Teitur Björn telur áform HB Granda á Akranesi kalla á lækkun veiðigjalda

HB Grandi ætlar að hætta bolfisks­vinnslu á Akranesi og segja upp allt að 93 manns. Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, vill bregðast við ástandinu með því draga úr íþyngjandi gjöldum á sjávar­útvegs­fyrirtæki.

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, telur að ástandið sem skapast hefur á Akranesi vegna áforma HB Granda um að hætta þar bolfisks­vinnslu og segja upp allt að 93 manns kalli á lækkun veiði­gjalda. Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þingsins nú á þriðja tímanum.

„Mikil hækkun launa, veruleg styrking krónunnar, háir vextir setja fjölmargar fisk­vinnslur í verulegan vanda víða um land og það er ekki hægt að horfa fram hjá því að gjöld á atvinnu­veginn umfram aðrar útflutnings­greinar eru íþyngjandi, gjöld sem leggjast sérstak­lega þungt á lítil og meðalstór fisk­vinnslu­fyrirtæki á lands­byggðinni,“ sagði Teitur Björn.„Ef það er raun­verulegur vilji til þess að treysta atvinnu­skilyrði, auka starfs­öryggi starfs­fólks og auka byggða­festu hlýtur lækkun þeirra að vera einn valkostur sem er í stöðunni.“

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Vinstri grænna, gagnrýndi Teit Björn harðlega vegna orða hans og sagði að sér blöskraði málflutningurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár