Ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauðsyn röskunar eldhrauns við Skjálfandafljót

Ljóst er að með tilkomu fyrir­hugaðrar Einbúa­virkjunar verður um að ræða inngrip í vatnafar Skjálfanda­fljóts sem hefur í för með sér neikvæð áhrif á fljótið á tilteknum kafla. Þetta kemur fram í áliti Skipulags­stofnunar á mats­skýrslu um virkjunina.

Skýringarmynd af brú á Bárðardalsvegi eystri yfir frárennslisskurð við Kálfborgará miðað við virkjunartilhögun B.
Skýr­ing­ar­mynd af brú á Bárð­ar­dals­vegi eystri yfir frá­rennsl­is­skurð við Kálf­borg­ará miðað við virkj­un­ar­til­högun B. Mynd: Úr matsskýrslu

Einbúa­virkjun í Skjálfanda­fljóti, sem er áformuð í Bárðardal í Þing­eyjarsveit, myndi raska eldhrauni sem nýtur sérstakrar verndar samkvæmt lögum um náttúru­vernd og forðast ber að raska nema vegna brýnna hagsmuna sem í greinar­gerð með núgildandi náttúru­verndar­lögum hafa verið túlkaðir sem brýnir almannahags­munir. „Skipulags­stofnun telur að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauðsyn fyrir röskun hraunsins og telur stofnunin að setja verði það sem skilyrði við leyfis­veitingar að mun ítarlegri rökstuðningur liggi fyrir.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í áliti stofnunarinnar á mats­skýrslu Einbúa­virkjunar ehf. sem fyrir­hugar 9,8 MW rennslis­virkjun í landi jarðanna Kálf­borgarár og Einbúa í Bárðardal. Einabúavirkjun yrði fyrsta virkjunin í Skjálfanda­fljóti en tvær virkjana­hugmyndir, Fljóts­hnúks­virkjun og Hrafna­bjarga­virkjun, eru í verndar­flokki 3. áfanga ramma­áætlunar en þings­ályktunar­tillaga þar um hefur nú beðið afgreiðslu á Alþingi í fjögur ár. Einbúa­virkjun fellur hins vegar ekki undir ákvæði laga um verndar- og orku­nýtingar­áætlun (ramma­áætlun) þar sem hún er undir 10 MW að uppsettu afli.

Einbúa­virkjun ehf. er í eigu Hilmars Ágústs­sonar og Kristjáns Gunnars Ríkharðs­sonar í gegnum félögin Kepler ehf. og SIKMAS ehf. Markmið Einbúa­virkjunar ehf. er að „stuðla að arðbærri fram­leiðslu rafmagns á Norður­landi sem leitt geti til áfram­haldandi vaxtar og uppbyggingar atvinnu­lífs á svæðinu,“ segir í mats­skýrslu.

Við virkjunina stendur til að nýta 24 metra fall á um það bil 2,6 kílómetra kafla Skjálfanda­fljóts. Samkvæmt hugmyndum virkjunar­aðila verður reist það sem í mats­skýrslu er kallað yfirfall, 185 metra og 1,6 metra hátt, þvert yfir fljótið. Þar sem ekki myndist uppistöðulón við virkjunina sé ekki um stíflu að ræða. „Yfirfall við inntak hennar myndar mótstöðu við rennsli Skjálfanda­fljóts sem beinir hluta rennslisins til virkjunarinnar,“ segir í skýrslunni. Vatni verði veitt úr yfir­fallinu um 1,3 kílómetra langan aðrennslis­skurð að stöðvar­inntaki. Stöðvarhús á að reisa skammt neðan við inntakið og þaðan verður frárennsli veitt um 1,3 kílómetra langan veg út í Skjálfanda­fljót til móts við bæinn Einbúa.

Í mats­skýrslu Einbúa­virkjunar ehf., sem unnin er af Verkís, eru lagðir fram tveir kostir um tilhögun virkjunarinnar, annars vegar kostur A sem gerir ráð fyrir að fráveita frá stöðvar­húsi verði að hluta í jarð­göngum en veita aðrennslis og frárennslis að öðru leyti í skurði og hins vegar kostur B sem geri ráð fyrir að veitu­leiðir verði eingöngu í skurði. Yfir­fallið mun beina vatni inn í aðrennslis­skurð virkjunarinnar og við mynni skurðarins verður reist inntaks­virki með lokum og þar fyrir framan staðsett um 25 m langt ísfleytingar­yfirfall (krapa­fleyta) sem hindrar að rekís og krapi berist inn í aðrennslis­skurðinn. Fram kemur að byggður verði fiskistigi við vestur­bakka fljótsins til að tryggja að yfir­fallið hindri ekki göngu hrygningar­laxa.

Frá inntaks­virki við fljóts­bakkann er gert ráð fyrir að grafa og sprengja rúmlega eins kílómetra langan aðrennslis­skurð í landi Kálf­borgarár og mun hann að miklu leyti liggja um tún bæjarins.

Upptök Skjálfanda­fljóts, sem er jökulskotin dragá, eru í Tungna­fellsjökli og Vatna­jökli, 178 kílómetra frá ósi og vatnasvið þess er áætlað tæplega 4.000 ferkílómetrar. Jökulvatnið kemur úr Bárðar­bungu Vatna­jökuls og úr Tungna­fellsjökli, lindar­vatn víðs vegar úr Ódáða­hrauni í austri og mest dragvatn kemur úr vestri, af Sprengis­andi og úr vestur­hlíðum Bárðar­dals.

Meðal­rennsli Skjálfanda­fljóts á fyrir­huguðum virkjunar­stað er áætlað um 88 m3/s. Virkjað rennsli yrði 47 m3/s. Rennsli er öllu meira á sumrin en á veturna en vatns­rennslið yfir veturinn er að meðaltali um 55-60 m3/s. Virkjunar­aðili hyggst tryggja að rennsli um áhrifa­svæði verði aldrei minna en 6 m3/s.

Mun rýra verndargildi Skjálfandafljóts

Náttúru­verndar­nefnd Þingeyinga, sem var einn umsagnar­aðila í skipulags­ferli fyrir­hugaðrar virkjunar, benti í umsögn sinni á að það sem lá til grund­vallar tillögu um friðun Skjálfanda­fljóts hafi verið að rennslis­stýring hafi í för með sér nær algera röskun á jarð­fræðilegu ferli. „Stífla Einbúa­virkjunar í Skjálfanda­fljóti muni hamla því að vatn, aur og ís renni óhindrað eftir farvegi Skjálfanda­fljóts með þeim hætti sem nú er,“ segir í umsögninni. Stíflan leiði til þess að stór hluti rennslis fljótsins verði tekið úr farvegi árinnar á tæplega þriggja kílómetra löngum kafla. Á þeim kafla muni farvegurinn standa nær vatnslaus við lágmarks­rennsli að vetri og ekkert vatn muni þá flæða yfir stífluna. „Einbúa­virkjun muni rýra verndar­gildi fljótsins verulega. Líta verði til þess að tjón af fyrstu virkjun er hlutfalls­lega meira en þeirra sem á eftir koma. Því ætti Einbúa­virkjun að haldast í hendur með öðrum virkjunar­kostum í Skjálfanda­fljóti sem voru metnir í ramma­áætlun 3.“

Í áliti Skipulags­stofnunar á mats­skýrslunni kemur fram að skýrslan uppfylli að mestu skilyrði laga og reglu­gerðar um mat á umhverfis­áhrifum og að umhverfis­áhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt. Óvissa sé þó um hvernig eigi að viðhalda því aurmagni sem berst á náttúru­legan hátt þrátt fyrir stíflun Skjálfanda­fljóts og verulegri skerðingu á rennsli árinnar á kafla, auk þess sem óvissa er um áhrif á lax og straumönd.

Í álitinu er bent á að fyrir­hugaðar framkvæmdir, hvort sem tilhögun A eða B verður fyrir valinu, hafa nokkuð neikvæð áhrif á gróður, m.a. á vist­gerðir sem hafi mjög hátt verndar­gildi. Þar sem þessi gróðursvæði eru talin vera um 4 hektarar af öllu áhrifa­svæði virkjunarinnar lítur Skipulags­stofnun hins vegar ekki svo á að votlendið sem fyrir raski yrði falli undir sérstaka vernd samkvæmt náttúru­verndar­lögum.

Aðra sögu er að segja um jarð­myndanir en Bárðardals­hraun, hulið gróðri og jarðvegi, er innan fyrir­hugaðs framkvæmda­svæðis. Hraunið nýtur sérstakrar verndar og telur stofnunin að um verði að ræða áhrif sem séu umfangs­mikil, óafturkræf og líta megi á sem talsvert neikvæð. Þá myndi virkjunin hafa neikvæð áhrif á fugla, bæði vegna rasks og ónæðis á framkvæmda­tíma sem og þar sem fuglar glata búsvæðum sínum að framkvæmdum loknum.

Skipulags­stofnun telur ljóst að Einbúa­virkjun myndi verða inngrip í vatnafar Skjálfanda­fljóts og hafa neikvæð áhrif á það vegna skerts rennslis, einkum að vetri til. Líta beri þó til þess að um hlutfalls­lega stuttan kafla fljótsins sé að ræða. Hins vegar telur stofnunin óvissu uppi um áhrif virkjunar á náttúru­legan aurburð fljótsins og leggur áherslu á mikilvægi vöktunar á þessum þætti ef af virkjun verður.

Skipulags­stofnun telur að helstu neikvæðu áhrif framkvæmdarinnar felist í breyttu yfir­bragði nærsvæðis virkjunarinnar með tilkomu ýmissa mann­virkja sem koma til með að breyta ásýnd hefð­bundins landbúnaðar­héraðs í svæði sem ber einkenni iðnaðar­svæðis „með umfangs­miklum skurðum fyrir aðveitu og fráveitu, stöðvarhús, vegum og brúm sem og stíflum og inntaks­virkjum, auk aurskolunar­mannvirkja sem stinga að öllu leyti í stúfa við það umhverfi sem er á svæðinu við núverandi aðstæður“. Segir í áliti stofnunarinnar að skurðirnir muni hafa neikvæðustu áhrif á ásýnd og yfirbragð auk þess sem rennsli fljótsins á kafla yrði aðeins brot af náttúru­legu rennsli sem myndi hafa varanleg áhrif á ásýnd og landslag.

Einbúa­virkjun ehf. hefur vísað til þess að að kostnaður við gerð aðrennslis í pípu sé of hár til að arðsemi næðist af framkvæmdinni. Að mati Skipulags­stofnunar er það þó æskilegur framkvæmda­kostur með tilliti til umhverfis­áhrifa að gera ráð fyrir að- og frárennslis­göngum/-pípum eins og frekast er kostur. Er það því niður­staða Skipulags­stofnunar að umhverfis­áhrif af valkosti A, þar sem gert er ráð fyrir jarð­göngum að hluta, séu minni en af valkosti B. Ætti því að gera tilhögun A að aðal­valkosti, sýni rann­sóknir á jarðlögum fram á að slíkt sé gerlegt. Ætti framkvæmda­aðili að leggja fram gögn sem sýna fram á að slíkt sé ekki hægt, verði það raunin. Minnir stofnunin á að það sé hlutverk sveitar­félags, í samvinnu við framkvæmda­aðila, að fylgja þessu atriði eftir við deili­skipulags­gerð og undir­búning framkvæmda­leyfis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár