Sigurður Ingi verði nýr forsætisráðherra Íslands

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mun stíga til hliðar sem forsætis­ráðherra og vill að dýra­læknirinn fyrr­verandi Sigurður Ingi Jóhannsson taki við.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son Virðist verða nýr for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hættir sem forsætis­ráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrr­verandi dýra­læknir, mun taka við, ef niður­staða fundar þing­flokks Framsóknar­flokksins gengur eftir. 

Sigurður Ingi, sem nú er sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, lýsti þessu yfir eftir fund þing­flokksins. „Niður­staða fundarins er sú að forsætis­ráðherra lagði það til á þing­flokksfundi að hann myndi stíga til hliðar sem forsætis­ráðherra og lagði til að ég tæki við því embætti en hann mun halda áfram sem formaður flokksins. Þessi tillaga var samþykkt af þing­flokknum.“

Það er vilji þing­flokks Framsóknar­flokksins að ríkis­stjórnar­samstarfið haldi áfram.

Aðspurður hvað Sjálfstæðis­flokknum finnist um þetta segir Sigurður Ingi: „Ég hef kynnt Bjarna Benedikts­syni formanni Sjálfstæðis­flokki þetta, hann var þá á leiðinni til Bessa­staða, og við Ásmundur Einar þing­flokks­formaður munum eiga samtal við þau í dag.“

Sigurður Ingi
Sigurður Ingi

Fyrrverandi bóndi og dýralæknir

Sigurður Ingi er fyrr­verandi bóndi og héraðs­dýralæknir. Hann fæddist 20. apríl 1962 og er því að verða 54 ára gamall. 

Árin 1987 til 1994 var hann bóndi í Dalbæ í Hruna­mannahreppi. Þá starfaði hann samhliða bústörfum sem sjálfstætt starfandi dýra­læknir árin 1990 til 1995. Hann var dýra­læknir hjá Dýralækna­þjónustu Suður­lands árin 1996 til 2009 og oddviti Hruna­mannahrepps frá 2002, allt þar til hann settist á þing árið 2009 í kosningunum í kjölfar efnahags­hrunsins.

„Virðingarvert“

Sigurður Ingi sagði að Sigmundur væri með þessu að hlusta eftir því sem gerist í samfélaginu, með virðingar­verðum hætti. „Eins og öllum er ljóst þá er mikil ólga í samfélaginu og hann hlustar eftir því sem er að gerast í samfélaginu og þetta eru hans viðbrögð og okkur finnst það vera mjög virðingar­vert.“

Bjarni Benediktsson fundaði með forseta á Bessa­stöðum fyrr í dag. Eftir fundinn ræddi hann brott­hvarf Sigmundar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði fundað með forseta í morgun í tilraun til að fá umboð til að boða til kosninga, en forsetinn hafnaði því.

Sjálfstæðis­menn eiga eftir að samþykkja að Sigurður Ingi Jóhannsson verði næsti forsætis­ráðherra Íslands.

Ferill Sigurðuar Inga á ráðherra­stóli hefur verið umdeildur og hefur hann stutt Sigmund Davíð eindregið í skatta­skjóls­málinu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýringu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjónanna Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Önnu Sigur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar ályktanir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eftir­farandi: Þann 13. maí 2016 skrifaði umboðs­maður hjónanna bréf til ríkis­skattstjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­framtöl...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár