Varað við dularfullu fyrirtæki Íslendings

Einar segist hættur í öryggis­bransanum

Hættur
Hættur Einar seg­ist hættur í örygg­is­brans­anum.

Einar Haraldsson, fyrr­verandi lögreglu­maður á miðjum aldri, er sakaður um umfangs­mikla blekkinga-­ og fjárplógs­starfsemi á tveimur erlendum vefsíðum sem fjalla um vopna-­ og öryggismál. Sjálfur hefur hann þvertekið fyrir að hafa óhreint mjöl í poka­horninu en gefið þær skýringar að hann hafi verið leiddur í gildru netþrjóta.

Íslend­ingurinn titlar sig framkvæmda­stjóra fyrir­tækisins Ealgon Security & Ops, en á vef þess kemur fram að Einar sé „frægur sérfræðingur á sviði öryggis­mála“ og að fyrir­tækið sérhæfi sig meðal annars í herþjálfun, björgun gísla og baráttu gegn hryðju­verkum. Í fyrra auglýsti Ealgon laus störf í Líbíu, en umsækjendur voru einungis beðnir um að sýna ferilskrá sína og inna af hendi 600 dollara fyrir­fram­greiðslu vegna afgreiðslu vegabréfs­áritunar.

Varað er eindregið við þessari dular­fullu atvinnu­auglýsingu á firearmsportal.com og cp­-domain.com, vefsíðum sem bjóða upp á umræðu­vettvang fyrir fólk sem starfar í öryggis-­ og eftirlits­iðnaðinum. Þar er til að mynda bent á að leiðar­vísir fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár