inga með ítar­­legu svari, en þó var ekki svarað efn­is­­lega og sér­­tækt, þeim atriðum sem spurt var út í. Í svar­inu var vísað til þagn­­ar­­skyldu Seðla­­bank­ans um verk­efni ESÍ og að bank­inn myndi skila af sér skýrslu um ESÍ og starf­­semi þess, þegar vinnu við slit væri lok­ið.

Sú skýrsla er, líkt og áður seg­ir, enn ekki komin fram í dags­ljós­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið undanfarið ár