Mueller fann tíu dæmi um mögulega hindrun á framgang réttvísinnar

Skýrsla Roberts Mueller verður afhend þing­mönnum í Banda­ríkj­unum í dag. Á blaða­manna­fundi sagði dóms­mála­ráð­herr­ann að Trump hefði tengst tíu atvikum sem mögu­lega hindr­uðu fram­gang rétt­vís­innar, en hann teldi sjálfur að fælu ekki í sér glæpi.

Rannsókn Mueller snérist að uppistöðu um hvort að Rússar hefðu beitt sér í forsetakosningunum 2016, sem Donald Trump vann.
Rannsókn Mueller snérist að uppi­stöðu um hvort að Rússar hefðu beitt sér í for­seta­kosn­ing­unum 2016, sem Donald Trump vann. Mynd: EPA

Í skýrslu Robert Mueller, sér­staks sak­sókn­ara, sem falið var að rann­saka mögu­leg ólög­mæt afskipti Rússa í banda­rísk stjórn­mál í for­seta­kosn­ing­unum 2016, kemur fram að sak­sókn­ar­inn og teymi hans taldi að Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefði átt aðkomu að tíu atvikum sem gætu flokk­ast sem mögu­legar til­raunir til að hindra fram­gang rétt­vís­innar vegna rann­sókn­ar­innar.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi William Barr, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í dag en skýrsla Mueller verður birt að hluta í dag. Barr sagði að hinn sér­staki sak­sókn­ari hefði hins vegar ekki getað sýnt fram á spilltar hvatir for­set­ans við fram­kvæmd þeirra atvika, sem væri nauð­syn­legt til að atvikin telj­ist glæpir.

Á blaða­manna­fund­inum kom skýrt fram að Rússar hefðu skipt sér að fram­kvæmd kosn­ing­anna en engir Banda­ríkja­menn aðstoð­uðu vit­andi við það athæfi.

Donald Trump sendi frá sér tíst á Twitter nán­ast á sama tíma og blaða­manna­fund­ur­inn hófst þar sem hann kom á fram­færi þeim skila­boðum sem hann telur að birt­ing skýrsl­unnar eigi að fela í sér.

Hvíta húsið hafði fengið að sjá hluta skýrsl­unnar áður en að hún verður afhent þing­mönnum banda­ríska þings­ins. Það vakti mikla reiði á meðal Demókrata sem ótt­uð­ust að Trump-stjórnin myndi gera til­raunir til að grafa undan skýrsl­unni.

Á blaða­manna­fund­inum sagði Barr hins vegar að Hvíta húsið hefði ekki óskað eftir því að neitt yrði fjar­lægt eða hulið í skýrsl­unni áður en hún yrði afhent þing­mönnum.

Um mán­uður er lið­inn frá því að Mueller skil­aði skýrslu sinni til Barr. Sá síð­ar­nefndi birti svo fjög­urra blað­síðna úrdrátt úr henni 24. mars síð­ast­lið­inn þar grein­t var frá því að Mueller hafi kom­ist að þeirri niður­stöðu að fram­boð Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta hafi ekki átt í óeðli­leg­um eða ólög­mæt­um sam­skipt­um við rúss­nesk stjórn­völd í aðdrag­anda banda­rísku for­seta­kosn­ing­anna 2016.

Í úrdrætt­inum kom líka fram að Barr teldi ekki ástæðu að ákæra fyrir að hindra fram­gang rétt­vís­innar.

Hægt er að fylgj­ast með fram­vindu mála á heima­síðu Bloomberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár