Seðlabankinn hafnar því að aflétta leynd um ESÍ á grundvelli almannahagsmuna

Árið 2019 var ákvæði bætt við lög um Seðla­banka Íslands sem veitir bank­anum heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði ef hags­munir almenn­ings af birt­ingu gagna vega þyngra en hags­munir sem mæla með leynd.

Á árunum 2009 til 2017 starf­aði félag sem hét Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ). Hlutverk þess var að koma eignum og kröfum sem Seðla­bank­inn sat uppi með eftir banka­hrunið í verð. Umfangið var gríð­ar­legt, eignir og kröfur voru metnar á 490 millj­arða króna.

Um allskyns eignir var að ræða, verð­bréf, mörg hund­ruð fast­eignir og ýmis­legt ann­að. Á starfs­tíma sínum starf­rækti ESÍ svo tvö dótt­ur­fé­lög, ann­ars vega Sölv­hól sem hafði það hlut­verk að selja eign­irn­ar, og hins vegar Hildu, sem ESÍ fékk í fangið árið 2011. Vegna eðlis starf­sem­innar hefur ESÍ oft verið nefnt „rusla­kista Seðla­bank­ans“.

Samkvæmt árs­reikn­ingum ESÍ var einn hlut­hafi í félag­inu, Seðla­banki Íslands. Árið 2009, sem var fyrsta starfsár félags­ins, sátu í stjórn þess þáver­andi seðla­banka­stjóri, yfir­lög­fræð­ingur bank­ans og lyk­il­stjórn­andi innan hans. Enginn vafi er því á að félagið var undir stjórn Seðla­banka Íslands.

Mikil leynd hefur ríkt yfir því hvernig eignum ESÍ var ráð­stafað, og til hverra. Þeir sem stýrðu því gátu iðkað þá leynd meðal ann­ars á grunni þess að for­sæt­is­ráðu­neytið veitti ESÍ und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum. Hún rann hins vegar út í des­em­ber 2018 og hefur ekki verið end­ur­nýjuð.

Slita­ferli ESÍ, og dótt­ur­fé­laga þess, hófst árið 2017 og lauk end­an­lega árið 2019.

Hafa aldrei viljað svara sértækum spurningum um ESÍ

Kjarninn hefur árum saman reynt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hvaða eignir hafi verið settar inn í ESÍ, hvenær hver eign var seld, á hvaða verði þær voru seldar, hverjir milli­liðir við sölu eign­anna voru, hverjar þókn­anir þeirra voru og hverjir kaup­end­urnir voru.

Seðla­bank­inn, og ESÍ á meðan að félagið starf­aði, hafa aldrei viljað svara þessum spurn­ingum og vísað annað hvort í þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um Seðla­banka Íslands eða áður­nefnda und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum, sem rann út fyrir næstum fjórum árum síðan.

Í vor ákvað Kjarninn að gera aðra til­raun til að nálg­ast þessar upp­lýs­ingar. Tilefnið þá var ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að leggja „sjálf­stætt mat“ á almanna­hags­muni af birt­ingu lista yfir þá sem fengu að kaupa hluti í Íslands­banka í lok­uðu útboði í mars 2022. Þegar Bjarni lagði það mat á birt­ing­una lá þegar fyrir lög­fræði­á­lit unnið fyrir Banka­sýslu rík­is­ins sem mælti gegn birt­ing­unni.

Beiting „sjálf­stæðs mats“ var því ný teg­und af stjórn­sýslu­fram­kvæmd.

Forsætisráðuneytið beðið um að leggja „sjálfstætt mat“ á birtingu

Á grund­velli þess fór Kjarninn fram á að for­sæt­is­ráðu­neytið, sem Seðla­bank­inn heyrir að mestu undir, myndi leggja sam­bæri­legt „sjálf­stætt mat“ á birt­ingu gagna um ráð­staf­anir eigna út úr ESÍ. Kjarninn vís­aði einnig í til­kynn­ingu for­manna sitj­andi stjórn­ar­flokka sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins 19. apríl síð­ast­lið­inn, þar sem stóð að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eignum rík­is­ins. Í þeirri til­kynn­ingu sagði orð­rétt: „Almenn­ingur á skýra og óum­deilda kröfu um að allar upp­lýs­ingar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.“

Í maí svar­aði ráðu­neytið því til að það teldi það ekki sitt hlut­verk að leggja mat á hvort hags­munir almenn­ings af birt­ingu gagna um ESÍ vegi þyngra en þeir hags­munir sem mæli með leynd. Það þyrfti Seðla­bank­inn sjálfur að gera.

Í svari ráðu­neyt­is­ins var hins vegar bent á að með nýjum lögum um Seðla­banka Íslands, sem sett voru árið 2019, hafi verið bætt við ákvæði þar sem bank­anum er veitt heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði, „enda vegi hags­munir almenn­ings af birt­ing­unni þyngra en hags­munir sem mæla með leynd.“

Í svari ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur var bent á að bætt hafi verið við ákvæði við lög um Seðlabanka Íslands sem veiti bankanum heimild til að víkja frá þagnarskylduákvæði ef hagsmunir almennings af birtingu eru miklir.
Í svari ráðu­neytis Katrínar Jak­obs­dóttur var bent á að bætt hafi verið við ákvæði við lög um Seðla­banka Íslands sem veiti bank­anum heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði ef hags­munir almenn­ings af birt­ingu eru miklir.

Í athuga­semdum með frum­varp­inu sem varð að lög­unum sagði að áður en ákvörðun sé tekin um slíka afhend­ingu þurfi að liggja fyrir grein­ing á þeim hags­munum sem veg­ast á í hverju til­viki fyrir sig. „Þá beri við mat á hags­munum almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­inga m.a. að líta til þess hvort þær varði ráð­stöfun opin­berra hags­muna, sem almenn­ingur eigi almennt ríkan rétt til að kynna sér hvernig staðið er að.“

For­sæt­is­ráðu­neytið var því þeirrar skoð­unar að Seðla­banki Íslands ætti að líta til þess hvort umræddar upp­lýs­ingar varði ráð­stöfun opin­berra hags­muna, sem almenn­ingur eigi almennt ríkan rétt til að kynna sér hvernig staðið er að og að bank­inn eigi að leggja mat á það hvort hags­munir almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­ing­anna vegi þyngra en þeir hags­munir sem mæla með leynd.

Kjarn­inn sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn til Seðla­bank­ans þar sem hann var beð­inn um að leggja mat á hags­muni almenn­ings af birt­ingu gagn­anna og að rök­styðja það mat.

Einblínt á þagnarskyldu

Fyrsta svar Seðla­bank­ans barst 24. maí. Í því sagði að bank­inn mæti það sem svo að nýja ákvæðið, sem kall­aði á að hags­munir almenn­ings af birt­ingu gagna yrðu metnir, hefði ekk­ert gildi ef lög­menn bank­ans teldu að þagn­ar­skylda ætti að gilda um þær upp­lýs­ingar sem spurt væri um. „Að mati Seðla­bank­ans er nægj­an­legt að umbeðnar upp­lýs­ingar falli að þagn­ar­skyldu­á­kvæði [...] þ.e. að þær varði hagi við­skipta­manna bank­ans, við­skipti og rekstur eft­ir­lits­skyldra aðila, tengdra aðila eða ann­arra og mál­efni bank­ans sjálfs, svo og önnur atriði sem leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls, til að upp­lýs­inga­réttur almenn­ings verði tak­mark­aður á grund­velli ákvæð­is­ins.“

Auk þess kom fram að Seðla­bank­inn, sem var eini hlut­haf­inn í ESÍ, teldi félagið sér alls óvið­kom­andi. „Fyrir slit félags­ins var það ekki Seðla­bank­ans að svara beiðnum um gögn og upp­lýs­ingar sem beint var til þess. Slíkum beiðnum var eðli máls sam­kvæmt beint til félags­ins sjálfs. Þó því hafi nú verið slitið og það afskráð færir það, að mati Seðla­bank­ans, ekki skyld­una til að svara slíkri beiðni til bank­ans.“

Lofuðu loks efnislegri meðferð

Kjarninn óskaði því eftir að Seðla­bank­inn myndi end­ur­skoða svar sitt og ef eini hlut­haf­inn í ESÍ teldi sig ekki bera skyldu til að svara spurn­ingum um starf­semi dótt­ur­fé­lags síns var óskað eftir upp­lýs­ingum um hvert ætti að beina slíkum spurn­ingum, meðal ann­ars nafni þess ein­stak­lings sem færi með mál­efni ESÍ.

Auk þess var óskað eftir frek­ari skýr­ingum á því hvernig Seðla­banki Íslands gæti ákveðið ein­hliða að við­bót­ar­á­kvæði sem sett var inn í lög um starf­semi hans, og átti að tryggja rík­ari rétt almenn­ings til upp­lýs­inga, væri mark­laust. Í fyr­ir­spurn Kjarnans stóð að sú túlkun bank­ans væri „senni­lega frétt­næm fyrir þá ráð­herra og þing­menn sem stóðu að breyt­ing­unni á lög­unum og ætl­uðu ákvæð­inu að hafa raun­veru­lega virkni þar sem hags­munir almenn­ings á að fá að vita yrðu raun­veru­lega metnir.“

Þann 7. júní barst svar frá Seðla­bank­anum þess efnis að með vísan til nýfall­ins úrskurðar úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála myndi bank­inn taka fyr­ir­spurn­ina til efn­is­legrar með­ferðar. Sá úrskurður sner­ist um fyr­ir­spurn sagn- og lög­fræð­ings­ins Björns Jóns Braga­sonar um úkra­ínska apó­tek­a­keðju sem var á meðal eigna ESÍ um tíma. Úrskurð­ar­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að Björn Jón ætti að fá umræddar upp­lýs­ingar en Seðla­bank­inn hefur enn ekki afhent honum þær, og seg­ist ekki hafa þær undir höndum.

Ekki bankans að svara fyrirspurn um félag sem hann átti

Sú efn­is­lega með­ferð leiddi til þess að lög­fræð­ingur hjá Seðla­bank­anum sendi svar 22. júlí 2022 sem fól efn­is­lega í sér sömu svör og upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans hafði veitt tveimur mán­uðum fyrr. Að það væri ekki Seðla­bank­ans að svara fyrir ESÍ, þar sem hann hefði ekki gert það fyrir slit félags­ins. Engar upp­lýs­ingar voru veittar um hver ætti að svara fyr­ir­spurn­unum.

Sigurður Ingi Jóhannsson spurði Bjarna Benediktsson út í málefni ESÍ á þingi í september 2017, þegar hann var í stjórnarandstöðu. Þeir sitja nú saman í ríkisstjórn.
Sigurður Ingi Jóhanns­son spurði Bjarna Bene­dikts­son út í mál­efni ESÍ á þingi í sept­em­ber 2017, þegar hann var í stjórn­ar­and­stöðu. Þeir sitja nú saman í rík­is­stjórn.

Þess í stað vís­aði Seðla­bank­inn í svar við fyr­ir­spurn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hann beindi til Bjarna Bene­dikts­sonar í sept­em­ber. Sigurður Ingi var þá í stjórn­ar­and­stöðu en hafði setið í rík­is­stjórn­inni á undan, sem sat 2013 til 2016, þegar ESÍ var enn á fullu í að ráð­stafa eignum sínum. Sigurður Ingi hefur auk þess starfað í rík­is­stjórn með Bjarna frá því skömmu eftir að fyr­ir­spurn­inni var svarað og fram til dags­ins í dag. Spurn­ingar Sigurðar Inga er hægt að sjá hér að neðan.

  • Hversu margar eign­ir/­­kröfur hefur Seðla­­banki Íslands selt, beint eða í gegnum dótt­­ur­­fé­lög, svo sem ESÍ, frá því að honum var falin umsjón þeirra eftir banka­hrunið árið 2008, hvert var sölu­and­virðið í heild og sund­­ur­liðað eftir árum, hverjir keyptu og á hvaða kjörum, sund­­ur­liðað ár fyrir ár?
  • Í hvaða til­­vikum var lánað fyrir kaup­un­um, við hversu hátt láns­hlut­­fall var mið­að, hvaða skil­yrði voru sett um trygg­ingar fyrir greiðslu kaup­verðs, hver var stefnan um vaxta­­kjör, var í ein­hverjum til­­vikum vikið frá henni og ef svo er, hvers vegna?
  • Hefur Seðla­­bank­inn, beint eða í gegnum dótt­­ur­­fé­lög, keypt eign­ir/­­kröfur eða fengið fram­­seldar með öðrum hætti, svo sem í skiptum fyrir aðrar eign­ir/­­kröf­­ur, frá banka­hruni, hvaða eign­ir/­­kröfur voru það, sund­­ur­liðað ár fyrir ár, voru þær skráðar á mark­aði, hvaða ástæður voru fyrir kaup­unum og á hvaða laga­heim­ild byggði Seðla­­bank­inn eða dótt­­ur­­fé­lög kaup­in?
  • Hafa eign­ir/­­kröfur verið seldar aftur og ef svo er, hver er mun­­ur­inn á kaup- og sölu­verði, hverjir voru kaup­endur og selj­endur í þeim við­­skiptum og hefur Seðla­­bank­inn eða dótt­­ur­­fé­lög fengið fram­­seldar til sín eignir sem rýrnað hafa í verði eða jafn­­vel tap­­ast frá því að þeirra var aflað?
  • Fyrir hvaða sér­­fræð­i­­þjón­ustu, hverjum og hve mik­ið, hefur Seðla­­banki Íslands, beint eða í gegnum dótt­­ur­­fé­lög, greitt vegna sölu á eign­um/­­kröfum frá og með árinu 2013 til dags­ins í dag, var þjón­ustan aug­lýst og/eða boðin út, hvernig var staðið að ráðn­­ingu á þjón­ust­u­að­il­um, hver voru sjón­­­ar­mið til grund­vallar ráðn­­ingum og hvernig skipt­ust greiðslur milli aðila?
  • Var sala á eign­­ar­hlut­u­m/­­kröfum Seðla­­banka Íslands eða dótt­­ur­­fé­laga bank­ans ávallt aug­lýst, hvernig var staðið að útboð­i/­­sölu í þeim til­­vik­um, við hvaða reglur var mið­að, voru við­miðin sam­­bæri­­leg í öllum til­­vikum og ef ekki, hvers vegna?

Bjarni svar­aði fyr­ir­­spurn Sig­­urðar Inga með ítar­­legu svari, en þó var ekki svarað efn­is­­lega og sér­­tækt, þeim atriðum sem spurt var út í. Í svar­inu var vísað til þagn­­ar­­skyldu Seðla­­bank­ans um verk­efni ESÍ og að bank­inn myndi skila af sér skýrslu um ESÍ og starf­­semi þess, þegar vinnu við slit væri lok­ið.

Kjarninn sendi nýja fyr­ir­spurn á Seðla­bank­ann 22. júlí og fór fram á fá skýr­ari svör frá Seðla­bank­anum. Enn og aftur varð mik­ill dráttur á svörum og það afsakað með því að starfs­fólk bank­ans væri í sum­ar­leyfi.

Svar barst loks 17. ágúst. Í því sagði að það væri túlkun bank­ans að ákvæðið sem bætt var við lög um Seðla­bank­ann árið 2019, þar sem honum var veitt heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði ef hags­munir almenn­ings af birt­ing­unni vega þyngra en hags­munir sem mæla með leynd, fælist ekki „efn­is­leg laga­heim­ild til að knýja á um afhend­ingu gagna heldur sé þar um að ræða heim­ild til birt­ingar upp­lýs­inga að frum­kvæði Seðla­bank­ans, t.d. í tengslum við fréttir á vef bank­ans, skýrslur eða annað efni sem bank­inn gefur út.“

Auk þess var aftur sagt að Seðla­bank­inn sæi ekki annað en að í svar­inu við fyr­ir­spurn Sigurðar Inga frá því í sept­em­ber 2017 væri að finna þær upp­lýs­ingar sem Kjarninn væri að óska eftir.

Kjarninn svar­aði því til að sú ályktun væri röng. Ef upp­lýs­ing­arnar væru þar að finna væri mið­ill­inn ekki að óska eftir þeim.

Síðasta svar Seðla­bank­ans barst 13. sept­em­ber. Þar var fyr­ir­spurnum Kjarnans enn og aftur ekki svarað á grund­velli þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um starf­semi bank­ans. Þar sagði enn fremur: „Frekari birt­ing gagna og upp­lýs­inga verður til umræðu þegar umrædd skýrsla um starf­semi ESÍ verður gefin út. Telur bank­inn þar með að ekki verði lengra kom­ist með nefnda fyr­ir­spurn þína að sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár