Ætlar ekki að láta Seðlabankann afhenda sér gögn um ráðstöfun opinberra hagsmuna

Seðla­banki Íslands hefur ekki viljað leggja mat á hags­muni almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­inga um þá sem fengu að nýta sér fjár­fest­inga­leið hans né af því að stöð­ug­leika­samn­irnir við kröfu­hafa verði gerðir opin­berir.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, og Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Samsett

For­sæt­is­ráðu­neytið ætlar ekki að fara fram á að Seðla­banki Íslands afhendi sér öll umrædd gögn sem snerta stöð­ug­leika­samn­ing­anna við kröfu­hafa fölllnu bank­anna árið 2015 og fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Katrín Jak­obs­dóttir mun því ekki leggja sér­stakt mat á erindi þeirra við almenn­ing. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við beiðni Kjarnans þar um

Sú beiðni um sér­stakt mat grund­vall­ast á fyrri fram­kvæmd fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ákvað að leggja sjálf­stætt mat á birt­ingu lista yfir kaup­endur að hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum sem hann fékk frá Banka­sýslu rík­is­ins.

Áður hafði Kjarninn greint frá því að for­sæt­is­ráðu­neytið teldi það hlut­verk Seðla­banka Íslands að leggja mat á hvort opin­bera eigi upp­lýs­ing­arnar. Það hefur hann aldrei viljað gera, og Kjarninn kærði síð­ustu synjun hans til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál 7. júní síð­ast­lið­inn. Í þeirri kæru var sér­stak­lega farið fram á að nefndin fjalli um málið á grund­velli ákvæðis sem bætt var við lög um Seðla­banka Íslands árið 2019, þar sem bank­anum er veitt heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði, „enda vegi hags­munir almenn­ings af birt­ing­unni þyngra en hags­munir sem mæla með leynd.“

Seðla­bank­inn óskaði eftir, og fékk, við­bót­ar­frest til að skila inn umsögn um kæru Kjarnans til 8. júlí. Sá frestur fékkst með vísum til bæði sum­ar­leyfa og mik­illa anna vegna ann­arra verk­efna.

Hefur ekki viljað leggja mat á hagsmuni almennings

Í athuga­semdum með frum­varp­inu um breyt­ingar á lögum um Seðla­banka Íslands frá 2019 segir að áður en ákvörðun sé tekin um slíka afhend­ingu þurfi að liggja fyrir grein­ing á þeim hags­munum sem veg­ast á í hverju til­viki fyrir sig. „Þá beri við mat á hags­munum almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­inga m.a. að líta til þess hvort þær varði ráð­stöfun opin­berra hags­muna, sem almenn­ingur eigi almennt ríkan rétt til að kynna sér hvernig staðið er að.“

[adspot]Seðla­bank­inn hefur ekki viljað leggja mat á hags­muni almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­inga þrátt fyrir að laga­breyt­ingin frá 2019 segi að hann eigi að gera það. Að mati Seðla­bank­ans, sam­kvæmt svörum hans við fyr­ir­spurnum Kjarnans, er nægj­an­legt að umbeðnar upp­lýs­ingar varði hagi við­skipta­manna bank­ans, við­skipti og rekstur eft­ir­lits­skyldra aðila, tengdra aðila eða ann­arra og mál­efni bank­ans sjálfs til að um þær skuli ríkja algjör þögn.

Samkvæmt þeim rök­stuðn­ingi virð­ist Seðla­banki Íslands telja að það við­bót­ar­á­kvæði sem bætt var inn í lög um starf­semi hans af lög­gjaf­ar­vald­inu árið 2019 sé mark­laus.

Sent eftir ákvörðun Bjarna

Kjarninn sendi í vor út fjölda fyr­ir­spurna um ráð­staf­anir opin­berra hags­muna eða sér­tækra gæða sem átt hafa sér stað á und­an­förnum árum. Það var upp­haf­lega gert í kjöl­far þess að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði „sjálf­stætt mat“ á að birta ætti lista yfir kaup­endur að 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka þrátt fyrir að Banka­sýsla rík­is­ins, sem heyrir undir það ráðu­neyti, teldi þá birt­ingu ekki stand­ast lög.

Þegar list­inn yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­banka var birtur sagði í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefði metið málið þannig að upp­lýs­ing­ar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa falli „ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­lit­ið.“

Í til­kynn­ingu for­manna sitj­andi stjórn­ar­flokka sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins 19. apríl síð­ast­lið­inn, stóð svo að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eignum rík­is­ins. Í þeirri til­kynn­ingu sagði orð­rétt: „Al­menn­ingur á skýra og óum­deilda kröfu um að allar upp­lýs­ingar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.“

Kjarninn vildi að for­sætis- og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem Seðla­banki Íslands heyrir undir, myndu leggja sam­bæri­legt sjálf­stætt mat á birt­ingu upp­lýs­inga frá bank­anum. Það hefur hvor­ugt ráðu­neytið viljað gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár