Fór með afsagnarbréf í vasanum á alla fundi í Hvíta húsinu

Birting á 448 síðna skýrslu saksókn­arans Rupert Mueller er mál málanna í bandarískum fjöl­miðlum í dag. Ekki er um neitt annað talað í sjónvarps­fréttum. Er þetta góð eða slæm skýrsla fyrir Bandaríkja­forseta?

Jeff Sessions, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, fór með afsagnar­bréf í vasanum á alla fundi í Hvíta húsinu, þar sem hann hitti Donald Trump Bandaríkja­forseta.

Ástæðan var meðal annars sú, að hann treysti sér ekki til þess að taka því sem Trump Bandaríkja­forseti taldi vera rétt; sem var að að taka með engu mark á skýrslu Muellers saksóknara.

Afskipti Rússa teljast óumdeild en tveggja ára rannsókn leiðir í ljós að Donald Trump tengist þeim afskiptum ekki.

Jerry Nadler, formaður dómsmála­nefndar Banda­ríkjaþings, telur svo vera og segir það vera þingsins að draga forsetann til ábyrgðar.

Í skýrslunni eru tiltekin tíu dæmi um afskipti Trumps af rann­sókninni, en engin ályktun dregin af þeim.

Um mán­uður er lið­inn frá því að Mueller skil­aði skýrslu sinni til Barr. Sá síð­ar­nefndi birti svo fjög­urra blað­síðna útdrátt úr henni 24. mars síð­ast­lið­inn þar grein­t var frá því að Mueller hafi kom­ist að þeirri nið­ur­­­stöðu að fram­­boð Don­alds Trump Banda­­ríkja­­for­­seta hafi ekki átt í óeðli­­leg­um eða ólög­­mæt­um sam­­skipt­um við rús­s­­nesk stjórn­­völd í aðdrag­anda banda­rísku for­­seta­­kosn­­ing­anna 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár