Ráðherrar svara of seint

Ráðherrar eiga enn eftir að svara 55 fyrir­spurnum frá síðasta þingári en þeim ber skylda samkvæmt þing­skaparlögum til að svara innan fimmtán daga.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar Allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar eiga enn eftir að svara fyr­ir­spurnum þing­manna frá síð­asta þingári. Mynd: Pressphotos

Enn eiga ráðherrar eftir að svara miklum fjölda fyrir­spurna þingmanna sem lagðar voru fram á síðasta þingi. Þá hafa ráðherrar varið um 32 dögum að meðaltali í því að svara fyrir­spurnum þegar þeim ber skylda samkvæmt þing­skaparlögum að svara eigi síðar en fimmtán dögum eftir að fyrir­spurn barst.

Á síðasta þingi lögðu þingmenn fram 299 fyrir­spurnir og á enn eftir að svara 55 þeirra þrátt fyrir að síðustu fyrir­spurnirnar hafi borist fyrir rúmum þremur mánuðum. Flestum fyrir­spurnum úr ráðherra­liði ríkis­stjórnarinnar á Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra eftir að svara, eða 15 fyrir­spurnum. Meðal þeirra eru til dæmis fyrir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar, þingmanns Pírata, um skipan dómara í Landsrétt og fyrir­spurn Iðunnar Garðars­dóttur, vara­þingmanns Vinstri grænna, um rann­sóknir á vændis­kaupum.

Þá eiga Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra og Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, báðir eftir að svara níu fyrir­spurnum. Á meðal þeirra sem Benedikt á eftir að svara er fyrir­spurn Björns Leví Gunnars­sonar, þingmanns Pírata, um húsnæði ríkis­stofnana, en fyrir­spurnin var lögð fram þann 21. febrúar, eða fyrir rúmu hálfu ári og er sú elsta sem á eftir að svara. 

Engum ráðherra ríkis­stjórnarinnar hefur tekist að fylgja eftir ákvæði þing­skaparlaga um að svör skuli berast innan fimmtán daga og eru útistandandi fyrir­spurnir hjá öllum ráðherrum. Best standa Jón Gunnarsson, sveitar­stjórnar- og samgöngu­mála­ráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, en þau eiga bæði eftir að svara einni fyrir­spurn hvort.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár