Einkarekin heilbrigðisfyrirtæki meðal þeirra arðsömustu

Tvö af fjöru­tíu arð­bær­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins eru einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki sem fjár­mögnuð eru með skattfé að mestu.

Opnar á einkavæðingu
Opnar á einka­væð­ingu Orð Óttars Proppé heil­brigð­is­ráð­herra um fyr­ir­byggj­andi krabba­meins­að­gerðir sem Klíníkin getur gert með kostun Sjúkra­trygg­inga Íslands benda til að hann sé hlynntur frek­ari einka­rekstr­ar­væð­ingu á aðgerðum sem hingað til hafa aðeins verið gerðar á Land­spít­al­anum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tvö einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki, sem fjár­mögnuð er að lang­mestu leyti með skattfé, eru meðal fjöru­tíu arð­bær­ustu fyr­ir­tækja lands­ins. Þetta eru bækl­un­ar­skurð­að­gerða­fyr­ir­tækið Stoð­kerfi ehf. á Suð­ur­lands­braut og heim­il­is­lækna- og heilsu­gæslu­fyr­ir­tækið Lækna­vaktin ehf. í Kópavogi. Þetta kemur fram í yfir­liti frá Láns­trausti, CreditInfo, um 100 arð­bær­ustu fyr­ir­tæki lands­ins út frá arð­bærni eigin fjár þeirra. Stoð­kerfi ehf. er í 35. sæti á list­anum en Lækna­vaktin ehf. í því 39. Bæði fyr­ir­tækin eru með meira en 60 pró­sent arð­semi eigin fjár. 

Nær allur hagnaður greiddur út

Stoð­kerfi ehf. er langstærsta einka­rekna bækl­un­ar­skurð­fyr­ir­tæki lands­ins en hjá því starfa 20 læknar sem jafn­framt eru hlut­hafar þess. Fyr­ir­tækið hefur gengið mjög vel um langt ára­bil og skil­aði 348 millj­óna hagn­aði á árunum 2008 til 2015 og greiddi út 327 millj­óna arð til hlut­hafa sinna. Fyr­ir­tækið hefur verið starf­andi í 20 ár. 

Stoð­kerfi ehf. sér­hæfir sig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár